Æskan - 01.02.1983, Síða 42
Af erlendum tónskáldum mun Schu-
bert vera kunnastur alþýðu manna
baeði hér á landi og annarsstaðar. Ber
það fyrst og fremst til, að sönglögin
eiga hægari leið að eyra almennings
en aðrar tónsmíðar og að sönglög
Schuberts voru svo sérstaklega vel fall-
in til að festa sér í minni, látlaus og laus
við flúr, en svo Ijóðræn og þekk, eins
og vísa lærist ef maður heyrir hana
einu sinni. Og þó bæði óperur, kórverk,
hljómkviður, sónötur og margt fleira
liggi eftir Schubert verða það þó söng-
lögin hans, sem lengst halda minning-
unni á lofti.
Franz Peter Schubert var austurrísk-
ur maður og fæddist skammt frá Vín
31. janúar 1797 í þorpi sem hét Licht-
enthal. Var faðir hans barnakennari þar
í þorpinu og mikill barnakarl, því að þau
urðu nítján börnin. Eins og nærri má
geta hrukku barnakennaralaunin
skammt til þess að seðja þessa mörgu
munna og veita þeim sæmilegt uppeldi
og ólst Schubert því upp við hina mestu
fátækt. En hann hafði góða söngrödd
og hafði gaman af söng og hljóðfæra-
slætti. Ellefu ára fékk hann að syngja í
drengjakór kirkju einnar í Vín og var
það fyrsta menntun hans í tónlistinni.
En eigi að síður fór hann þegar að fást
við tónsmíðar og samdi „fantasiu" fyrir
píanó þrettán ára gamall. En fyrsta
„rnessan" sem hann setti saman var
sungin opinberlega þegar hann var
seytján ára. Faðir hans hafði veitt hon-
um nokkra tilsögn í að leika á fiðlu, því
að það urðu allir skólameistarar að
kunna í þá daga, og einhvern veginn
hafði hann séð sér fært að koma hon-
um til kennslu hjá hljómlistakennaran-
um Antonio Salieri, sem þá var í mikl-
um metum í Vín.
Ekki gat Schubert lifað á tónlistinni.
Faðir hans kom honum því að sem
tímakennara við skólann sem hann
starfaði f og hékk hann við það starf í
þrjú ár, 1813-1816, við lítinn orðstír.
Hann var engum kennarahæfileikum
búinn og hafði takmarkaða þekkingu á
því sem hann átti að kenna og var auk
þess mjög viðutan í starfinu og það
kunnu lærisveinar hans að nota sér.
Hugur hans var allur við tónlistina og
þrátt fyrir kennslustarfið samdi Schu-
bert fjölda tónsmíða á þessum árum.
Hann var alltaf að semja. Það var eins
og lögin væru sungin fyrir eyrum hans
og hann þyrfti ekki annað en skrifa
niður. Frá þessum árum liggja eftir
hann yfir 100 sönglög, sem urðu til svo
að segja í einu vetfangi, og stórar tón-
smíðar fyrir hljómsveitir og kirkjukóra,
er hann samdi með undraverðum
hraða. Hann var jafnfljótur að semja og
Símon Dalaskáld var að yrkja, en
gæðamunurinn var allmikill. Ekkert Ijóð
hefur verið kveðið svo fagurt, að lag eft-
Franz Schubert
ir Schubert sómdi sér ekki við það og
gæfi því aukið gildi og voru það þó Ijóð
úrvalsskáldanna, sem Schubert öðru
fremur setti lög við. Af rúmum 600
sönglögum sem hann samdi eru t. d.
yfir 100 við Ijóð eftir Goethe, þar á
meðal „Álfakóngurinn", sem var
fyrsta lagsmíð hans, „Greta við rokk-
inn“, „Næturljóð vegfarandans" og
„Heiðarrósin". Fræga lagboða fékk
hann einnig frá Schiller, Heine, Ruckert
og fleirum. Það voru bæði einstök lög
og heilir lagaflokkar, sem hann samdi,
má af þeim síðarnefndu sérstaklega
nefna „Malarastúlkuna fögru", „Vetrar-
ferðina", „Stúlkan frá hafinu" og „Svana-
söng“. En auk sönglaganna 600 lét
hann eftir sig átta hljómkviður og yfir 30
önnur hljómsveitarverk, sex messur og
17 óperur auk fjölda margs annars.
Hefur ekkert tónskáld verið frjósamara
en hann á jafn stuttri ævi. Það er blátt
áfram undravert hvað eftir hann liggur.
En þó var líf hans mesta basl. Hann
var enginn ráðdeildarmaður og bar
enga áhyggju fyrir morgundeginum.
Hann var að jafnaði auralaus og í sí-
felldum vandræðum, en setti það ekk-
ert fyrir sig. Vini átti hann nokkra sem
reyndu að hjálpa honum, en samt gat
hann aldrei lifað áhyggjulausu lífi. Ef sá
heimur hefði verið til sem ekki þekkti
peninga, hefði Schubert átt þar heima.
Honum varð ekkert úr tónsmíðum sín-
um og hafði sjálfur ekki hugmynd um
hvers virði þær voru. Og honum var
allsendis ósýnt um að „koma sér
áfram" sem kallað er og missti að jafn-
aði tækifæranna er honum buðust þau.
Helstu tekjur hans voru af píanó-
kennslu, sem hann stundaði jafnan
nokkuð. Hann dvaldi lengstum í Vín og
þar dó hann úr taugaveiki í mestu ves-
öld árið 1828 - aðeins 31 árs að aldri.
En eftir þennan unga og misvirta
mann hafa allar menningarþjóðir ver-
aldarinnar fengið notadrýgsta tónlistar-
arfinn - þá gjöf sem nær til fjöldans.
Kápumynd
Ljósmynd: Sigurður Þorgeirsson. Vinnu-
stofa hans er á Klapparstíg 16,
Reykjavík.
42