Æskan - 01.05.1987, Blaðsíða 41
Hafdís Ásgeirsdóttir (2), Hafdís
Gunnarsdóttir, Edda Bergmann og
Anna Geirsdóttir) fengið silfurverð-
laun (Halldór Guðbergsson) og
bronsverðlaun (Halldór og Rúnar
Halldórsson) á heimsleikum fatl-
aðra barna og unglinga 1986, hlotið
silfurpening á Evrópumeistaramóti
í frjálsum íþróttum (Haukur Gunn-
arsson í 100 og 400 m hlaupi) og unn-
ið til 5 gullverðlauna. 10 silfurverð-
launa og 10 bronsverðlauna á Norð-
urlandamóti fatlaðra í sundi 1987.
Hér má líka nefna að íslendingar
sigruðu glæsilega í norrænni trimm-
landskeppni fyrir fatlaða 1985. Það
var þriðji sigurinn í þeirri keppni.
1981 og 1983 bar okkar fólk einnig af.
Fötlun er margs konar og á mis-
jöfnu stigi. Erlendis keppa þeir jafn-
an innbyrðis sem sams konar fötlun
háir. Hér á landi keppa oft á sama
móti hreyfihamlaðir, blindir og sjón-
skertir og þroskaheftir. Svo er til að
mynda á sundmótum. Árangur er
metinn samkvæmt stigatöflu sem
reiknuð hefur verið fyrir hverja teg-
und fötlunar. Sigurvegari mótsins er
því ekki alltaf sá sem besta tímanum
nær heldur sá sem flest stig hlýtur
samkvæmt þessari töflu.
ferðamönnunum því að þeir gátu
ekki setið uppréttir í bátnum. Þrátt
fyrir það voru þeir samtaka öðrum í
áratogi eins og best varð á kosið.
Erlingur Thoroddsen, formaður
Nýja ferðaklúbbsins, sagði í blaða-
viðtali að fötluðu leiðangursmenn-
irnir hefðu ekki verið verri „sjó-
menn“ en margir aðrir sem í bátana
hefðu komið.
„Það er ótrúlegt hvað þau eru fær
um bjarga sér sjálf og hvað hvað þau
hafa mikið hugrekki og kraft,“ sagði
Erlingur um hið fatlaða fólk.
Fólkið var þreytt en ákaflega sælt
þegar heim var snúið — en þó ekki
þreyttara en svo að nokkrir ætluðu
að taka þátt í aksturskeppni á hjóla-
stólum í Laugardalshöllinni daginn
eftir. Meðal þeirra var Reynir
Kristófersson sem sigraði í keppn-
inni.
^unnarsson sigrar
HBimsmet!
V>ð höfum oft dáðst að góðum ár-
angn íþróttamanna sem keppt hafa á
alPjóðamótum og nöfn margra
Peirra
undanúrslitum á Evrópmeistaramóti fatlaðra
höf,
eru okkur töm á tungu. En
urn við tekið eftir hve langt fatl-
aðir íþróttamenn hafa náð? Þeir
hafa sett heimsmet (Jónas Óskars-
son 1985), fengið silfurverðlaun á
Ólympíuleikum (Jónas og Sigrún
Pétursdóttir 1984) og bronsverðlaun
á sama móti (Sigrún, Oddný Óttars-
dóttir, Haukur Gunnarsson (2),
41