Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 14

Æskan - 01.02.1983, Blaðsíða 14
\ I Lítill drengur var á gangi uppi í fjalli. Hann var önnum kafinn við að búa sér til hljóðpípu. Skyndilega mætti drengurinn afar smávöxnum, einkennilegum karli. Þeir mættust þar sem skógurinn var hávax- inn og myrkari. „Nei, nú er ég forviða," hrópaði drengurinn. „Ósköp ertu lítill." „Já,“ svaraði gamli maðurinn. „Þekkirðu mig ekki? Ég er dvergbónd- inn í Stóraskógi." Drengurinn hafði aldrei heyrt um hann talað. En hann hafði gaman af að hitta þennan skrítna karl. Litli karlinn hafði svart, sítt hár. Augun voru lítil og brún á lit. Nefið var flatt og breitt. „Jæja, þú ert bóndi,“ sagði drengur- inn. „Hvar er búgarðurinn þinn?“ „Hann er langt inni i skógi. Viltu koma með mér og sjá hann?“ spurði dvergbóndinn. „Já, ég hefði gaman af því,“ svaraði drengurinn. Þeir lögðu þá af stað inn í Stóraskóg. Gengu þeir all-lengi. Þá varð skyndi- lega myrkt umhverfis þá. „Hvers vegna kom þetta myrkur?" hrópaði drengurinn og greip í ermi litla bóndans. „Mér leiðist myrkrið." „Vertu ekki hræddur, drengur minn,“ sagði gamli maðurinn vingjarnlega. „Við erum komnir að bænum mínum. Það er ekki eins bjart hér eins og heima hjá föður þínum. En er þú hefir dvalist hér litla stund hverfur myrkrið." Þetta var satt. Að lítilli stund liðinni tók að birta fyrir augum drengsins, og innan skamms sá hann eins vel, eða greinilega og á meðan hann var ekki kominn inn í skóginn. Nú kom búgarður dvergbóndans í Ijós. Bóndinn mælti: „Þarna sérðu jörðina mína. Hvernig geðjast þér að henni?“ „Búgarður þinn er fallegur," svaraði drengurinn. „Ég hef aldrei séð svo fal- lega jörð. En ég hef þó séð marga fallega búgarða." „Langar þig ekki til þess að eiga þvílíkan búgarð", spurði bóndinn. „Jú. En á hvern hátt mætti það ger- ast?“ svaraði drengurinn. Þó kom kona dvergbóndans og opn- aði fjósdyrnar og hleypti út kúnum. „Nei. En hve litlar kýrnar eru. Ég áleit þetta kattahóp," sagði drengurinn. Það var rétt athugað. Kýrnar voru ekki stærri en meðalstórir kettir. Bóndinn sýndi drengnum allt hið markverðasta á búgarðinum. Það var margt að athuga. Bóndinn átti hesta, kýr og kindur. Hænsni hafði hann líka. Þau voru afar smávaxin. Þau voru ekki stærri en kanarífuglinn henn- ar Lottu. En hún var móðursystir drengsins. Drengurinn leit á bóndann. Hann var að gráta. „Hvers vegna grætur þú, góði litli bóndi?" spurði drengurinn og lá sjálfum við gráti vegna meðaumkunar. Dreng- urinn var mjög tilfinninganæmur og þoldi ekki að sjá aðra gráta. „Ég á ekkert sem ég hef skemmtun af,“ sagði bóndinn kjökrandi. „Þú getur verið glaður, þar sem þú átt þennan fallega búgarð," sagði drengurinn. „Ó,ó!“ sagði bóndinn. „Nágranni minn er voðalegt tröll. Tröllið kemur hvern dag og rænir einhverju frá mér. í gær tók það litla drenginn minn, í fyrra- dag tók það litlu stúlkuna mína. í kvöld rænir tröllið ef til vill konunni minni." „Hvers vegna rekurðu tröllið ekki i burt?“ spurði drengurinn. „Ég get ekki sigrað tröllið," svaraði litli bóndinn snöktandi. „Láttu tröllið koma, og ég skal sýna þér hvað ég get.“ Að svo mæltu sýndi hann bóndanum vöðva sína, og kvaðst hafa krafta í kögglum. 14
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.