Æskan - 01.02.1983, Side 17
Verið velkomin á skíði til
HÚSAVÍKUR
Á Húsavík er ákjósanlegt skíðaland og
skíðasnjór yfirleitt mikill
Frá Hótel Húsavík eru aðeins 200 metrar í
skíðalyfturnar
3 skíðalyftur sem eru opnar og flóðlýstar
frá kl. 10.00-22.00 alla virka daga
og frá kl. 10.00-19.00 um helgar
Troðnar göngubrautir
í fallegu umhverfi fyrir þá sem hafa gaman
af skíðagöngu
Skíðakennsla mánudaga til föstudaga kl. 20-22
Þægilegar helgarferðir með Flugleiðum
HUSAVIKURKAUPSTAÐUR
í næsta blaði:
Bókaklúbbur fyrir
áskrifendur Æskunnar
Við munum kynna stofnun bóka-
klúbbs í næsta blaði. Allir áskrif-
endur okkar geta gengið í hann og
fengið útgáfubækur Æskunnar á
sérstöku félagsverði. Okkur þykir
vænt um að geta komið til móts við
óskir lesenda um þetta og vonumst
eftir að fá bréf frá ykkur um það
hvernig bækur þið viljið helst lesa.
í mars segjum við ykkur nánar frá
bókaklúbbnum, lýsum fyrstu útgáfu-
bókunum og sendum sérstakan seð-
il sem væntanlegir félagar rita nöfn
sín á.
Átta litsíður
í mars mun blaðið líka breyta
nokkuð um svip. Átta af þeim síðum
sem verið hafa í tveimur litum verða
þá í öllum regnbogans litum. Þar
verður t. d. viðtal við Línu langsokk
og það verður nú aldeilis litskrúðugt!
hana afturábak, sneri henni við aftur, bisaði henni yfir
steina, sem voru hálfur metri á hæð, í stað þess að krækja
fyrir þá, klifraði upp strá, sem voru tuttugu sinnum hærri en
hann og lét sig detta niður af þeim aftur, skildi köngurlóna
síðan eftir í miðri götunni, þangað til annar jafnvitlaus maur
fyndi hana og þættist þurfa á henni að halda.
Eg mældi vegalengdina, sem maurinn hafði farið með
köngurlóna og komst að þeirri niðurstöðu, að það, sem
honum hafði tekist að afreka á tuttugu mínútum, jafngilti
Því. að maður byndi saman tvo hesta, sem hvor væri 350
^9, bæri þá 600 metra vegalengd yfir nokkra tveggja
^etra háa hauga, klifraði upp Niagarafossa öðrum megin
°9 henti sér niður þá hinum megin, með hestana í eftirdragi
°9 færi síðan yfir þrjár strýtur, sem hver væri um 40 metra
skildi síðan hestana eftir á glámbekk, aðgæslulausa,
f<®ri svo leið sína til að byrja á einhverju gagnslausu verki,
af eintómi hégómagirnd.
Vísindin hafa nýlega uppgötvað, að maurinn safnar ekki
vetrarforða. Það hlýtur að draga úr áhuga vísindanna fyrir
honum. Hann vinnur ekki nema þegar fólk horfir á hann, og
Þá því aðeins, að áhorfandinn sé vísindamannslegur
ásyndum og hafi minnisbók og blýant. Þetta er blekking,
sem mun gera út af við vinsældir hans í sunnudagaskól-
unum.
Hann kann ekki að gera greinarmun á góðum mat og
vondum. Það er vottur um fávisku og mun veikja virðingu
heimsins fyrir honum. Hann ratar ekki heim aftur, ef hann
ráfar spölkorn frá þúfunni. Það bendir til skorts á andlegum
vitsmunum og þá hætta hugsandi menn að líta upp til hans
og áhrifagjarnt fólk að dá hann.
Hin margumtalaða iðni hans er einungis fánýt hégóma-
grind, enda kemur hann ekki með neitt heim af því, sem
hann finnur. Sú staðreynd reytir síðasta snefilinn af orðstí
hans og áliti af honum og gerir út af við hann sem nothæfa
siðferðilega viðhressingu, því að hér eftir hlýtur letinginn að
kynoka sér við að fara í skóla til hans að nema iðni.
Það er furðulegt og óskiljanlegt, að jafn augljósar blekk-
ingar og maurinn hefur haft í frammi, skuli hafa getað
varpað ryki í augu margra þjóða um langan aldur, án þess,
að flett yrði ofan af honum.
17