Æskan - 01.02.1983, Síða 13
„En þú lítur ekki vel út, Pétur. Þú ert
þreyttur og andlit þitt er fölt,“ sagöi
pabbi hans.
„En ég vinn mikið," sagði Pétur. „Ég
vinn öll mín skyldustörf."
„Það eru ekki verk þín sem ég hef
áhyggjur af, það er þú,“ bætti faðir hans
við.
„Leyfðu mér að vera lengur, bara
dálítið lengur," bað Pétur.
Faðir hans tók að borða brauðið og
ostinn. Hann bar bollann með heitu
kaffi og mjólk að vörunum og tæmdi
hann. Þá stóð hann upp og hneppti
þykkri ullarskyrtunni að sér. „Allt í lagi,
aðeins lengur." Og hann skundaði út úr
kofanum. Pétur starði á lokaða hurð-
ina. Pabbi hefur rétt fyrir sér, hugsaði
hann hryggur. Ég get ekki sinnt
hvorutveggja. Þegar ég fer aftur niður í
dalinn fer ég að mála aftur. Núna verð
ég bara bóndi. Hann vafði ostinn f klút
og þvoði upp bollana.
Viku seinna þegar hann hafði mjólk-
að kýrnar þrammaði hann í ostagerð-
arkofann. Léttur snjór hafði fallið sem
bráðnaði um leið og hann lagðist á
jörðina. Hann stappaði af snjóugum
stigvélunum á fjölum hjá dyrunum og
gekk inn. Þar var faðir hans að bogra
yfir málverkum hans sem lágu útbreidd
á borðinu.
„Málaðir þú þetta, Pétur?" spurði
pabbi hans.
„Já, pabbi," svaraði Pétur.
Faðir hans athugaði málverkin. „Ég
hef verið heimskur maður," sagði hann
og hristi höfuðið varlega.
Pétur fylgdist með honum ruglaður.
„Þú hefur talað fyrir mig Pétur. Hér í
málverkum þínum er ást mín á fjöllun-
|um.“ Faðir Péturs strauk fingrum sínum
*étt yfir strigann.
„Hvenær hafðir þú tíma til að mála
þessar myndir?" spurði hann.
„Ég málaði á næturnar, en geri það
ekki lengur," svaraði Pétur.
„Ég skil,“ sagði faðir hans. „Þess
vegna varstu svona þreyttur. Nóttin er
til þess að sofa, sérstaklega eftir að
hafa unnið mikið eins og þú. Hér eftir
skaltu mála á daginn."
Pétur gat ekki trúað þessu. Hann
langaði að hlaupa til pabba síns og
faðma hann. í staðinn brosti hann
þakklátur og pabbi hans skildi hann.
„Mig langar til að halda áfram að
horfa á þessar myndir þínar. Heldur þú
að við getum hengt þær á vegginn?11
spurði faðir hans.
Þeir negldu nagla í þykka veggina
og hengdu upp málverkin. „Hvílíkur
ostargerðarkofi," sagði Pétur
hlæjandi.
Faðir hans lagði arminn yfir axlir Pét-
urs. „Hver segir að bóndi geti ekki
verið listamaður?"
Jóhanna Brynjólfsdóttir, þýddi
Eg undirrit________ óska að gerast áskrifandi
að Æskunni.
Nafn:_________________________________________
Heimili:______________________________________
Póststöð:_____________________________________
Utanáskrift er: Æskan, pósthólf 14, Reykjavík.
Kjörorðið er: ÆSKAIM FYRIR ÆSKUIMA