Æskan - 01.02.1988, Síða 18
Popphólfið
Shakin' Stevens
Getið þið skrifað aðdáendaklúbbi
Shakin’ Stevens fyrir mig? Hvar get
ég pantað plötur með honum? Hvar
get ég pantað gamlar plötur með
Bubba Morthens?
Kær kveðja,
Helgi Steinar Felixson,
Ljósalandi,
Lýtingsstaðahreppi,
Skagafirði.
Við værum komnir nokkuð langt
út fyrir starfssvið okkar ef við tækj-
um að okkur bréfaskriftir. En ef þig
langar til að senda Stebba Skjálfta
h'nu þá er póstáritun hans þessi:
Shakin Stevens,
17-19 Soho Square,
London Wl, England.
Þú gætir t.a.m. sent honum kveðju
þegar hann verður fertugur 4. mars
n.k. Það myndi gleðja hann, konu
hans, börn þeirra þrjú og jafnvel öll
10 systkini hans!
Plötubúðin, Laugavegi 20, og
Gramm, Laugavegi 17, báðar í
Reykjavík, eru með pöntunarþjón-
ustu á gömlum plötum útlendum.
Grammið selur jafnframt plötur með
Bubba Morthens en Bubbi er einn af
eigendum þess fyrirtækis. Reyndar
gáfu Iðunn, Steinar hf., Skífan, Hug-
renningur o.fl. út músík Bubba
þangað til hann gekk til liðs við
Grammið 1984. Síðan hefur Grammið
keypt útgáfuréttinn af Skífunni og
Hugrenningi en Steinar hf. selja eitt-
hvað af allra elstu plötum Bubba.
Kæra Æska.
Þið mættuð
urlandahljómsveitir. I
margar góðir hljómsveitir eins og t.d.
Evrópa frá Svíþjóð. Viltu birta heim-
ilisfang hennar.yffifiptöis ’
Guðrún Finnsdóttir
Við getum samþykkt að íslenskir
fjölmiðlar eigi að gefa frændum okkar
í Skandinavíu meiri gaum. Aftur á
móti er erfiðara að nálgast upplýsing-
ar um skandinavíska poppara en
t.a.m. engilsaxneska nema þeir
skandinavísku hafi fyrst náð vinsæld-
um í Bretlandi, Bandaríkjunum eða
Þýskalandi. Til dæmis að taka flett-
um við 11 tölublöðum af Vi unge og
Det nye í von um að finna eitthvað
um Dodo og The Dodos. Það reynd-
ist árangurslaust. En við reynum að
gera okkar besta. Póstáritun Evrópu
er:
Europe Fan Club,
51 West 52nd Street,
New York,
Ny 10019 - USA.
Pungarokk
Hæ, kæra Popphólf!
Mér finnst vanta þraut fyrir þunga-
rokkara. Hér á Patró eru margir
þungarokksaðdáendur og þeir eru
áskrifendur að Æskunni.
Með kærri kveðju,
Smári Jósepsson,
Mýrum 17, - Patreksfirði.
Gjörðu svo vel: Annars staðar í Popp-
þættinum finnur þú og félagar þínir í
Þungarokksdeild Patreksfjarðar þraut
til að spreyta ykkur á.
Dagatöl og veggmyndir
Hæ, hæ, Popphólf.
Það væri flott að hafa tvær myndir
af poppurum eða íþróttamönnum á
sama veggspjaldinu, hvora sínum
megin. Hvernig væri að hafa nokkrar
myndir af poppstjörnum á sömu
blaðsíðunni og svo auglýsingu hinu-
megin svo að maður gæti klipp1
myndirnar út? Svo mætti hafa daga-
tal yfir sama mánuð og blaðið kemur
út og setja inn á dagatölin myndir og
afmæhsdaga hljómsveitarmanna.
Bless.
Bettína, Hraunbœ.
Þetta eru góðar hugmyndir sem vert
er að athuga betur. > f
>••
-•••'
sbAM§§r
Hæ! •••••••
Getur þíj''sagt*^ér hvaða plötur
þeir í Stuðmqnnum hafa spilað inn á,
t.d. með Spilverkinu, Þursum og
fleirum.
U.G.
Við getum ekki birt í heilu lagi lista
yfir allar þær hljómplötur sem liðs'
menn Stuðmanna eru við riðnir. Til
þess þyrftum við að verja nokkrum
blaðsíðum af blaðinu. Liðsmenn
Stuðmanna hafa nefnilega ekki aðeins
gefið út fjölda sólóplatna og starfað '
hljómsveitum á borð við Spilverkiðj
Hrekkjusvín, Þursana, Beinasynfón-
íuna, Grýlurnar, Pelican, ískross,
Hvítárbakkatríóið, Brunaliðið,
Frakkana, Egó, Jolla og Kóla o.m.fl-
heldur hafa þeir jafnframt átt hlut-
deild í tugum platna, s.s. með Gunn-
ari Þórðarsyni, HLH-flokknum,
Bubba Morthens, Engilbert Jensen,
Steinku Bjarna, Heimavarnarliðinu,
Guðmundi Árnasyni, Megasi, 01gu
Guðrúnu o.m.m.fl.
Hitt er athugandi og gæti þesS
vegna hafist í næstu tbl. Æskunnar
að rekja plötuferil sérhvers „stuð-
manns“, eins þeirra í hverju tölu-
blaði.