Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1987, Blaðsíða 5

Æskan - 01.05.1987, Blaðsíða 5
„Ég hef bara difið í því sjálf...“ Ragnheiður Runólfsdóttir er í hópi þess efnilega, unga fólks sem skipar landslið okkar í sundi. Hi'in hefur sett hvert Islandsmetið á fœtur öðru og var kosin besta sundkonan á alþjóðlegu móti í Aberdeen í Skotlandi í apríl. Þegar þetta er ritað á hún öll Islandsmetin í bringu-og baksundsgreinum og fjórsundi. Okkur lék hugur á að forvitnast um feril Ragnheiðar — en ekki reyndist auðvelt að finna tíma fyrir viðtal. Þannig hefur raunar verið um fleiri af viðmælendum okkar. Það er margt önnum kafið fólk. Ragnheið- ur var í próflestri auk erfiðra æfinga og lauk prófum síðan á nokkrum dögum þar sem fyrir dyrum stóð ferð á „Litlu-Olympíuleikana í Món- akkó. Endirinn var sá að við töluð- um saman í síma kvöldið áður en hún fór þangað. Ragnheiður er tvítug; „Skaga- maður í húð og hár.“ segir hún — en þó er langt frá því að hún hafi dvalist stöðugt þar í bæ. í vetur stundar hún nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja og áður hafði hún verið við nám og æfingar í Svíþjóð og Kanada. „Hér er svo vel búið að fólki, sem vill æfa sund, og frábær þjálfari," svarar hún spurningu um hvers vegna hún sé nú á Suðurnesjum. Augljóst er að mikið þarf til að ná þeim árangri sem Ragnheiður getur státað af. En hve oft í viku og hve lengi í senn æfir hún? Allt að 30 stundir á viku „Lengst af 6 daga í viku, jafnvel 5 stundir á dag. Við Eðvarð (Þór Eð.- varðsson — sjá 6. tbl. Æskunnar 1986) æfum saman eftir áætlun sem Friðrik Ólafsson hefur samið fyrir okkur.“ hófct ^.Ve götnul varstu þegar þú i æflngar af alvöru? hef ®fVar skráð í félagið átta ára en aldri^E re8lulega frá fjórtán ára en a æföi ýmislegt annað áður ^iesM Sner' mer alve8 að sundinu, knat. lan(fknattleik og honum næst Ja í Spyrnu- by'rii lfarar vilJa &Íarna aö krakkar •andcrA^ að æfa °§ félagar mínir > 'öinu hafa margir gert það.“ nárns^n llvers vegna fórstu utan til ferð ^ ^ alltaf baft löngun til að Hei3St kynnast öðrum þjóðum. aðst a ^ ^kranesi var ekki nógu góð KeaA 1,1 æfinga °g ég vildi fara snnAu° sem ég gæti einbeitt mér að UfMfun auk námsins. hejr-Vlrjöð var ég eitt og hálft ár í tj] d avistarskóla sem aðeins tók við skíðValar þeim sem æfðu sund og krisn rÓttir- Skólastarfið var mjög í ar';egUnt anda og við fórum þrisv- J4.é?UíkaP* lú v 6r trnud en þaö getur maður sv0nerið Þó að ekki sé farið alveg g a oft til guðsþjónustu! Sagð1 u ^ SV° bálft ar hér heima. Þá land f?afþór Guðmundsson fyrrum úin„! lðsþjálfari mér frá skóla í Ed- °n- Hann hafði lært í Kanada þjálfarann við skólann. lfa Mkti h)-j0n mælti mjög með honum. Ég SapA^ 1 beint í þjálfarann og hann v.&Ul mpr «-»A 1_ aHtaf ei' Það var ekkert mál. Ég sjálf Veriö svona- Bara drifiðíþe fé^r.fér mikið fram í Kanada. Ég luRsJ^alÍlsögn og var í ágætum fé- þVf QkaP' Ég held að ég búi enn að Urrj ^.þaö komi fram í sundmótun- n°kknUna' Árangurinn kemur oft j j,ru eftir erfiðar æfingar. ar tj| anada eru háar fjárhæðir veitt- einb .'