Æskan - 01.03.1989, Side 10
Kæra Æska!
Ég ætla að senda þér nokkrar gát-
ur:
1. Hvað er sameiginlegt með manni
sem fellur í yfírlið og vélritunarpapp-
ír?
2. Hvað er það sem er svart og hvítt,
situr á bekk og grætur?
3. Hvað er það sem gengur á þremur
fótum daga og nætur?
Ég þakka fyrir gott og skemmtilegt
blað,
Aldís Kristín Árnadóttir,
Háaleitisbraut 20, Reykjavík.
Svör eru á bls. 54.
Mý-dönsk
Kæra Æska!
Ég þakka gott blað.
Hvernig væri að birta veggmynd af
Ný-danskri eða viðtal og myndir?
Hér er einn brandari:
Pað voru eitt sinn þrír bræður sem
allir hétu Gísli nema Eiríkur, hann
hét Helgi.
Ein frá Grindavík.
Svar:
Það má athuga við hentugt tœki-
fœri. . .
Garðar, Einar
og Mikkjáll
Sæll, kæri Æskupóstur!
Við höfum oft skrifað þér áður en
bréfin hafa aldrei verið birt. . .
Við erum 14 ára, eldhressar og
ánægðar með lífið að flestu leyti. Við
erum í 8.c í Gagganum og þykir fé-
lagslífið hér alveg frábærlega gott.
Diskótek eru í þriðju hverri viku,
kvöldvökur og klúbbar á hverju
kvöldi.
Á sumrin erum við í unglingavinn-
unni hér í bænum og þar er æðislega
gaman. Hér er alltaf eitthvað um að
vera á sumrin líka.
Viltu birta veggmynd, myndir eða
viðtal við Garðar Thór og Jóhann
G. . . af því að þeir eru svo sætir og
við erum alveg að sálast úr ást?
Jóhanna og Gerður (dulnefni)
Kæri Æskupóstur!
Geturðu sent veggmynd af Michael
Jackson með næsta tölublaði? Einnig
væri afar gaman ef veggmynd af Kim
Larsen fylgdi blaðinu á þessu ári.
Mér finnst að það ættu að vera
fleiri þrautir í blaðinu. Annars þykir
mér Æskan frábærlega góð. Geturðu
lesið úr skriftinni?
Jórunn
Svar:
Við beiðni ykkar og ótal margra
annarra hefur verið orðið. Garðar
Thór, Einar Örn og Mikkjáll voru á
veggmyndum er fylgdu 2. tbl.! Vegna
mistaka við frágang blaðsins í prent-
smiðju (rispa var þvert yfir andlit Ein-
ars. . .) sendum við nýja veggmynd af
drengjunum með þessu blaði. Við
reynum eftir megni að gera vel við
ykkur.
Jórunn! Eflaust verður Kims síðar
getið með einhverjum hœtti. . .
Þú ert vandvirk og virðist kunna vel
skil á réttritun - en erfitt er að segjo
til um persónugerð þar sem þú nefnd-
ir ekki hve gömul þú ert. Það gerðu
„Aðdáandi Nonna og Manna“ og
„800001“ raunar ekki ekki heldur og
því er ekki mikið mark takandi á utn-
sögninni. . .
Gleymdu ekki
að gefa til baka!
Kæra Æska!
Þetta er gott blað en það eru allt of
fáar gátur í því. Hér eru tvær skrýtl'
ur:
Jakob: Læknir, konan mín segir að
ég eti eins og hestur.
Læknir: Heyrðu, góði minn, taktu ut
úr þér grasið! Ég skil ekki hvað þu
segir. . .
Tveir Skotar voru á ferðalagi í Lund-
únum og voru orðnir mjög svangU-
Annar fór þá inn í veitingahús °S
fékk sér að borða. Þegar hann kom ut
aftur hældi hann sér af því að hann
hefði ekkert þurft að borga.
„Nú, hvernig má það vera?“ spurði
hinn undrandi.
„Ég sagði þjóninum svo skemmti'
lega skopsögu að hann gleymdi a
biðja um borgun.“
Hinn Skotinn lét ekki segja ser
slíkt heilræði tvisvar. Hann fór inn
og pantaði málsverð. Þegar hann
hafði lokið við að snæða sagði hann
þjóninum svo skemmtilega sögu a
hann ætlaði aldrei að hætta að hl®)3,
Þegar þjónninn náði loks andanum
sagði Skotinn alvarlegur:
„Gleymdu ekki, vinur, að gefa mer
til baka!“
Haraldur Már Gunnarsson,
Sogavegi 22, Reykjavík.
10ÆSKAH
J