Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1983, Qupperneq 40

Æskan - 01.02.1983, Qupperneq 40
■ 13. Sjö ár liðu - sjö löng ár. Strákur hafði haldið lífi með því að lifa „Róbin- son-lífi“ þarna á eyjunni. - Þá var það eitt sinn að mjög gamall karl kom til hans og sagði: „í dag mun kærastan þín standa sem brúður og giftast keisarasyninum1'. - 14. Og gamli maðurinn hélt áfram: „Hún hefur ekki sagt eitt einasta orð í þessi sjö ár, sem liðin eru. Hún þráir aðeins þig. Taktu nú þessa flösku og farðu til hennar. Þegar þangað kemur skaltu fyrst fá þér eitt glas úr flöskunni en síðan skaltu gefa matreiðslumann- inum eitt." - 15. „Og þriðja glasið skaltu senda inn í brúðarbekkinn og leggja með Þvl hringinn, sem nú er á fingri þér. Góða ferð." Áður en hendi varð veifað, sveif strákurinn af stað, en geta má þess, að sá gamli, sem talaði, var göldrótt- ur. - >//. 16. Hann stóð litlu síðar við húsið þar sem brúðkaupið fór fram. Allt fór eins og ráð hafði verið fyrir gert. Kóngs- dóttir þekkti þegar hringinn. - 17. Hún spratt á fætur kóngsdóttirin, þegar hún sá hringinn, og hún var svo glöð yfir því, að sjá kærastann sinn aftur, að hún sagði keisarasyninum að fara bara í rass og rófu, hvað hann og gerði! - 18. Strákurinn, sem einu sinni viktaði „Gammelost" rakaði sig, og fór í fín föt því að nú var það hann, sem var brúðguminn. - Ungu hjónin liföu vel og lengi og tóku við ríkinu, þegar gamli kóngurinn dó. Þau eignuðust börn og buru. Mánnshárið er hraðvaxnasta efni lík- amans. Sjálft er hárið dautt, en hárrót- in, hárpokinn lifir og ýtir upp hárinu jafnt og þétt. Mannshárið er mjög sterkt. Eitt einasta hár getur valdið 80 grömmum. Ef öll hárin á höfði einnar manneskju væri fléttuð í kaðal, væri hann nógu sterkur til að halda uppi 100 manns. Skegghárin vaxa hraðar en hárin í HARIÐ hvirflinum. Að meðaltali hafa rauðhærðar konur um það bil 90.000 hár, dökkhærðar um 100.000 og Ijós- hærðar allt að 150.000. Neglurnar eru náskyldar hárinu og hegöa sér svipað. Til að hár og neglur séu hraust, þarf að SBBHHimHBWHBSMHBHHSBHHBKSH! borða rétta fæðu, en fæða er sem kunnugt er mæld eftir þeirri orku, sem hún framleiðir og er mælieiningin nefnd hitaeining. Til að lesa 650 orð þarf um það bil eina hiteiningu. Það samsvarar einum tómati eða bolla af svörtu kaffi. Klukku- tíma hjólaskautatúr tekur 200-250 hitaeiningar. ■nmmmBimaa ■i 40

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.