þfóttamála. Krakkarnir geta þvf e.ltf sér stöðugt að æfingum af aitna þau vinna ekkert á milli skóla- mér að koma. hef þessu Óvenjuleg heimilisdýr Ég bjó hjá efnaðri fjölskyldu. Hún átti setur með sundlaug og stórri lóð. Börnin eru tvö, annað stúlka á aldur við mig. Hún æfði líka sund en ekki í sama flokki og ég. Fjölskyldan hélt mörg heimilis- dýr. Sum þætti okkur ef til vill óvenjuleg. Þar voru tveir hundar, tveir kettir, fjórar kanínur, fuglar, skjaldbökur og slöngur. Dýrin voru öll alin upp saman — í góðu sam- komulagi. Mér var nú ekki beinlínis um það þegar slöngurnar skriðu fyrst upp í rúm hjá mér. Þær eru í búrum en þau eru opin og þeim verður stundum kalt á nóttinni, greyjunum. En þetta var ekkert mál í lokin. Þær eru auð- vitað ekki eitraðar og bara svona meðalstórar.“ Mér þótti þetta jafnforvitnilegt og ég býst við að ykkur þyki og spurði Ragnheiði hvort hún ætti ekki mynd af sér með slöngu í fangi. „Nei, það var ómögulegt að taka mynd af þeim. Þeim er illa við leift- urljósið og snöggar að forða sér ef myndavél er brugðið upp. Skjaldbökurnar eru lengst af í vatni en fara í sólbað annað veifið til að herða skelina. Þær vildu þá stund- um liggja á bókunum og lesa með mér!“ Helgar sig æfingum En nú ætlar Ragnheiður æfa hér- lendis. Hún fékk það nám, sem hún stundaði erlendis, metið til stiga og stefnir að því að ljúka stúdentsprófi fyrir næstu jól. Þegar ég spyr um framtíðaráætlanir kveðst hún ætla að helga sig æfingum fram að Ól- ympíuleikunum í Seúl 1988. Eftir það hyggst hún leggja stund á nám í íþróttasálfræði — til undirbúnings þjálfarastarfi. „Nei, það eru engin sérstök skil- yrði sett fyrir því starfi. Friðrik, þjálfarinn okkar, er til að mynda múrari. En hann hefur lesið óhemju mikið um þjálfunaraðferðir og fylg- ist mjög vel með. Hann er ofsalega áhugasamur.“ — Gerir þú ráð fyrir að æfa og keppa mörg ár enn? „Ég er alveg ákveðin í því að halda áfram. Ég hef gífurlegan áhuga. Jú, maður verður einstaka sinnum þreyttur og getur orðið leiður ef ekki gengur eins vel og stefnt er að. En það þýðir ekki annað en að hafa sig upp úr því og sigrast á letinni,“ segir Ragnheiður hressilega. Hún ætti ekki að þurfa að berjast við leiða og leti þessa dagana eftir þær fréttir sem berast af góðum ár- angri hennar í keppninni í Mónakkó — einmitt þegar ég er að skrifa þessar línur. Félagar hennar standa sig líka mjög vel. Við Eddi óskum þeim öllum góðs gengis — fyrir hönd lesenda blaðsins. Æfingabúöir? Ég talaði einnig við Friðrik þjálf- ara til að fá nánari lýsingar á æfing- unum en fram komu í tali okkar Rajgnheiðar. I vetur syntu Ragnheiður og Eð- varð á morgnana frá kl. 6-8 og aft- ur í tvær til tvær og hálfa klukku- stund síðari hluta dags. Þrekæfingar stunda þau í 45 mínútur í senn. Morgunæfingar hafa þó ekki verið hvern einasta dag. Það skiptir miklu fyrir þá sem leggja svo mikið á sig að vera ekki einir við æfingar. Þær eru afar þreyt- andi og geta orðið leiðigjarnar. Eð- varð og Ragnheiður synda að mestu sömu vegalengdir og því hentar vel 4 „Ég er alveg ákveðin í því að halda áfram. Ég hef gífurlegan áhuga.“ 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.