Æskan - 01.02.1983, Page 5
JO-JO-(cÐA YO-YO)
Ifúður heimsins
4. Japanar taka brúðurnar sínar
mjög hátíðlega. 3. mars á hverju ári er
brúðuhátíð telpna og tveimur dögum
síðar er svipuð hátíð fyrir drengi, þar
sem þeir geta sýnt hermannabrúðurnar
sínar. Geisha-brúða er klædd í gljáandi
,,kímonó“ úr brókaði, og smáir fæt-
ur hennar eru færðir í silkiskó. Hárið er
greitt upp á höfuðið og bundið í hnút.
Hún hefur fínlega dregnar augabrýr og
lítinn rauðan munn. Yfir kímonónum
sínum klæðist hún kápu „obi“, sem
bundin er með risastórri slaufu að
aftan.
MALVERKAÞRAUT
Árið 1923 sá Ameríkani nokkur
filipínska sjómenn vera að leika sér að
litlum steinjó-jóum, eins og forfeður
Þeirra höfðu notað. Þegar hann kom
sftur heim til Ameríku fór hann að búa
til jó-jó úr tré og seldi þau sem barna-
leikföng. En útbreiðsla þessa leikfangs
varð svo gífurleg á stuttum tíma, að
Segja má að jó-jó-dellan hafi geisað um
a|lan heim upp frá því. Hún gýs alltaf af
til.
Heimsmet í jó-jó-leik var sett 1979.
^ethafinn er Joh Winslow í Bandaríkj-
urtum. Hann hélt jó-jóinu gangandi upp
°9 Hiður í 120 tíma samfleytt.
Hérna á myndinni sjáið þið teikningar af málverkum frá átta löndum. Nú
eigið þið að sýna kunnáttu ykkar í landafræði og ýmsum öðrum fræðum
með því að geta uþþ á, frá hvaða landi hver mynd er. Allar myndirnar
hafa eitthvert sérkenni, sem segir til um, hvar þær eigi heima. Á þeirri
fyrstu er heimsfrægur turn, á annarri vindmylla, þriðju sérkennilegir þjóð-
búningar, fjórðu maður með alþekkt merki á handleggnum, sem var frægt á
árunum 1933 til 1945, fimmta kona með slæðu fyrir andlitinu, sú sjötta
sýnir sérkennilegan bát, sem er notaður mikið sem samgöngutæki í
sérkennilegri borg, en sú sjöunda er af nautabana og loks er sú síðasta af
manni í skíðastökki, það land er ekki langt frá okkur. - Um sumar af
þessum myndum má segja að þær geti átt heima í fleiri löndum en einu,
en þá er að velja það land, sem sérstaklega er frægt fyrir það, sem
myndin sýnir. - Fimm verðlaun, sem eru bækur, verða veitt fyrir rétt svör.
Svör þurfa að hafa borist ÆSKUNNI fyrir 15. mars. Utanáskrift, ÆSKAN,
box 14, Reykjavík. (Þraut).
5