Æskan - 01.02.1983, Síða 26
myndum fyrir þær við nýtingu raf-
magnsins. Sem dæmi má benda á
lampasnúruna hér á myndinni. í
stækkunarglerinu er sýndur hugs-
aður straumur elektróna eða með
öðrum orðum rafstraumur í lampa-
snúrunni. Mælieining rafstraums er
amper (A).
Til þess að hafa áhrif á hegðan
elektrónanna þurfum við að beita
þær vissum þrýstingi sem við köll-
um rafspennu, sem er þó í reynd
spennumunur frá einum viðmiðun-
arstað til annars. Alþekkt dæmi um
þennan spennumun birtist okkur í
eldingunni, sem stafar af mismun-
andi rafhlöðnum skýjum. Þegar
þessi ský nálgast hvert annað eða
jörðu að vissu marki, þá nær raf-
straumurinn snögglega, vegna
spennumunarins, að hlaupa þar á
milli og spennumunurinn jafnast út
að mestu, Mælieining rafspennu
nefndist volt (V).
Þótt rafagnirnar geti streymt um
leiðandi efni þá veita þau nokkurt
viðnám gegn rafstraumnum og efn-
ið getur hitnað, því meir, sem
straumurinn verður meiri í hlutfalli
við flutningsgetu leiðslunnar. Þetta
er það sem við nefnum rafviðnám
og er mælieining þess Ohm (Q).
Þetta nýtti Edison sér einmitt í raf-
magnsperunni þegar hann fékk
glóðarþráðinn til þess að hitna svo,
að hann varð lýsandi.
Nú en fræðilega getum við ekki
farið nánar út í þetta hér en snúum
okkur þá næst að hættunum af raf-
magninu.
Algengt er að flokka hættur af
rafmagni í tvennt það er SNERTI-
HÆTTA og BRUNAHÆTTA.
Hverjar eru helstu orsakir
slysa og tjóna af rafmagni?
Af erlendum upplýsingum má
sjá, að helstu orsakir slysa og tjóns
af rafmagni eru GÁLEYSI og
ÓNÓG ÞEKKING á þessum
hlutum.
Hvar verða slysin? í erlendum
skýrslum má einnig sjá að flest slys
verða á vinnustöðum og í heima-
húsum, en slys verða einnig á öðr-
um stöðum svo sem vegna barna
og unglinga of nærri rafmagnsvirkj-
um. Má þar nefna leik með flug-
drekum nærri rafmagnslínum.
Hverjir verða fyrir slysum? Á
vinnustöðum er talið að menn á
aldrinum 20 til 40 ára verði tíðast
fyrir slysum. Þar er um að ræða
m. a. fólk sem vinnur við raf-
magnsvirki. í heimahúsum verða
litlir drengir oft fyrir slysum af raf-
magni og einnig unglingar og jafn-
vel eldri sem leika sér að raftækjum
og þess háttar í frístundum. Þá má
telja drengi 10-15 ára virkan ald-
urshóp í þessu tilliti, sem verður
alltof oft fyrir alvarlegum slysum
vegna leiks á bannsvæðum svo
sem í raflínumöstrum og jafnvel af-
girtum háspennuvirkjum, sem eru
jafnan auðkennd með aðvörunar-
skiltum „Háspenna lífshætta".
í næsta blaði verður nánar rætt
um þessar hættur svo og skyndi-
hjálpina.
Ómar Friðþjófsson.
Háspenna
Lífshætta
M
26