Æskan - 01.02.1988, Side 32
í jólablaði Æskunnar birtist ágætt
ljóð eftir 12 ára akureyrska stúlku,
Kristjönu Nönnu Jónsdóttur. Hér
birtum við annað ljóð eftir hana og er
það engu síðra. Það nefnist Einmana.
Við færum Kristjönu Nönnu bestu
þakkir fyrir og hvetjum hana til að
halda áfram á sömu braut.
Sumarið er komið.
Börnin komin á kreik.
Lítil stúlka með ljósa lokka stend-
ur á götunni.
Hvers vegna leikur hún sér ekki
með öðrum börnum?
Hvers vegna stendur hún þarna
ein?
Hvers vegna er hún ekki með for-
eldrum sínum?
Hún er einmana.
Það eru margir einmana í þessum
heimi.
■Skotnar í-
Patrick Swayze
Við erum hér tvær stelpur úr Hlíð-
unum. Við erum nýbúnar að sjá
myndina í djörfum dansi (Dirty
Dancing) og erum orðnar ofsalega
skotnar í aðalleikaranum, Patrick
Swayze. Okkur langar afskaplega
mikið til að vita eitthvað meira um
hann og helst að fá heimilisfangið
hans h'ka. Getur þú eitthvað hjálpað
okkur?
Með fyrirfram þökk fyrir birting-
una.
Tvcer úr Hlíðunum.
Svar: Við höfum reynt að afla upp-
lýsinga um Patrick en því miður
ekki haft árangur sem erfiði. Ekki
er samt öll nótt úti enn! Bréfið ykk-
ar er hér birt í von um að einhver
geti hjálpað okkur um upplýsingar.
Við munum birta þcer um hœl.
-Kveðja frá-
Meskaupstað
Halló!
Mig langar til að senda Pálínu,
Döggu, Guðrúnu Evu, Maríu og
Gunnu Völlu æðislegar afmæliskveðj-
ur - en þær eiga afmæli í janúar. Alhr
sem þekkja mig fá afganginn.
Bless, bless.
Steinunn, Neskaupstað
Sést það á strákunum?
Hvernig veit maður hvenær strákar
eru hrifnir af manni? Sést það á
þeim? Svaraðu mér, kæri Æskupóst-
ur, því að ég er að deyja úr forvitni.
Ein sem er að velta þessu fýrir sér.
Svar: Það er svo ótal margt sem
kemur til greina. Sumir strákar
horfa mikið á stelpur sem þeir eru
skotnir í og þá einkum þegar þœr
sjá ekki til. Aðrir strákar, jafnvel
þeir sömu, þora alls ekki að tala við
draumadísina sína. Enn aðrir gefa
sig oft á tal við „hina einu sönnu“
til að láta Ijós sitt skína. Svo má að
síðustu nefna þá stráka sem vilja
helst stríða stelpum sem þeir eru
hrifnir af - ef til vill vegna þess að
þeir eru taugaóstyrkir í návist
þeirra og vita hreinlega ekki hvem-
ig þeir eiga að vera.
Af þessum hugleiðingum sérðu að
það er síður en svo auðvelt að sjá
það á strákum hvort þeir eru hrifnir
af stelpum. Þó er freistandi að
draga þá ályktun að þegar þeir gefa
sig oft á tal við ákveðna stelpu sé
það vísbending um að þeir kunni
vel við hana og séu ef til vill skotnir
í henni. Ekki er samt hœgt að full-
yrða það því að margir strákar eiga
margar stelpur að vinum. Ef strák-
ar eru rceðnir og umfram allt vin-
samlegir við stelpur eykur það
vissulega líkumar á því að góð vin-
átta takist - en svo verður tíminn að
leiða í Ijós hvort þau fella hugi sam-
an. Það þarf tvo til!
—Alveg ólýsanlegar—■
draumadísir
Kæra Æska! Draumaprinsessan
mín á heima í Stykkishólmi. Hún ct
dökkhærð, meðalstór og alltaf vel til
fara. Hún er opinská og skemmtileg-
Ég er svo skotinn í henni að ég held
að ég lifi ekki af veturinn.
Ónefndur Hólmari.
Draumastelpan mín er svo falleg að
hún er ólýsanleg. Hún á heima á ísa-
firði og er í 6. bekk. Ég segi ekki
hvað hún heitir. Hún veit ekki að ég
er skotinn í henni og vinir mínir
mega ekki heldur vita það. Þess
vegna skrifa ég undir dulnefni. Þessi
stelpa er mikið í íþróttum og er vin-
sæl bæði hjá strákum og stelpum. Ég
gæti borgað margar mihjónir, bara ef
hún vhdi verða konan mín!
1x2.
/ "
Mig langar til að lýsa draumaprins-
essunni minni. Hún á heima á Sei-
tjarnarnesi. Hún er ekki gömul en
mjög vinaleg. Alltaf þegar hún sér
mig kemur hún gangandi til mín og
lætur vel að mér. Okkur þykir mjög
vænt hvoru um annað. Hún sleikif
mig stundum í framan. Draumaprin-
sessan mín heitir Snælda og er elsku-
legasta kisa í heimi!
Jón.
—Páfagaukurinn Jói—■
Kæra Æska.
Mig langar til að segja ykkur dálít-
ið frá sjálfri mér og fjölskyldu minni-
Ég á tvo bræður og eina systur-
Bræður mínir heita Baldur og Har-
aldur. Systir mín heitir Heiða Lára
og er 11 ára. Við eigum páfagauk se®
heitir Jói og hann getur talað. Gallinn
er bara sá að hann bullar heldur mik'
ið.
Bless, bless.
Þóra Lárusdóttir,
Fomhaga 8, Reykjavík.
32
æskah