Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1988, Blaðsíða 3

Æskan - 01.05.1988, Blaðsíða 3
Forsíðumyndin er af Hauki Gunnarssyni og Jónasi Oskarssyni Ljósm.: Hcimir óskarsson Kcerí lesandi! Sumar og sól! Þegar þetta er skrifað hefur veður veríð eindæma gott. VetrarínsJjötur erfallinn, fögnuður ígeði og krakkar hoppa kátir út „úr koti og höir. Þið munið hvernig Margrét Jónsdóttir kvað um voríð og við birtum með ávarpi í 4. tbl. En veðríð hefur ekki leikið eins vel við alla hluta landsins. Fyrír norðan hefur um sinn veríð næsta napurt. Þannig er oft. í norðanátt er tíðum sól fyrír sunnan en þá blæs köldu á Norðlendinga. Sunnanátt færír rígningu yfir Suðurland en hægur hnjúkaþeyr yljar þáfólki norðan fjalla. Austfirðingarfagna vestanátt en á Vesturlandi er þakkað fyrír austanandvara. Við óskum þess að sem jafnast blási úr austrí, vestrí, norðrí og suðrí — svo að lesendur blaðsins njóti veðursældar á víxl — og þó allra helst að annað vefið verði hæð yfir íslandi, bjart og blítt á öllum börnum lands. Snemmsumars-sólfylgirfuglasöngur á grein, bjástur og bardús við hreiðurgerð. Vel á nú við að birta lítið Ijóð eftir Sigurð Júlíus Jóhannesson, fyrsta rítstjóra Æskunnar. Því fylgja okkar bestu sumarkveðjur. Kalli og Eddi. Tvílyfta Ég hlusta á þig, vængjaði vinur, U 'A ‘A Þú veist ekki'af sorg ídag: nreiono þau Jagna þér sumar og sunna og semja þér himneskt lag. Þú syngur það - kvakar á kvisti svo kátur - og hugurþinn erþrunginn af ánægju og yndi sem yngir upp huga minn. Ég skil ekki sálræna sönginn en samt erþað hugboð mitt að þar séu töfrandi tónar um tvílyfta hreiðríð þitt. Efnis- yfirlit Viðtöl og greinar 4 Margs konar pabbar 8 Takmarkið á Ólympíuleikunum eru verðlaun og heimsmet! Rætt við Hauk Gunnarsson frjálsíþróttamann. 12 „íþróttaiðkun er okkur afar mikilvæg“ segir Jónas Óskarsson sundmaður. 16 „Ef maður leitar finnst ýmislegt gott,“ segir Björk „sykurmoli“ Guðmundsdóttir Sögur 6 Geimálfar 14 Og svo kom vorið 26 Hundrað prósent pottþétt 30 „Betri er belgur en barn“ 31 Álfasaga 42 Hola eikin 48 Skakkaföll á skíðum -Bjössi bolla mætir til leiks! Þættir 16 Poppþáttur 20 Frá ýmsum hliðum: Sveinn Björnsson skrifar 22 Æskupósturinn 32 Frá ýmsum hhðum: Helgi Seljan skrifar 38 Vísindaþáttur 40 Aðdáendum svarað: Ragnhildur Gísladóttir 45 Skátaþáttur Ýmislegt 7 Ljósmyndasamkeppni 10 Smárarnir - teiknimyndasaga 21 Myndagetraun 24 Spurningaleikur 36 Pennavinir 47 Frá lesendum 53 Kátur og Kútur - Ráðhildur Rós - Já eða nei 29/50/51 Þrautir Aðdáendum svarað - bls. 40 Skakkaföll á skíðum - bls. 48 Poppþáttur - bls. 16 5. tbl. 1988, 89. árg. Skrifstofa er að Eiríksgötu 5, 3. hæð Sími ritstjóra er 10248; á afgreiðslu blaðsins 17336; á skrifstofu 17594. Áskriftargjald jan.-júm ’88: 1350 kr. (5 blöð) Gjalddagi er 1. mars. Verð í lausasölu 295 kr. Póstáritun: Æskan, pósthólf 523, 121 Reykjavík. 6. tbl. kemur út 5. ágúst. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Eðvarð Ingólfsson, heimas. 641738 Karl Helgason, heimas. 76717 Teikningar: Guðni Björnsson Útlit, umbrot og filmuvinnsla: Offsetþjónustan hf. Litgreiningar: Prentmyndastofan hf. Prentun og bókband: Oddi hf. Útgefandi er Stórstúka íslands I.O.G.T.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.