Æskan

Årgang

Æskan - 01.02.1983, Side 15

Æskan - 01.02.1983, Side 15
ILLI OG GÆSASTEGGURINN Þetta er Sven Lundberg, sænskur drengur, sem lék Nils í myndinni um ferð Nils Holgers- sonar á baki gæsasteggsins norður um Svíþjóð. Bærinn er venjulegur, sænskur bóndabær. Drengurinn átti að vera einn heima meðan heimilisfólkið fór til kirkju. Hann átti að lesa texta dagsins í biblíunni, en þá sofnaði hann og ^feymdi um þessa löngu för. Um kvöldið kom tröllið eins og það hafði fyrir sið. Drengurinn fór út og talaði við tröllið. Hann var hvergi hræddur. Tröllapabbi spurði um nafn drengs- lns og hvar hann ætti heima. Drengurinn svaraði: „Ég heit Pelle Morsk, og ég kem frá heimsenda." ..Jæja,“ sagði tröllið. „Þú átt heima á heimsenda. Er ekki afar löng leið þangað?" „Ekki fjarskalega langt," svaraði Pelle. „Veistu hvort nokkur tröll eiga Þar heima?" spurði tröllið. Drengurinn hló, og svaraði: „Já, þar er mikið um tröll. Ég sá eitt tröll fyrir skömmu, sem var eins stórt og allur Þessi bóndabær eða búgarður. Það ^afði löng horn í enninu, og afar langan hala. í nefinu hafði það stóran járn- hring.“ ..Þetta tröll verð ég að sjá,“ hrópaði tröllið. ..Visaðu mér leiðina á heimsenda." ..Það get ég gert,“ svaraði drengur- lnn- „Fyrst gengurðu í þessa átt, svo í Þessa. Þá gengur þú aftur á bak, að því búnu áfram. Þá þarftu að finna fjall. Það er svo heitt að innan, að reykinn leggur upp úr því. En fjallið er svo lint eða laust í sér að hægt er að reka höfuðið í gegn- um það. Þegar þú hefur fundið fjail þetta, skaltu skríða í gegnum það. Þá ertu kominn á heimsenda, og hittir tröll- ið, sem ég sagði þér frá, og fieiri tröll.“ „Þakka þér fyrir drengur minn,“ sagði tröllapabbi og fór leiðar sinnar. Hann ætlaði ekki að létta ferðinni fyrr en hann kæmist á heimsenda. Hingað og þangað, til hægri og vinstri, aftur á bak og áfram, gekk tröllið samkvæmt fyrirsögn drengsins. En ekki fann það fjallið, sem átti að vera rétt hjá heimsenda. Tröllið fann mörg fjöll, en reyk lagði ekki upp úr toppi þeirra, og lin voru þau ekki. Þegar það reyndi að reka hausinn í gegnum þau meiddi það sig, svo að það öskraði af sársauka. Að lokum kom tröllið á akur. Þar var stór haugur af húsdýraáburði. Það rauk upp úr haugnum og hiti var í honum. Tröllið mælti: „Þetta er fjallið, sem er við heimsenda." Það öskraði af ánægju, stakk hausnum inn í áburð- arhauginn og skreið gegnum hann. Þegar það kom út úr honum, sá það tröllið, sem drengurinn hafði sagt frá. Það var ekki um að villast. Þetta tröll hafði horn út úr enninu og járnhring í nefinu. Þetta var auðvitað ekki tröll, heldur gríðarstórt herragarðsnaut. Nautið stóð og glápti. Þegar það kom auga á Ijóta trölla- pabba, sem var lítið tröll, tók nautið ófreskjuna upp á hornunum og fleygði hátt upp í loftið. Enginn hefur séð tröllið koma niður aftur og hvergi hefur það sést síðan. Frá því þetta gerðist hafa litlu hjónin í Svartaskógi fengið að vera í friði og dvergbóndinn gaf Pelle góða jörð sem verðlaun fyrir það að koma tröllinu til þess að leggja upp í ferðina á heims- enda. / næsta blaði Bókaklúbbur ÆSKUNNAR kynntur Fróðleiksmolar um páskana. Rætt við unga afreksmenn í íþróttum. Lína langsokkur — viðtal og myndir. Dýraspítalinn í Viðidal. Verðlaunagetraun. FERÐIN Á HEIMSENDA 15

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.