Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1983, Side 9

Æskan - 01.02.1983, Side 9
0 — Kiðlingageitin og úlfurinn I fyrndinni var gömul geit, sem átti sjö dálitla kiðlinga. Einu sinni, er hún ætl- aði út í skóg sagði hún við þá: „Börnin mín góð, varið ykkur á úlfinum, þið megið ekki opna fyrir honum, því að þá eruð þið öll glötuð", og svo fór hún. Nokkru seinna var komið að dyrun- um og kallað: „Opnið þið. Opnið þið, börnin góð, mamma ykkar er komin heim úr skóginum!“ En kiðlingarnir heyrðu þegar að þetta var ekki móðir þeirra, röddin var svo dimm og svo kölluðu þeir út: „Ekki er mamma okkar svona dimmrödduð", og þeir opnuðu ekki. Aftur var komið að dyrunum stundu síðar og kallað í mjóum tón: ..Opnið þið, Ijúkið upp börnin góð, mamma ykkar er komin heim úr skógin- um“. En kiðlingarnir gægðust út um rifu á hurðinni og sáu tvær svartar lappir og sögðu: „Ekki hefur mamma svona svarta fætur", og þeir opnuðu ekki. En er úlfurinn heyrði þetta - því að það var enginn annar en úlfurinn - þá þaut hann af stað til myllu nokkurrar og rak iappirnar ofan í mél, svo að þær urðu hvítar og hljóp svo aftur að dyrunum, stóð með framfæturna fast við rifuna og kallaði blíðlega: „Opnið þið, opnið þið, kæru börn, mamma ykkar er komin heim úr skóginum". En þegar kiðlingarnir sáu hvítu fæt- uma og heyrðu hvað röddin var mjúk, Þá héldu þeir að þar væri móðir sín komin, og svo opnuðu þeir í skyndi. heir voru ekki fyrr búnir að opna en úlfurinn stökk inn. Æ! hvað þeir voru hræddir, aumingjarnir litlu, og reyndu sö fela sig. Einn kiðlingurinn skreið undir rúmið, annar undir borðið, og einn fór bak við ofninn, einn bak við stólinn, einn bak við mjólkurpottinn og einn niður í öskustóna. En úlfurinn fann þá alla og gleypti þá, fór síðan út í garðinn og lagði sig þar undir tré og sofnaði. Þegar svo gamla geitin kom aftur úr skóginum fann hún húsið opið og tóma stofuna. Þá datt henni strax í hug: „Nú er illt í efni“, og fór að leita að blessuð- um börnunum sínum, en hún fann þau hvergi hvar sem hún leitaði og hvað hátt sem hún kallaði var henni ekki svarað. Loks gekk hún út í garðinn og sá þá hvar úlfurinn svaf undir trénu og hraut svo mikið að greinarnar hristust, og er hún gekk nær sá hún að eitthvað hvikaði innan í honum. Þá glaðnaði yfir henni, því að hún bjóst við að börn sín væru þarna lifandi. Nú hljóp hún heim í snatri, sótti skæri og klippti upp kviðinn á úlfinum og komu þá kiðlingarnir sjö hlaupandi út hver á fætur öðrum og — Það er ekki að sjá að vatn sé hérna nærri. voru allir lifandi. Síðan sótti gamla geitin sjö hnullunga, setti þá innan í úlfinn og saumaði svo saman. En er úlfurinn vaknaði var hann þyrstur og labbaði niður að brunninum til þess að fá sér að drekka, en er hann gekk slógust hnullungurarnir saman innan í honum, þá sagði hann: Hvað bröltir hvað skröltir í maganum á mér? Þar glamrar inni steinn við stein í staðinn fyrir geitarbein. Og er úlfurinn kom að brunninum og ætlaði að drekka, drógu hnullungarnir hann þar niður í og hann drukknaði, og gamla geitin dansaði með kiðlinga sína kringum brunninn af gleði. — Mamma, sjáðu, þarna kemur stóri bróðir til okkar aftur.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.