Æskan - 01.05.1987, Blaðsíða 46
Mér eru enn í fersku minni áhrifin
sem ég varð þar fyrir gagnvart
áfengi. Þangað hygg ég að megi
rekja rætur þess að ég tamdi mér það
að vera bindindismaður. Ég man að
ég leit upp til eldri félaga minna í
stúkunni og fylgdist vel með starfi
þeirra á stúkufundum. Annar félags-
skapur studdi mig í þessum góða
ásetningi. Það var skátafélagið Ein-
herjar. Það samræmdist ekki skáta-
félagsskapnum að drekka áfengi.“
Fundirnir
verða oft langir
Barnastúkan Fjallarós nr. 145 fagn-
aði 30 ára afmæli með fundi í fyrra-
haust. Auk venjulegra fundarstarfa
var spilað bingó og dansflokkurinn
Svörtu ekkjurnar úr Reykjavík
sýndi. Kristinn Vilhjálmsson stór-
gæslumaður flutti ávarp og færði
stúkunni peningagjöf fyrir hönd
Unglingareglunnar. Að lokum var
sest að góðum veitingum.
Stúkan starfar í Seljalandsskóla
undir Eyjafjöllum. í bréfi gæslu-
manns stúkunnar, Rósu Aðalsteins-
dóttur á Stóru-Mörk, til blaðsins
segir m.a.:
„Stúkan var stofnuð 9. mars 1986
og varð því 30 ára á síðasta ári. Ekki
eru lengur til tölur um félagafjölda
fyrstu árin en þegar núverandi
gæslumaður tók við stúkunni haust-
ið 1965 voru félagar 48 að tölu. Stúk-
an starfaði þá í tveimur deildum,
„austan-deild“ og „vestan-deild“.
Þetta kom til af því að á þeim árum
var kennslufyrirkomulag í skólanum
þannig að börnin komu aðeins ann-
an hvorn dag í skólann — annan
daginn börnin sem áttu heima aust-
an við skólann en hinn daginn þau
sem áttu heima vestar í sveitinni. Þar
sem fundir voru haldnir eftir skóla-
tíma varð að hafa tvær deildir. Þetta
breyttist með breyttum kennsluhátt-
um 1967 og síðan hefur stúkan starf-
að í einu lagi. Börnum hefur fækkað
í sveitinni frá því er var og nú eru fé-
lagar 22.
Stúkan starfar þó enn af miklum
krafti. Fundirnir vilja oft verða lang-
ir því að auk venjulegra fundarstarfa
og fræðslu um bindindismál sjá
börnin um skemmtiatriði, oft frum-
samin leikrit, spurningakeppni.
tískusýningar og margt fleira. Un '
anfarin ár hafa diskódansar ven
meðal atriða og ekki minnkaði áhug
inn á því er Kristinn kom með dans
flokkinn á afmælisfundinn.
Enn er ótalinn einn þáttur í star j
stúkunnar en það eru ferðirnar a
vormót barnastúkna í Galtalækjar'
skógi. Margir af þeim sem fóru 1
fyrstu ferðirnar eru nú hátt á þrítugs-
aldri og eiga þaðan ógleymanlegar
minningar.
Bst. Fjallarós sendir félögum allra
barnastúkna á landinu og lesendum
Æskunnar bestu kveðjur.“
Nágranni
Fjallarósar, — Fjallasól nr. lól-.
varð 20 ára í vetur. Hún heldur fundi
í Skógaskóla. Ólafur Jónsson fra
Hafnarfirði, en hann stofnaði stúk-
una, stjórnaði afmælisfundinum'
Stórgæslumaður ávarpaði félaga og
Bergþóra Árnadóttir söng og stjórn-
aði fjöldasöng. Organisti var Þórður
Tómasson, einn stofnenda. Að
loknum fundi var afmælisveisla og
myndarlegar tertur bornar á borð.
Guðlaugur Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Stórstúkunnar, tók
fundarstörf upp á myndband og er
það í fyrsta sinn sem slík heimildar-
mynd er tekin.
Á fundum stúkunnar er lesið upp
og föndrað og félagar fá tækifseri til
að tjá sig um það sem þeim liggur a
hjarta. Einnig eru flutt stutt
skemmtiatriði og spilað bingó. Að
sjálfsögðu taka félagar þátt í vor-
mótinu í Galtalækjarskógi. Gseslu-
maður stúkunnar er Guðný A. Val-
berg á Þorvaldseyri.
46
Frá afmælishátíð bst. Fjallasólar. Ölafur og Guðný fyrir miðju