Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1983, Qupperneq 23

Æskan - 01.02.1983, Qupperneq 23
 m JÖLSKYLDUÞÁTTUR msjá Kirkjumálanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík. gera Dómhildur Jónsdóttir. Viö hjónin sátum á bekk í Hafnarstræti og vorum aö bíöa eftir strætisvagni. - Þetta var um helgi, það var gott veöur og viö sátum þarna ein. Allt í einu koma tveir drengir út úr sælgætissölunni, Þar sem spilakassar Rauöakrossins eru. Sá eldri var 10-12 ára en sá yngri um 8 ára. - Þeir gengu til okkar og sá eldri segir og réttir fram höndina: „Geturðu gefiö mér fyrir strætó?“ ..Alveg sjálfsagt vinur," segir maöurinn minn. „Ertu aö fara heim?“ „Já, segir drengurinn.1' „Hvar áttu heima?" „Uppi í Breiöholti." „Jæja blessaöur, hvaö þarftu mikið?" „5 krónur" var svarið. Pétur tók upp budduna og tíndi úr henni fimm krónupeninga. Drengurinn þakkaði fyrir. En í staðinn fyrir aö bíöa eftir vagni, fór hann beint þangað sem spilakassarnir voru. Ég haföi fylgst meö því sem fram fór. Ég horföi á minni drenginn á meðan á samskiptum Péturs og eldri drengsins stóö. Ég hugsaði meö mér. Ætli hann se9i þetta satt? Hálfpartinn fannst mér sá yngri hugsa ’.Svakalega er hann kaldur." Ég fór á eftir drengjunum inn aö spilakössunum. Sá eldri hafði þá sett einn pening í rifuna á kassan- Um- Ég tók um hönd hans og sagöi ákveðin, en ekki ovingjarnlega „Nei vinur, þetta gengurekki, fáöu mér Peningana aftur." Ég beygði mig niöur aö drengnum °9 viö horfðumst í augu. Þetta var myndar drengur °9 með drengilegt andlit. Ég sagði í lágum hljóðum: „Nú skrökvaöir þú, þetta máttu aldrei gera. Viltu lofa mér því að segja alltaf satt. Þaö borgar sig." Ég klappaði létt á öxlina á honum og gekk burt. Ég hugsaði töluvert um þennan dreng síöar. - Ef hann heldur áfram svona smá skreytni, getur það oröiö þaö mikill ávani, að fyrr eöa síðar veit enginn og síst hann sjálfur hvenær hann segir satt og hvenær ekki. - Þetta getur komið sér mjög ílla ef hann þarf einhvern tíma að sanna sakleysi sitt. Nú spyrja einhverjir. Hvaö kom þér þetta viö? Hvaö geröi til þó drengurinn skrökvaöi svolítið, af því aö hann langaði til að spila í spilakössunum? Fyrir mörgum árum las ég sögu um ungan afbrota- mann, sem átti aö taka af lífi. - Margmenni var komið aö aftökustaðnum til að horfa á aftökuna. - Þar á meðal var fátæk móöir piltsins. Margir töluöu um, hvaö móöirin ætti bágt aö eiga slíkan son. Áöur en aftakan var framkvæmd fékk sonurinn aö segja nokkur orö. - Hann leit í kringum sig og yfir áhorfendahópinn, sá móöur sína þar á meðal, benti til hennar og hrópaöi í angist. Mamma, þetta er líka þér aö kenna aö ég stend hér í dag. Þú bannaðir mér aldrei aö skrökva og þú tókst alltaf viö því, sem ég kom meö heim, án þess aö spyrja, hvar ég fékk þaö. Þessi saga finnst mér kenna okkur mikið. - Viö sjáum fyrir okkur bláfátæka konu, sem er aö berjast áfram meö drenginn sinn. Hún vinnur baki brotnu og drengurinn vill hjálpa móöur sinni, en er svo lítill aö hann fær hvergi vinnu. Svo hann tekur hluti í smáum stíl fyrst og færir móöur sinni. Móðirin er svo fegin aö fá þetta í allsleysi sínu að hún spyr ekki drenginn hvar hann hafi fengið þaö. Smám saman kemur þetta í vana hjá drengnum, þar til hann gerir sér ekki Ijóst hvort hann eöa einhver annar á hlutinn sem hann langar í. Hver endirinn varð á þessu, höfum við þegar lesiö. Kæru börn. Ef þiö vitið um einhvern, sem hefur vaniö sig á aö skrökva eöa taka það sem hann ekki á, skuluð þiö ekki taka þaö upp eftir honum, heldur reyna aö fá hann eða hana til aö hætta því og svo er gott ráö aö biðja fyrir honum. Á þann hátt sér Jesús aö viö hugsum ekki eingöngu um okkur sjálf. Munum aö þaö erum viö sjálf, sem græðum mest á því aö taka tillit til annarra. Dómhildur Jónsdóttir

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.