Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1987, Blaðsíða 23

Æskan - 01.05.1987, Blaðsíða 23
r ; á k. —iii — Þrír hljómborðsleikarar — hvernig reynist það? „Það gengur með afbrigðum vel. Við erum mjög stoltir af því.“ Þegar talað er í síma er maður ekki alltaf viss um hvernig á að taka það sem sagt er. Stundum er nauð- synlegt að sjá svipinn líka. Ég ræð ekki alveg í tóninn en svarið gefur mér tilefni til að rifja upp söguna um manninn sem spurði hvorir væru betri með sig, Skagfirðingar eða Húnvetningar en var svarað að það væru Þingeyingar. Sjálfsagt er sagan til í mörgum mvndum og sýslunum víxlað að vild. Eg Húnvetningurinn fer ekki frekar út í þá sálma. En eftir samtalið þykist ég hafa skynjað að þetta séu fremur hógværir piltar þó að þeir beri sig vel eins og vera ber! — Tónlistarsmekkur? „Hann er svipaður hjá okkur öll- um. Það má segja að við séum alætur á tónlist. Já, við vorum í tónlistarskóla og gerðum heiðarlegar tilraunir á því sviði en hættum svo vegna tímaleys- is. Við Árni Þór byrjuðum sjö ára en hinir aðeins eldri en við,“ segir Karl. Eftirlætishljómsveitir? „Stuðmenn eru númer eitt, tvö og þrjú. Ég held að við nefnum ekki aðra. Nei, engin sérstök erlend hljóm- sveit, að minnsta kosti engin sem við erum á einu máli um.“ Alltaf fylgt okkar eigin línu — Hafið þið tekið ykkur ein- hverja hljómlistarmenn til fyrir- myndar umfram aðra? „Nei, við teljum að við höfum allt- af fylgt þeirri línu sem við höfum skapað sjálfir. En raunar er aldrei hægt að sverja fyrir að þeir sem mað- ur hrífst af hafi einhver áhrif.. Ég spyr hvernig þeirri „línu“ verði best lýst en kemst litlu nær því en það að þetta sé „þeirra eigin lína“ og að hún sé mjög langt frá pönki. — Hafið þið áður tekið þátt í keppni sem þessari? „Fyrir „löngu,“ þegar SATT (Samband alþýðutónskálda og tón- listarmanna) stóð fyrir Músíktil- raunum, vorum við með. Pá hétum við Bad boys (Slæmir strákar). Nei, við vorum ekkert pönkaðri þá þó að nafnið hljómi kannski þannig. Við höfum alltaf verið sömu yndis- legu strákarnir." — Hafið þið komið oft og víða fram? „Frá því í fyrrahaust höfum við leikið á almennum dansleikjum, all- víða, en áður á unglingadansleikjum og viðburðum („uppákomum“).“ Hljómplata í sumar — Fiamtíðaráætlanir? „Áætlanir gerum við aðeins til skamms tíma. í sumar munum við leika á ýmsum stöðum, m.a. á Bind- indismótinu í Galtalækjarskógi um verslunarmannahelgina, og hljóð- rita lög til útgáfu á plötu. Annað er ekki að segja að svo komnu nema við ætlum okkur að komast í fremstu röð...“ — Verða ykkar eigin tónsmíðar á hljómplötunni? „Já, við höfum leikið okkar eigin lög — með öðru — frá því að við byrjuðum. Við höfum bara ekki fengið tækifæri til að koma þeim á framfæri fyrr en núna. Á plötunni verða a.m.k. sex lög. Annars má bæta því við að við höfum samið söngleik; flest lög og textar eru fullmótuð. Okkur dreym- ir að sjálfsögðu um að setja hann á svið. Hann fjallar um feiminn strák myndbandssjúkra foreldra og sæta stelpu, dóttur vinafólks þeirra. Það er mjög létt yfir þessu. Já, sennilega verða það nemendur Fjölbrautaskólans sem flytja söng- leikinn en það er þó óráðið enn. Krakkarnir eru ekki algerir byrjend- ur í slíku. Þegar við félagarnir vorum í 9. bekk var söngleikurinn Grettir fluttur af nemendum grunnskólans í 7.-9. bekk. Við sáum um hljómlist- ina og Kristján lék Glám.“ Pá erum við nokkru nær um strákana í Metan. En við bíðum auðvitað í ofvæni eftir að heyra í þeim. Skagfirðingar og nágrannar njóta nálægðarinnar — við hin verðum að bíða um sinn. Raunar hitti ég þá í Galtalæk — ásamt þúsundunum þar. Kannski þú líka, lesandi góður? 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.