Æskan - 01.04.1984, Qupperneq 35
DRENGIRNIR MEÐ NETIN
fS'
1«&í
UfTE TH
§7 $ )
Te k A frrr D
/6
r 'e tt IO
21
rFrm t
i m \k
Þiö kannist öll við þessa sögu,
Þegar Jesús valdi lærisveinana.
Flestir þeirra voru fiskimenn og
stunduðu veiðimennsku á Gene-
saretvatni. Jesús sagði við læri-
sveinana, að hann vildi gera þá að
"rnannaveiðurum“, og það þykir
kannski mörgum ykkar skrítilega til
0rða tekið. Þetta þýðir, að læri-
sveinar Jesú, bæði þá og nú, eiga
að segja öðrum frá honum, og fá
menn til fylgis við hann. Tökum
dæmi: Ef þið reynið að fá með ykk-
Ur fólk, eða krakka í safnaðarstarf
~ sunnudagaskóla, eða starf sem
er unnið í anda Jesú, þá eruð þið
0rðin „mannaveiðarar." Við syngj-
Um oft í sunnudagaskólanum söng,
Sem er á þessa leið: „Ég vil gera
Vöur að :,: mannaveiðurum :,:
mannaveiðurum, ef þið fylgið mér.“
Jesús kenndi okkur, að Guð er
kærleiksríkur faðir okkar. Jesús er
°esti vinur og bróðir sem við nokk-
Urn tíma getum eignast. Hann vill
lejða okkur til Guðs. Jesús sagði:
”^g er Ijós heimsins, sá sem trúir á
mi9 og fyigir mér mun aldrei ganga
' myrkri, heldur hafa Ijós lífsins.“
Við viljum örugglega öll hafa Ijós
ífsins, það höfum við ef við fylgjum
Jesú.
Nú skuluð þið reyna að fylla út í
eVðurnar á myndinni af drengjun-
Um með netin. Talnastafrófið er
neðan við myndina. Og við viljum
öll verða mannaveiðarar fyrir Jesú.
Gangi ykkur vel.
Gleðilegt sumar.
Hrefna
Skrifaðu upphafsstafina þína í
auðu reitina,
Jesú sagði: FYLG MÉR. Luk. 5.
1-11
Finnið söguna í Biblíunni eða
Nýja Testamentinu.
1 =A, 2=B, 3=D, 4=E, 5=F, 6=G,
7=H, 8=1, 9=J, 10=K, 11=L, 12=
M, 13=N, 14=0, 15=P, 16=R,
17=S, 18=T, 19=U, 20=V, 21=Þ,
22=Æ, 23=Ö, 24=Y
EINS ERU: A+Á - E+É - l+í - 0+
Ó - U+Ú
Þeð var sunnudagur. Sólin skein
°9 Sigga litla sat við hlið mömmu
^lnnar á kirkjubekknum. Presturinn
afóði um kærleika Guðs. Og hann
alaði lika um, að við mennirnir,
eem erum Guðs börn, eigum að
'ytja þennan kærleika Guðs áfram
1 annarra, sem í kring um okkur
eru.
Sigga var alltaf að horfa á
lr^jugluggann og myndina af Pétri
postula í rúðunni. Hún var svo fín
og skær, þegar sólin skein í gegn-
um hana.
Allt í einu sagði Sigga við
mömmu sína: „Mamma, nú skil ég
hvað presturinn meinar, þegar
hann segir, að við eigum að flytja
kærleika Guðs til annarra. Kær-
leikur Guðs er eins og sólin, sem
skín í gegnum Pétur. Svoleiðis vill
hann, að kærleikurinn skíni í gegn-
um okkur til annarra".
Mamma hennar Siggu gat ekki
annað en þakkað henni fyrir skýr-
inguna, því hún hjálpaði henni einn-
ig til að skilja boðskapinn, sem
presturinn flutti þeim þennan
sunnudag.
Vers. Lag: Ó, hve dýrðleg er að sjá
Góði Guð, mér liður vel
mig ég þinni forsjón fel,
á mér, Guð minn, hafðu gætur,
annast þú mig daga og nætur.
Vertu öllum skjól og vörn,
blessa faðir öll þín börn.
H. T.
35