Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1983, Side 4

Æskan - 01.02.1983, Side 4
Tóbaksreykurinn lamar bifhárin Tjöruefnin, sem reykingamaðurinn sýgur ofan í sig, leika um slímhúðina í öndunarveginum og lungunum. Ef hann reykir sígarettur með reyksíu (filt- er) er tjörumagnið í sumum tilvikum minna en þegar um er að ræða síu- lausar sígarettur. Annars eru allmörg dæmi þess, að tjörumagnið sé svipað eða jafnvel meira í sígarettum með síu en sígarettum án reyksíu þótt um sömu sígarettutegund sé að ræða. Er skýr- ingin sú að sterkara tóbak er notað í sígaretturnar með síunni en hinar til þess að bragðið sé svipað úr báðum. Ef menn reykja ofan í sig, sem kallað er, setjast um 80% tjöruefnanna í slím- húðina í öndunarveginum og lungunum í formi örsmárra dropa. Rannsóknir hafa sýnt, að með svo nefndum bifhárum í barka og lungum leitast líkaminn við að losa sig við tjöruna eins og önnur óhreinindi sem þangað berast. Aftur á móti verða bifhárin fyrir lam- andi áhrifum af völdum tóbaksreyksins, jafnframt því sem reykurinn eykur þörfina fyrir starf þeirra. Athuganir vísindamanna hafa sýnt, að hreyfingar bifháranna í barka og lungum stöðvast í um það bil hálfa klukkustund eftir að reykt hefur verið ein sígaretta. Tjörumagn breytilegt eftir tegundum Á undanförnum árum hafa tóbaks- framleiðendur reynt að minnka tjöru- magnið í sígarettunum lítið eitt eftir að óyggjandi sannanir hafa komið fram um krabbameinsmyndun af völdum tjöru. Tiltölulega lítil breyting hefur þó orðið á tjörumagninu, þar sem fram- leiðendur hafa verið smeykir við að gera miklar breytingar á efnasam- setningunni sökum þess að þær hafa í för með sér bragðbreytingar, sem kaupendur kynnu ef til vill ekki að meta. Samkvæmt mælingum, sem gerðar voru hjá efnarannsóknastofu sænsku tóbakssölunnar árið 1964 var meðaltal tjörumagns í sígarettu án reyksfu 33.5 milligrömm í hverri sígarettu. Sam- kvæmt nýjustu mælingum sömu rann- sóknarstofu á sígarettum á sænskum markaði reyndist meðaltal tjöru í sömu sígarettum 28,2 milligrömm. Lækkun á tjörumagninu ( reyksíu- sígarettum var á sama tímabili frá 25,6 milligrömmum niður í 22,1 milligramm. Meðaltal tjörumagnsins í öllum þeim sígarettutegundum, sem verið hafa á sænskum markaði hefurfrá 1964 lækk- að úr 29,5 milligrömmum í hverri síga- rettu í 25,1 milligramm. Aukin dánartíðni meðal reykingamanna Eiturefnin í sígarettureyknum eru í meginatriðum þau sömu nú og þau hafa verið undanfarna áratugi þótt hlut- föll þeirra innbyrðis hafi eitthvað breyst. Tjaran, nikótínið og kolsýrlingurinn, sem eru eins og fyrr sagði mest að magni þessara hættulegu efna, valda gífurlegu heilsutjóni meðal reykinga- manna. Helstu sjúkdómarnir, sem beint FELUMYND Öll hafið þið áreiðanlega einhvern tíma lesið sögu um riddara hugprúð- an, sem kom þeysandi á hvítum hesti og lagði að velli drekann ógur- lega, sem hafði gert fólkinu gramt í geði í langan tíma. Felumyndin okk- ar er að þessu sinni um atvik af slíku tagi. Þið sjáið skelfilega Ijótan dreka, en þá er spurningin: Hvar er riddar- inn hugprúði? Þú finnur hann áreiðanlega, ef þú snýrð myndinni nokkrum sinnum. er hægt að reikna til áhrifa reykinga, eru lungnakrabbamein, langvinnt lungnakvef, lungnaþemba og blóðrás- arsjúkdómar, sérstaklega sjúkdómar í kransæðum. Þessir sjúkdómar hafa hér á landi aukið mjög dánartíðni meðal reykingamanna, og fjöldi fólks hefur orðið að örykjum af völdum ólæknandi langvinns lungnakvefs og dregið fram lífið árum saman og átt í lengra stríði en þeir sem látist hafa úr lungnakrabba- meini. 4

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.