Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1984, Qupperneq 48

Æskan - 01.04.1984, Qupperneq 48
Poppgetraun Æskunnar Dregið hefur verið í Poppgetraun Æskunnar. Þau heppnu eru: Ása Líndal Hinriksdóttir, Hjarðarholti 17, 300 Akranesi; Linda Rut Benedikts- dóttir, Hlíðarbraut 4, 540 Blönduósi og Róbert Hafliðason, Mýrum 1, 450 Patreksfirði. Peim hafa verið send eintök af Poppbókinni - í fyrsta sæti.' Rétt svör við spurningunum voru þessi: 1. Hvað hét fyrsta hljómsveitin hans Bubba? Svar: Gúanóbandið. 2. í hvaða hljómsveit var Ragnhild- ur Gísladóttir áður en hún stofn- aði Grýlurnar? Svar: Brimkló. 3. Hvað hét handknúna hljóm- sveitin sem Egill Ólafsson var bassaleikari í? Svar: Spilverk Þjóðanna. 4. Hvað heitir Megas réttu nafni? Svar: Magnús Þór Jónsson. 5. Hjá hvaða blöðum er hljóm- borðsleikarinn Árni Daníel blaðamaður? Svar: Vikunni og DV. Það er kannski rétt að geta þess að Árni Daníel er ekki lengur blaða- maður hjá DV. Um mánaðamótin febrúar/mars færði hann sig yfir til dagblaðsins Tímans. Og fyrst við erum að tala um Árna Daníel þá sakar ekki að geta þess að hann er að endurreisa rokksveitina ágætu Taugadeildina. Við skýrum vænt- anlega nánar frá framvindu þeirra mála síðar. ( PLÖTUR íkarus í fyrrasumar söng Tolli (bróðir Bubba) inn á Ijómandi skemmtilega plötu, The Boys from Chicago. Honum til aðstoðar var rokksveitin íkarus. Nú er íkarusvagninn aftur kominn á fulla ferð. Plata, sam- nefnd hljómsveitinni, er væntanleg á markað síðar í vor. Á plötunni skipta þeir Tolli, Bragi Ólafsson bassaleikari og meistari Megas söngnum bróðurlega á milli sín. Sem fyrr er músíkin hrátt og pönk- Tolli, einn af þrem söngvurum hljómsveitarinnar ÍKARUSAR. að rokk. Að þessu sinni má greina sterk áhrif frá Gang of Four og Rol- ling Stones í mörgum laganna. Lindsay Cooper Breski kvenskörungurinn og ís- landsvinurinn Lindsay Cooper er að senda frá sér sína aðra sóló- plötu, The Gold Diggers, um þess- ar mundir. Platan er að hluta til unnin hérlendis. Á henni spilar Lindsay Cooper m. a. hugljúfa pí- anóballöðu sem hún tileinkar ls- landi. í öðrum lögum plötunnarspil- ar Lindsay einnig á gítar, óbó, bás- únu og saxófón. Lögin eru afar fjöl- breytt að stíl. í þeim má m. a. greina popp, djass, rokk, vals, syn- fónískar tilhneigingar o. m. fl. Jimmy Cliff Á síðustu vikum hafa nokkur laga jamaíska blökkusöngvarans Jimmý Cliffs tröllriðið óskalagaþáttum hljóðvarpsins, diskótekum o. s. frv- Sérstaklega á þetta við um lögih Many Rivers to Cross, Reggae Night, We All are One og Roots Woman. Fyrstnefnda lagið er vin- sælast í meðförum bresku reggí" sveitarinnar UB40 en síðarnefndu lögin þrjú eru sungin af Jimmy sjálf- um. Many Rivers to Cross er að finna á Ubba-plötunni Laibour of Love (ásamt Red, Red Wine og Keep on Moving) en hin lögin eru öll á nýjustu plötu Jimmys, Povver and the Glory. Mark Hollander Belgískir popparar eru ekki áber- andi á vestræna popprnarkaðinum. Þó hefur vinsælasti hljómborðs- leikari Belga, Mark Hollander, náð að vekja á sér athygli í Bretlandi og víðar. Á nýjustu plötu sinni, Once Dances, sýnir Mark líka og sannar að hann er allrar athygli verður. Þar spilar hann létt tölvupopp á bæð1 fjölskrúðugan og allt að því ferskan máta. 48 UMSJON JENS GUÐMUNDSSON

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.