Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1986, Blaðsíða 22

Æskan - 01.03.1986, Blaðsíða 22
HLJÓMSVEITAKYNNING The Smiths Hljómsveitin The Smiths varð til þegar hinn snjalli gítarleikari Johnny Marr dró nærsýna grænmetisætu, Morrissey, fram úr fylgsni sínu í fátækrahverfinu Whalley Range í Manchester þar sem hann lifði munklífi með foreldrum sínum og heildar- útgáfu á verkum Oscars Wilde ásamt einu sjónvarpstæki og James Dean myndum á veggjum. Ætlun Johnny Marr var að setja á lagg- irnar hljómsveit sem spilaði tónlist sem væri frábrugðin þeirri sem „tyggigúmmí- hljómsveitirnar“ leika og komast ofarlega á lista í Bretlandi og víðar. Með því að steypa saman tónsmíðum Marrs og ljóðum Morrisseys átti að mynda nýtt „tónmál" en jafnframt hafa hugfast að gera tónlistina ekki of fjarlæga venjulegu verkafólki eða of innhverfa til að skiljast. Til að fullkomna áætlunina fengu tvímenningarn- ir til iiðs við sig bassaleikarann Andy Ro- urke og trommuleikarann Mike Joyce sem var sá eini þeirra sem nokkuð hafði fengist við að spila í alvöru. The Smiths kom fyrst fram opinberlega í september 1982 og lék síðan á ýmsum stöð- um. Það leið ekki á löngu þar til hljóm- plötuútgáfan Rough Trade bauð þeim fé- lögum samning til langs tíma og var það í fyrsta skipti sem hún gerði slíkan samning við nokkra hljómsveit. Fyrsta plata The Smiths var lítil og kom út í maí 1983. Hún nefndist Hand in Glo- ve/Handsome Devil. Félagarnir réðu svo til sín nýjan upptökustjóra, John Porter, og aðstoðaði hann þá við gerð næstu plötu Hún var leikin talsvert mikið í útvarpi. í kjölfar hennar fylgdu hljómleikar. Lagið This Charming Man var kjörið óvæntasta smelllag ársins 1983. Par með höfðu The Smiths öðlast þjóðarathygli. Fyrri hluti ársins 1984 var mikil sigur- ganga fyrir The Smiths. Piltarnir fóru í sex vikna hljómleikaferð um Bretland og svo sendu þeir frá sér nýtt lag. What Differ- ence Does, sem komst hæst í 12. sæti al- menna vinsældalistans. Samtímis því komst fyrsta LP-plata The Smiths, en hún var einfaldlega skírð í höfuð hljómsveitar- innar, í annað sæti og hefur síðan unnið til gullverðlauna. f apríl 1984 tókst samstarf með The Smiths og hinni gamalkunnu söngkonu sjöunda áratugarins, Sandy Shaw, og þá kom út lítil plata með lögun- um Hand in Glove og I Don‘t Owe You Anything. Félagarnir f The Smiths eru lítið hrifnir af hljóðgervlum og öðru „nútímadóti“ og lýsir það sér í því að þeir láta ekki gera myndband við tóniist sína. Að þeirra áliú verður tónlistin og textarnir að tala sínu máli. Áheyrendur að eiga hlutdeild í lög' unum og því lítið vit í að gera Skonrokks- þætti á strönd Hawai eða á toppi Keops- pýramídans. Það er ekki sú veröld sem vonlaus og atvinnulaus borgarlýðurinn í Bretlandi þekkir. Og nú í ár er komin út þriðja LP-plata The Smiths, Meat is Murder, eða Kjöt er dráp og er það í samræmi við lífsskoðun grænmetisætunnar Morrisseys. Að vísu hefur hann sagt að tónlist eigi ekki að kafna í pólitískum upphrópunum eins og lengi hefur Ioðað við vitræna tónlist, sér- staklega pönkið. Hins vegar eigi að koma fram skoðunum sínum á listrænan hátt en ekki með slíkum látum að allir skelfist. Pá eruð þið nokkru nær um hljóm- sveitina The Smiths sem prýðir veggmyno ina okkar að þessu sinni. Að síðustu má geta þess að allir meðlimir sveitarinnar efu bindindismenn, bæði á tóbak og áfengi- 22
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.