Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1986, Blaðsíða 32

Æskan - 01.03.1986, Blaðsíða 32
OG KRAKKARNIR í ÓRALANDI Eftir fjóra daga fékk hann að fara heim. Hann átti að liggja og hafa hægt um sig. Fyrsta kastið var hann svo máttfarinn að hann svaf næstum allan sólarhringinn. Það var að minnsta kosti álit mömmu hans. En í raun og veru var hann á sífelldum þönum með Evu og Agna. Þau hurfu þó annað veifið. Þá voru þau að hlaða sig orku. Það fór fram á þann hátt að þau sofn- uðu og á meðan endurnærðust þau. Þegar þau risu upp sögðust þau vera södd en áttu við að þau væru full af fjöri. Þau vissu ekki hvað matur var og kunnu ekki að borða. En þið eruð með munn og tennur, sagði Manni. Til hvers? Heldurðu við þurfum ekki að anda? spurði Agni. Og svo til að kyssa, góði. Manni roðnaði upp í hársrætur. En maga? áræddi hann að spyrja í trausti þess að ekki væri hægt að hanka hann á spurningunni. Maga? át Agni eftir honum. Hvað er nú það? Magi, stamaði Manni, það er svona... poki... innan í okkur sem maturinn fer í. Poki, endurtók Agni hlæjandi, þú getur reitt þig á að við erum engin pokadýr. En... eruð þið þá heldur ekki með...? Hann þagnaði og roðnaði enn meir. Hann hafði nefnilega haldið áfram sama þankagangi: borða matinn, melta fæðuna, losna við úrganginn. En þegar til kom var honum ómögulegt að nefna líffærin sínum réttu nöfnum í viðurvist Evu. Hann gleymdi að þau gátu lesið hugsanir hans. Jú jú, sagði Agni, þú ert nú meiri kjáninn. En til hvers? spurði Manni. Þarf maður að tyggja allt í þig? spurði Agni. Geturðu ekki lesið það ef ég hugsa það? Manni reyndi. En hann var jafnnær. Nei, viðurkenndi hann, það tekst ekki. Þar fór í verra, sagði Agni alvar- legur í bragði. Við getum nefnilega ekki útskýrt það öðruvísi en í hugan- um, við eigum ekki orð til þess. Það er til þess við missum ekki flugið. í gamla daga gátu krakkarnir í Óralandi sagt allt sem þeim datt í hug. Og fullorðna fólkið að sjálfsögðu líka. Því var trúað fyrir þessari gáfu. En svo fóru allir að nota málið til að velta sér upp úr óhreinum orðum. Óhrein eru orðin sem verka hvetjandi á fýsnir og dreifa ljótum hugsunum. Þeir gleymdu að það er hreinleiki hugarfarsins sem gerði þá létta. Þegar siðgæðið var farið veg allrar veraldar urðu þeir svo þung- ir að þeir misstu flugið. Þá sáu menn að sér og gleymdu óhreinu orðunum. Þess vegna getum við nú flogið aftur. Svo þú sérð hvers virði það er að íþyngja sér ekki með illum hugrenn- ingum eða fúkyrðum. Hvort tveggja hangir nefnilega utan á manni eins og blýlóð. Manni var dágóða stund að melta þetta. Agni varð þess var. Sjáðu til, sagði hann, þú ert hrifinn af Evu. Hún er, í huga þínum og í raun, hátt hafin yfir allan sora. Þess vegna gastu ekki tekið þér gróf orð 1 munn. Sem er allt annað en pempíU' skapur. Manni varð svo feginn að hann gnt áreynslulaust vikið öllum heilabrotun1 frá sér. Nú skulum við fara í ævintýraleit, sagði Eva og tók í höndina á Manna- Komdu Agni, hann er áreiðanlega orðinn laufléttur. Þetta þótti Manna gaman að heyra- Hann spurði Evu hvort hún teldi að hann gæti flogið upp á eigin spýtur en það aftók hún með öllu. Til reynslu slepptu þau af honum höndunum og a sama andartaki fór hann að síga. Þau voru því ekki sein á sér að grípa hann aftur. Þau svifu góða stund. Manni áttaði sig fyrst þegar hann sá að þau voru komin yfir fótboltavöllinn á Franskatúni. Fyrir löngu hafði Franski-Gústi heyjað á þessum slóð' um og síðan voru þær alltaf kenndar við hann. Nú var hann dáinn en sonur hans, Franski-Pétur, bjó í gamla hus- inu. Hann átti í sífelldum erjum við krakkana af því þau misstu stundum boltann sinn inn í garðinn hans. Ho ho, sagði Manni, spila þeir ekk' glannalega? Honum sýndist knattspyrnuliðið 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.