Æskan - 01.02.1983, Page 3
við tegundir þar sem tjörumagnið í
hverri sígarettu er tæp 30 milligrömm.
Breskir og bandarískir vísindamenn
hafa gert mjög nákvæmar rannsóknir á
efnasamsetningu tóbaksreyks og kom-
ist að raun um að hann er blanda af
mörg hundruð mismunandi efnasam-
böndum, bæði lofttegundum, vökvum
og örsmáum föstum efnisögnum. Sum
þeirra eru ertandi, önnur fara inn í blóð
þess, sem andar reyknum að sér.
Helst þessara skaðlegu efna eru
tjara, nikótín og kolsýrlingur, en einnig
má nefna meðal eitraðra lofttegunda í
tóbaksreyknum ammoníak, blásýru,
brennisteinsvetni og arsenik.
Samstarfsnefnd um reykingavarnir
þykir ástæða til að koma á framfæri
nánari upplýsingum um tjöruefnin í
sígarettunum og skaðsemi þeirra.
Mörg tjöruefnanna beinir
krabbameinsvaldar
Tóbakstjaran, sem myndast, þegar
tóbak er reykt, er í mismunandi miklu
magni eftir því um hvaða sígarettuteg-
undir er að ræða.
Samkvæmt könnunum, sem gerðar
hafa verið undanfarið hefur komið í Ijós,
að mörg efnanna í tóbakstjörunni eru
krabbameinsmyndandi. Sextán þess-
ara efnasambanda hafa reynst beinir
krabbameinsvaldar, en önnur eru
krabbameinshvatar, það er að þau
örva vöxt þeirra meina, sem myndast
hafa. Þá er einnig Ijóst að ýmis
tjöruefnanna hafa ertandi áhrif á þá
slímhúð, sem þau komast í snertingu
við og þótt ekki sé sannað að þau valdi
krabbameini er vitað að þau geta valdið
bólgum í munni, koki, barka og lungum
og leitt til alvarlegra sjúkdóma.
Eiturefnin í tóbaksreyknum auka mjög lík-
urnar á að reykingamenn fái ýmsa sjúk-
dóma, en beinlínis eru þau völd að mörg-
um mannskæðustu sjúkdómum nú á
dögum, svo sem hjartasjúkdómum,
lungnakrabbameini, lungnakvefi og
lungnaþembu.
Maður sem reykir einn pakka af síga-
rettum á dag fær þetta tjörumagn ofan í
lungun og öndunarfæri líkamans á einu
ári nærri einn fimmta úr kílógrammi af
tjöru. Rannsóknir hafa sýnt að 16 efna-
sambandanna í tjörunni eru beinir
krabbameinsvaldar.
Maður, sem reykir einn pakka á dag
af algengustu sígarettutegund á mark-
aðnum, sýgur ofan í sig um það bil 200
grömm af tjöru á einu ári. Er þá miðað
Tóbakströll, taktu mig ekki!
Keykinga-
maður sýgui
ofan í sig
150-200
grömm
af tjöru
r r •
a ari
— ef hann reykir einn
pakka af sigarettum
ó dag
3