Æskan - 01.02.1988, Page 10
liðinu þurfa að færa miklar fórnir.
Stundum er æft í hádeginu og svo aftur
kl.4 eða síðar að deginum. Það gefur því
augaleið að þeir sem vinna tímavinnu
verða oft að sleppa eftirvinnunni. Einar
segir að langskólamennirnir í liðinu eigi
betra með að fella námið að æfingunum.
„Ég gerði mér ekki almennilega grein
fyrir því hvað ég þyrfti að leggja mikla
vinnu á mig þegar ég var valinn fyrst í
liðið,“ heldur Einar áfram. „Helsti galli
minn í upphafí var sá að ég var of góður
við sjálfan mig, lagði ekki nógu hart að
mér. Mér varð fljótlega ljóst að lands-
hðsmenn litu ekki á æfingarnar sem
skemmtun og afþreyingu heldur alvar-
lega og markvissa vinnu. Hérlendis æfa
félagslið og landslið jafnmikið og at-
vinnulið erlendis. Þetta er langt frá því
að vera leikur! Enda var ég fljótur að
bæta mig á æfingunum.“
- Átt þú eins og fleiri landsliðsmenn
erfitt með að sofna eftir erfiða leiki?
„Já, einkum eftir sigurleiki sem skiptu
máli og einnig eftir leiki sem áttu að
vinnast en töpuðust. Maður fer aftur og
aftur yfir leikina í huganum og ef eitt-
hvað hefur farið úrskeiðis reynir maður
að komast að því hvað olli.“
- Hvað hefurðu oftast fengið boltann
í andlitið í einum leik?
„Fimm sinnum. Það var í leik á Spáni.
Það átti hreinlega að skjóta mig út úr
markinu. Tvö skotanna fékk ég í haus-
inn eftir víti. Ég var dálítinn tíma að
jafna mig á þessu og stóð ekki á sama um
andlitið á mér í næstu leikjum á eftir.“
- Ertu ánægður með feril þinn fram
að þessu þegar þú lítur yfir hann?
„Já, ég get vel við unað. Reyndar er ég
10
aldrei fyllilega ánægður með sjálfan mig
því að mér finnst oftast að ég hefði getað
gert betur. En maður er þakklátur fyrir
að hafa átt velgengni að fagna og að hafa
komist í landsliðshópinn. Það eru fleiri
kallaðir en útvaldir.“
- Er auðvelt að taka þig á taugum í
leik?
„Nei, ekki þegar maður er kominn
með jafnmikla leikreynslu og ég hef.
Auðvitað lendir maður í leikjum þar sem
margir þættir ganga ekki upp en þannig
er gangur Hfsins. Leikmenn eru í mis-
jafnlega góðu formi. Velgengni í leik
byggist m.a. á góðri einbeitingu. Þjálfar-
inn veit hvað hægt er að leggja mikið á
einstaka leikmenn, í hvernig formi þeir
eru, og er fljótur að skipta um mark-
menn ef hann sér að þeir eru þreyttir.
Stundum snýst dæmið við og það er
markvörðurinn sem tekur leikmennina á
taugum, t.d. ef hann ver mörg skot í
röð, hreinlega lokar markinu, og eins
þegar hann ver víti.“
- Horfirðu á myndbönd eftir leiki til
að athuga hvernig þú hafir staðið þig?
„Já, einkum ef mér hefur ekki gengið
nógu vel. Þá reyni ég að sjá hvað var að,
hvort ég þurfi að breyta hreyfingunum
eitthvað o.s.frv. Myndböndin geta verið
gagnleg að þessu leyti. Maður sér leikinn
frá öðru sjónarhorni.“
- Geturðu nefnt einhverja eftirminni-
lega leiki?
„Já, þegar við unnum heimsmeistara
Vestur-Þjóðverja, 13-11, í öðrum lands-
leik mínum og svo sigur gegn Austur-
Þjóðverjum mánuði seinna, 18-15. í þess-
um leikjum fékk maður mikið sjálfs-
traust.“
- í viðtali við ALskuna í síðasta jóla-
blaði lét Guðmundur Guðmundsson illa
af íþróttafréttamönnum. Hvað finnst þér
um skrif þeirra?
„Ég get tekið undir margt af því sem
hann sagði. Oft eru íþróttafréttir ekki
skrifaðar af sanngirni heldur hreinni til-
finningasemi. íslenskir fjölmiðlamenn
mega þó eiga það að þeir eru betri en
erlendir starfsbræður þeirra sem sja
íþróttakappleiki annað hvort í svörtu eða
hvítu. Stundum finnst mér að faglegu
mati sé ábótavant í skrifum hér heima.
Sem dæmi má nefna þegar við kepptum
á móti Pólverjum fyrir jól og unnum þá
með 6-7 marka mun. Þá sögðu blöðin að
Pólverjar hefðu verið lélegir. Reyndin
var hins vegar sú að við vorum í mjög
góðu formi.“
Á tónleikum í Los Angeles
Einar er framkvæmdastjóri handknatt-
leiksdeildar Vals. Að aukastarfi hjálpat
hann konu sinni við útstillingar á vörum
í búðargluggum. Þar kemur sér vel að
vera smiður að mennt. Hann segist lítinn
sem engan tíma hafa til tómstundaiðk-
ana.
En hvert skyldi umræðuefnið vera
þegar handknattleiksmenn og konur
þeirra koma saman. Er rætt um nokkuð
annað en handknattleik?
—ÆSKAN
í landsleik gegn Svíþjóð í Heimsmeistarakeppninni í Sviss árið 1986. Einar varði þetta
skot glæsilega. DV-mynd