Æskan

Volume

Æskan - 01.09.1985, Page 5

Æskan - 01.09.1985, Page 5
Reynir Pétur í Öxnadal í Eyjafirði. Skagfirskir feðgar á ferðalagi hcilsuðu upp á göngugarpinn. fagna göngugarpnum að ReynirPétur uæri orðinn einn skemmtilegasti mað- ur landsins. Og það uar hann suo sannarlega! Nú í haust kemur út bók um göngu- afrek Reynis Péturs. Eðuarð Ingólfs- son skráði hana. Æskan fékk leyfi til að birta útdrátt úr henni. Við grípum hér niður í einn kafla bókarinnar. ?? Guð hjálpi þér!“ að spekúlera í því að næst þegar ég labba íslandshringinn ætti ég endi- lega að bjóða þér með. Ómar: Jæja, Reynir minn, sjáum nú til með það. En þessi athöfn hér verður ekki löng. Hún hefst á því að Davíð Oddsson borgarstjóri ávarpar Þ'g- Davíð: Það er með mikilli ánægju og gleði sem við Reykvíkingar og Reykjavíkurborg fögnum hér í hjarta borgarinnar þessum mikla göngu- garpi sem gengur í þágu jafngóðs málefnis. Hann sagði að landið væri paradís og það tökum við undir. En sjálfir lítum við auðvitað þannig á að í þessu góða veðri sé hann kominn hingað í hjarta Paradísar, í Eden- lund. Við fögnum þeirri baráttu sem hann stendur í fyrir hönd sinna með þeim hætti sem hann gerir það. Það er ekki bara um að ræða einstætt afrek sem þú ert að vinna hér heldur hefur þú einnig náð hug og hjarta allra landsmanna með þinni einlægu, góðu og skemmtilegu framkomu. Og þú ert orðinn einn skemmtilegasti maður landsins. Svo varstu svo góð- ur rétt áðan að bjóðast til þess að hafa nýjan þátt með honum Ómari til að auglýsa hann upp. Hlátur og lófaklapp. Ég ætla næst að lesa hérna upp lítið bréf: „Hr. Reynir Pétur Ingvarsson, Sólheimum, Grímsnesi. I tilefni af gönguafreki yðar og fjársöfnun til styrktar íþróttahúsi að Sólheimum í Grímsnesi hefur Reykjavíkurborg f.h. Reykvíkinga ákveðið að veita yður kr. 250.000 til söfnunarinnar." Maður verður að fara varlega í útreikningum því að þeir sem sáu sjónvarpsþáttinn á dögunum vita að maður verður fljótt leiðréttur ef farið er vitlaust með. En ef þetta er vit- laust þá er það ekki mér að kenna heldur tölvunni. Hún segir að það séu 1417 km hringinn í kringum land- ið og að borgarbúar færi þér 177.17 aura á hvern kílómetra eða 250.000 og borgarbúar voru 1. desember síð- astliðinn 88.745 þannig að þetta eru 2 kr 81,71 eyrir á hvern borgarbúa. Njóttu vel!“ Næstur tekur til máls Benedikt Blöndal, formaður Rauða kross ís- lands, og afhendir Reyni Pétri 150.000 kr frá Rauða krossinum. Fleiri gjafir streyma að, blóm, pen- ingar, skór, galli og fullur baukur af peningum frá starfsfólki Iðnaðar- bankans. — Hann er bara saddur, segir Reynir Pétur þegar hann tekur við bauknum. - Og þú ert búinn að vera saddur mest allan tímann, segir Ómar. Reynir ræskir sig: Nei, maður reynir nú að passa sig að vera ekki of saddur svo að maður sprengi ekki á , sig gat. [ 5

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.