Æskan - 01.02.1983, Side 35
NÝ FRÍMERKI
JÓLAFRÍMERK11982. Hinn 16. nóv-
ember s.l. gaf Póst- og síma-
málastofnunin út jólafrímerki. Er það í
annað skiptið, sem sérstök jólafrímerki
eru gefin út hér á landi. Efnt var til
samkeppni að þessu sinni um gerð frí-
merkjanna og hlaut Tryggvi T. Tryggva-
son fyrstu verðlaun. Alls bárust 76 til-
'ögur. - Myndefni jólafrímerkja 1982
eru jólalög, táknuð með nótum og
óhlutlægri myndskreytingu. - í báðum
merkjunum eru notuð stef úr lagi
Sigvalda S. Kaldalóns við kvæði Einars
Sigurðssonar: Nóttin var sú ágæt ein. -
A öðru frímerkiinu (300) er byrjunin á
la9inu en á hinu (350) er síðari hluti
viðlags. - Myndskreytingin á merkjun-
um táknar frið jólanna annars vegar og
klukknahljóm hins vegar.
Paul McCartney
Þýska söngkonan Nína Hagen er ennþá í fyrsta
sætinu. Eini munurinn er sá aö hún hefur næstum
þrefaldaö vinsældir sínar! Önnur þýsk söngkona,
friöarboöberinn Nicole, er skammt undan.
Fimmta sæti listans þarfnast svolítillar skýringar.
Þar situr breska söngkonan Sally Potter án þess að
nokkur hafi skrifað hennar nafn á sinn atkvæðaseðil!
Skýringin er þessi: Lindsay Cooper fékk 24 stig sem
söngkona. Hún syngur samt aldrei á sínum plötum.
Þaö er nefnilega Sally Potter sem syngur á plötum
Lindsayar Cooper.
Vinsælasta platan:
1. Number of the beast með
IronMaden .................... 177 stig
2. Tug Of War meö Paul McCartney .... 74 stig
3. Combat Rock meö Clash........... 52 stig
4. Complete Madness meö Madness ... 50 stig
5. Rags meö Lindsay Cooper ........ 49 stig
Númeriö þeirra Iron Maden rokkara er númer 1 og
röskum hundrað stigum ofar næstu plötu.
Það er stundum talað um, að fólk
9ráti söltum tárum, og þetta er enginn
Þugarburður, því að í tárunum er 98%
vatn en 2% föst efni, og þar af ern 1,3%
aiatarsalt.
Mississippi er lengsta fljót heimsins,
Þe9ar með er talin áin Missouri, sem
fellur í það. Fljótið er 6530 kílómetrar
að lengd, eða nærfimm sinnum lengra
en Rín.
Lágvaxnasta fólk í veröldinni munu
vera Bambuti-svertingjarnir í Mið-Af-
ríku. Meðalhæð karlmanna þar er 144
cm, en kvenna 134 cm. Talið er að
ástæðan til þessa smávaxtarlags sé
sú, að þessi þjóð býr í frumskógum og
nýtur mjög lítillar sólar.
Evrópa er að flatamáli aðeins 7% af
yfirborði hnattarins, en þó teljast um
90% af öllum söguminjum veraldar
hafa varðveist þar.
Sagt er að skóhlífarnar séu upprunn-
ar í Suður-Ameríu, og það eru Indíánar,
sem við eigum að þakka þessa nyt-
sömu uppgötvun, það er að segja
gúmískóhlífarnar. En hlífðarskó með
þykkum sólum notuðu Rómverjar í
fornöld.
HITT OG ÞETTA
35