Æskan - 01.03.1986, Síða 46
ERTU MEÐ? I IÍT I
Umsjón: GUNNAR INGIMUNDARSON, ÓLAFUR JÓHANNSS^
Flest erum við hvítvoðungar í vöggu skírð til krist-
innar trúar. Hvaða gildi hefur það fyrir okkur í nútíð
og framtíð?
Skírn
í skírninni erum við
helguð Guði föður,
Heilögum anda, sem
einnig er nefndur
huggarinn, og Jesú
Kristi, Guðssyninum.
Að vera helgaður
einhverjum, er að til-
heyra honum. Eftir
að við erum skírð
erum við Guðs.
Hjólið og ég
Tökum smá dæmi til útskýringar: Ég á hjól. Það
tilheyrir mér. Þess vegna fer ég vel með það og gæti
þess vel. Ef hjólið gæti talað þakkaði það mér fyrir
alla umhyggjuna. Og það gleddi mig enn meir.
Fjölskyldan og ég
Þar eð við erum fremri hjólinu getum við þakkað
velgjörðir sem fyrir okkur eru bornar. Og þar eð við
tilheyrum fjölskyldu okkar ræktum við skipti okkar
við hana. Ef við vanrækjum það eigum við á hættu að
fjarlægjast þann eða þau sem við höfum átt góðar
stundir með.
Guð og ég og bænaversin
Eins er því varið með samfélag okkar við Guð en þa
eignumst við í skírninni. Við verðum að rækta og h|lU’
að því samfélagi. Annars eigum við á hættu að týf1’
Guði.
Sem börn lærum við bænavers af foreldrum og
um afa og ömmu. Við förum með versin áður
leggjumst til svefns á kvöldin. Sum þeirra grópast s'1
fast í huga okkar að við kunnum þau jafnvel utan
bókar alla ævi.
stund'
en vi*
Vertu, Guð faðir,
faðir minn
í frelsarans Jesú
nafni.
Hönd þín leiði mig út
og inn
svo allri synd ég
hafni.
kristilegí barna- og ungl-
ingastarf:
Er við stækkum tökum við mörg hver þátt í kristile£l’
barna- og unglingastarfi. Þar fáum við að heyra sögu
úr Biblíunni um Guð, syngjum skemmtilega söngvjj
og stundum er þar farið í leiki. Við lærum líka a(
46
VERTl