Æskan

Árgangur

Æskan - 01.09.1985, Síða 41

Æskan - 01.09.1985, Síða 41
langstærsta gjöfin, hún var meira að segja miklu stærri en sjálft jólatré gömlu hjónanna. Það mætti segja mér, hugsaði litla ryksugan, að inn á þetta litla, fallega heimili hafi aldrei komið eins stór jólapakki. Og það var alveg rétt hjá henni. Gömlu hjónin höfðu nefnilega alltaf vitað að gleði og gæði jólagjafa fara alls ekki eftir stærð eða verði þeirra. Þegar hjónin voru búin að borða og hjálpast að við að þvo upp diskana, hnífapörin, pottana og glösin settust þau, sæl á svip í stólana sína rétt hjá jólatrénu. Hvað er þetta! hrópaði konan upp yfir sig. Hvaða ógnarstóri böggull er allt í einu kominn hér inn í stofu? Hann hlýtur að eiga að fara í annað hús! Lestu bara á miðann sem við hann hangir, sagði maðurinn brosandi. Eftir gleðihróp og marga kossa sátu gömlu hjónin himinlifandi yfir nýju ryksugunni sinni. En ennþá fékk ryksugan litla ekki agnarögn að borða. Það var ósköp eðlilegt því að á sjálfum jólunum er ekkert að hafa á gólfunum af því sem ryksugum þykir best. Þetta voru mikil vonbrigði fyrir litlu, rauðu ryksuguna.

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.