Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.02.1988, Qupperneq 42

Æskan - 01.02.1988, Qupperneq 42
^ Jsr . unglingavandamali bókmenntarannsóknum Nokkur kom úr skólablaðinu Stakki Blaðaklúbburinn í Holtaskóla hefur lengi gefið út skólablaðið Stakk. Hér eru nokkur gullkorn úr eldri blöðum: Tapað - fundið Fyrir stuttu síðan tapaði ég 14 kg af Pin- otex-andlitsfarða, 66 dósum af rass- kinnalit og 10 dósum af ælubrúnum kinnalit. Ýmislegt fleira tapaðist úr rækjurauða „stresspokanum“ mínum. Madam Bella. Úr viðtali við Þorgeir Ástvaldsson 1980 - en þá var hann stjórnandi tónlistar- þáttarins Skonrok(k)s í sjónvarpinu og stjórnaði syrpuþætti á Rás 1 (tveim ár- um áður en Rás 2 hóf útsendingar): Stakkur: Hvað fínnst þér um hið svo- kallaða „unglingavandamáP' ? Þorgeir: Þetta er orð sem hefur verið búið til að óþörfu. Unglingavandamál er orð yfir vandamál okkar allra, ekki síst þeirra fullorðnu. Stakkur: Hvað fmnst þér um diskó- tónlistina? Þorgeir: Diskótónlist er ákveðin teg- und af dansmúsík sem er ekki síður fyrir fætur en eyru. Hún á rétt á sér en er varla þroskandi fyrir hugann. Hún getur verið skemmtileg en líka drepleiðinleg. Um samskipti kennara og nemenda: Óður kennari rak ólátabelg út, annar var tekinn og bundinn í hnút. 421 Hann hækkaði raust og fjandinn var laus, barði næst einn svo að brotnaði haus. Elli Grétars 9-A^ , ( Úr harðorðri grein frá nemanda: „Diskóhatarar hafa náð völdum í skólablaðinu Stakki og níða með réttu þessa óæðri tónlist niður. Einn ritaði í blaðið nýlega og sagði að unnendur disk- ós væru ekki heilir heilsu. Þó að ég sé að nokkru leyti sammála greinarhöfundi finnst mér að hann hefði ekki þurft að vera svona grimmur í grein sinni gagn- vart afvegaleiddum sálum eins og raun var heldur ætti hann miklu frekar að vísa þeim veginn hægt og gætilega til æðri tónhstar (rokk, reggí, pönk, blús og djass). . Hr. Jón Ásgeirs. Eftirfarandi bréf barst til póstsins: Kæri Póstur. Ég er stelpa í 9. bekk og þarf að fá ráð við vanda mínum. Þannig er mál með vexti að ég er alveg ofsalega hrifin af strák í 6. bekk. En þar sem ég er í 9. bekk get ég ekki byrjað á föstu á með honum. Hvað á ég að gera? Ein í ástarvandræðum Svar: Þú ættir að slaka vel á í náminu svo að þú fallir á samræmdu prófunum. Þetta getur þú svo endurtekið tvisvar - eða þar til þú ert komin í sama bekk og draumaprinsinn. Þá fyrst ættuð þið að geta byrjað saman! . . . Hafið þið heyrt um manninn sem hraut svo hátt að hann vakti sjálfan sig hvað eftir annað? Hann er búinn að kippa þessu í laS núna. Hann er farinn að sofa í herberg- inu við hliðina. Bókmenntarannsóknir Dæmigerðar setningar úr bókum: Hetjusaga: Sean Shootboy mundaði tveggi3 hlaupa Colt skammbyssuna að Johnny Carson lögreglustjóra Death Place bæjaf- ins í Wirginíufylki. Svitinn draup af enm þeirra. Sljó augu bæjarbúa fylgdust með þeim. Skotin kváðu við og á einu andar- taki féll sá maður til jarðar sem eltur hafði verið um villta vestrið í 10 ár. Sean Shootboy var dauður. . . Ástarsaga: Hún vissi að hann var bara að blekkja hana en henni var sama. Hún hugsaði um kossþrungnar varir hans, dimmbláu augun og ljóst hrokkið hárið. Hún minntist síðasta sumars þegar þau sátu á enginu fyrir framan mylluna. Hún minntist þess er hann strauk henni um hárið og sagði: „Elskan mín“. Barnahrollvekja: Blökkumaðurinn Utumbali fann hvernig stálfingur apamannsins brutu alla hálshði hans. Lífið fjaraði úr negran- um. Búkurinn féll máttlaus niður á jörð- ina. Tarsan steig upp á maga fórnardýrs' ins og gaf frá sér hið ógurlega siguröskur Utumbay ættbálksins. . . Njósnasaga: Ég varð var við hann fyrir aftan mig- Allt í einu kvað við skothvellur og ég fann sáran sársauka í síðunni. Síðan ráf' aði ég út á götuna og skyndilega varð all£ svart. . . Úr viðtali við Vigdísi Finnbogadótt- ur, Forseta íslands: „. . . Það leiðinlegasta sem til er 1 heiminum er að láta sér leiðast. Svo að unghngavandamál er líklega það að ung' lingarnir þurfa að drepa tímann. Á míU' um aldri er fólk í kapphlaupi við tímann- Það þarf að finna einhverja leið til þesS að lífga tímann en ekki að drepa hanm Svo að maður leiki sér að orðum.“ fÆSKAH

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.