Æskan - 01.10.1978, Qupperneq 29
Sonur ekkjunnar
13. En allt kom fyrir ekki. Karlinn tók trafið af
fingrinum og sá þá, að strákur hafði farið inn í hið
bannaða herbergi. Karlinn barði strákinn svo mikið
að hann lá í rúminu í sex vikur. Þá fannst karli nóg
komið og tók horn eitt af veggnum. Úr horni þessu
tók karl áburð, sem hann smurði á strákinn og varð
hann þá samstundis alheill.
14. Stuttu síðar fór karlinn í fjórðu ferðina. Ætlaði
hann að vera einn mánuð í burtu. Hótaði karl
stráknum öllu illu, ef hann færi inn í fjórða og síðasta
herbergið. Játti strákur þessu öllu saman.
15. Hann gat haldið sig frá fjórðu dyrunum í þrjár
vikur, þá var þolinmæðin þrotin. Hann lauk upp
dyrunum og sá þarna inni bundinn hest. Var hann
með glóðarker við höfuð, en heyvisk við tagl.
16. Strákur skipti strax á þessu tvennu og setti
heyið við munninn á hestinum. ,,Þú ert góðhjartaður
drengur," sagði hesturinn við strákinn. ,,Nú skal ég
hjálpa þér við að sleppa héðan, því að nú mun
karlinn drepa þig, þegar hann kemur heim. Hann er
nefnilega tröll, þótt hann sýnist vera maður."
Texti: Johannes Farestveit. — Teikn.: Solveig M. Sanden.