Æskan - 01.02.1983, Qupperneq 52
HVAÐ VILTU VITfl?
Mest notar fólk af hænueggjum. Af
eggjum annarra fugla má nefna andar-
egg og gæsaegg. Ennfremur er svolítið
notað af eggjum villtra fugla, svo sem
álku, svartfugls o. fl.
Yst er skurnið. Er það með smáum
loftgötum til þess að unginn fái loft.
Skurnið er að innan klætt hvítri himnu,
sem nefnist skjall. Fyrir innan skjallið er
hvítan, þá rauðhimnan og rauðan innst.
Úr henni liggur rauðuþræðirnir út í sinn
hvorn enda eggsins, en þeir elga að
hjalda rauðunni í miðju egginu. Hvítan
inniheldur fullgilda eggjahvítu, nokkuð
af steinefnum, en ekkert af vítamínum.
Rauðan er næringarríkust, enda inni-
heldur hún öll þau kjarnaefni, sem þarf
til að mynda og viðhalda lífinu í ungan-
um. Hún er auðug af steinefnum og
vítamínum A, B og C.
Að sjóða egg: Stingið í endan á
egginu með nál, til dæmis með öryggis-
nál, svo að það springi síður.
Látið vatnið bullsjóða. Saltið. Takið
pottinn af eldinum og látið eggin var-
lega ofan í þau með skeið. Setjið pott-
inn yfir aftur og sjóðið eggin sem hér
segir:
Linsoðin egg:
Sú samstæða af líffærum sem
framleiðir tal manneskjunnar, er
sennilega það margbrotnasta hljóð-
færi sem hægt er að hugsa sér. Til
þess að hljóð og bókstafir geti mynd-
ast, verður að nota þessa samstæðu í
heild. En hún nær út yfir kvið, brjóst,
kverkar, munn, nef, þind, ýmsa vöðva
tungunnar, góminn, varir og tennur!
Mikilvægastir þessara þátta þegar
þarf að flytja töluð hljóð eru vöðvar
munnsins, gómurinn, varirnar og
tungan. Eina ástæðan til þess að við
getum „spilað" svona vel á þetta
hljóðfæri er sú, að við lærðum það
C
strax sem smábörn og höfum æft
okkur stöðugt síðan.
Auðvitað getum við ekki spilað ör-
ugglega á þetta „raddhljóðfæri"
nema að allir þættir þess vinni ná-
kvæmlega saman. Ef svo er ekki, kem-
ur það fram í tali okkar.
Stamið myndast ef eitt eða fleiri
þessara líffæra fær krampa. Fram-
burður orða stöðvast snögglega; það
myndast þögn, en henni fylgir svo oft
hröð endurtekning á því hljóði sem
átti að koma fram. Það þekkjast mörg
afbrigði af stami. Það getur verið
mjög vægt, þannig að menn eiga að-
eins erfitt með að bera fram vissa
bókstafi eða setningar, og það getur
verið svo slæmt að fleiri vöðvar í
tungu, kverkum og andliti herpist sam-
an í krampadráttum.
lítil egg ... 3 mín.
Meðal egg . .. 31/2 mín.
Stór egg . .. 4-41/2mín.
Takið eggin upp og látið þau andar-
tak í kalt vatn til þess að stöðva suð-
una. Harðsoðin egg:
Suðutíminn reiknast eftir því, hvernig
á að nota eggið. Meðal egg þarf að
sjóða í 12 mín. ef rauðan á alveg að
vera þurr, en 9 mín., ef rauðan má vera
ofurlítið blaut.
Kælið eggin strax vel í rennandi
vatni. Þá næst skurnið auðveldlega af
og ekki er hætta á, að dökk rönd komi í
kringum rauðuna.
Best er að geyma egg á svölum stað,
en ekki alveg við frost. Miklar hita-
sveifur eru ekki góðar fyrir eggið. Það
segir okkur, að höfum við á annað borð
sett eggið í ísskápinn, þá eigum við
ekki að færa það síðar til geymslu á
heitari stað.
Geymið eggin í eggjabakka með
mjórri endann niður á loftgóðum stað.
Góð egg eiga að vera lyktargóð, hvítan
á að vera seig og rauðan á að liggja í
miðju egginu.
Ný egg sökkva í 10% saltupplausn,
en gömul egg fljóta.
Stam kemur sjaldan fram fyrr en við
3-5 ára aldur. Barn getur byrjað að
stama vegna þess, að raunverulega
er eitthvað að einhverju líffæranna
sem beita þarf við að tala. En ástæðan
getur einnig verið tilfinningaleg trufl-
un.
Það er oft hægt að lækna stam með
því að veita þeim sem stamar kennslu í
að tala og lesa hægt og gætilega, og
að lesa hverja samstöfun mjög ná-
kvæmlega. Ef stam er af tilfinninga-
legum truflunum, verður hins vegar að
beita sálfræði- eða geðfræðilegum að-
ferðum.
^HVERS VEGNA STAMAR FOLK?
52