Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1983, Side 8

Æskan - 01.02.1983, Side 8
I HOFÐI. Höfði við Borgartún á sér langa og litríka sögu. En þetta glæsi- lega gamla hús er nú risnuhús Reykjavíkurborgar. VIÐ BORGARTÚN í Reykjavík stendur hið glæsilega hús Höfði, sem borgarstjórn lét gera upp um 1965 og tekur þar á móti gestum sínum innlendum og erlend- um. Við viðgerðina voru litlar breytingar gerðar á húsinu, en snyrtingu komið fyrir í kjallara. Ber það því jafnt að innan sem utan þann höfðingsbrag, sem á því var frá upphafi. Nú hefur verið ákveðið að vernda þetta hús fyrir framtíðina með friðlýsingu. Höfði hefur staðið langt fyrir innan bæinn, þegar það var byggt 1909. Rauðarárvíkin skarst þá inn í landið og fjörurnar voru ósnertar af uppfyllingu. það var Franska spítalafélagið, sem keypti lóðina úr Félagstúni. En samþykkt var þegar Þetta varð langur dagur og löng ferð. Seint um kvöldið kom Samelágúst heim. Ekki hafði hann fengið nokkurn matarbita allan daginn. Bara gengið og gengið. Hann var svo þreyttur, að hann gat varla staðið á fótunum. En í körfu bar hann tvær litlar, hvítar kanlnur. Þær höfðu kostað fimmtíu aura. Og Samelágúst var enginn fátæk- lingur. Hann átti enn eftir fimmtán aura til að eyða á næstu árum. Er nokkuð meir að heyra um Samelágúst? Nei, það er ekkert meira. Þetta er að vísu ekki merkileg frásögn. Ef til vil ekki. En mér þótti það svo skemmtilegt, að Samelágúst skyldi eignast sextíu og fimm aurana. Og mér þykir gott, að það skyldu svo mörg hlið í Smálöndum fyrr á tímum. E.Sig. þýddi. byggingarleyfi var veitt, að bærinn héldi spildu með- fram sjónum, en kaupandi hefði full rétt tii afnota og mætti setja þar batabryggju. Fulltrúi spítalafélagsins, Brillouin konsúll, lét reisa húsið, sem var innflutt frá Noregi. Hann var kvæntur norskri konu og má sjá áhrif þessara fyrstu íbúa enn þann dag í dag, því stofurnar minna á hinn franska uppruna húsbóndans með skjaldarmerki og stöfunum RF (Republique Francaise) yfir dyrum en anddyri, sem nær upp í gegnum húsið, er í norskum stíl og með ómáluðum bitum. Húsið er timburhús með vatns- kiæðningu og helluþaki, ein hæð og ris með brotnu þaki og lokaðri verönd. Árið 1914 keypti Landsbankinn „Konsúlshúsið", en tveimur árum síðar Einar Benediktsson og nefndi hann húsið Héðinshöfða eftir æskuheimili sínu norður í Þingeyjarsýslu. Matthías Einarsson læknir eignaðist húsið 1924. Á stríðsárunum komst það í hendur breska ríkisins, en 1958 keypti Reykjavíkur- borg húsið. Hafði breski sendiherrann haft þau rök fyrir máli sínu, er hann sótti um það til breska utanrík- isráðuneytisins að fá að selja húsið, að þar væri svo mikil draugagangur. Og var það leyft. Nú hefur húsið það hlutverk að vera hlýlegur mót- tökustaður fyrir gesti, sem sækja höfuðborgina heim. 8 FELUMYN6

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.