Æskan - 01.03.1989, Qupperneq 12
Allt gengur betur
án áfengis!
Hreinsir bletta
Vinur minn segir að áfengi fjarlægi
bletti úrfatnaði. Þetta sannar ótrúlega
fjölhæfni þess, segir hann. Þaðfjarlæg-
ir einnig og sviptir mann vetrafatnaði,
vor og haustfatnaði, einnig konunni og
börnunum ef það er nógu mikið notað.
Áfengi fjarlægir húsgögnin úr hús-
inu, teppin af gólfinu, matinn af borð-
unum, næringuna úr maganum, sjón-
ina frá augunum og dómgreindina frá
huganum.
Áfengi getur einnig fjarlægt góðan
orðstír, gott starf, góða vini, hamingj-
una úr hjarta barnanna; það getur
jafnvelfjarlægt lífið sjálft.
Sem „blettahreinsir“ á áfengið engan
jafnoka.
(Hálmstráíð- TímaritAA- 1. 2. 1987)
Staðreyndir um
áfengi
Áfengi er í brenndum drykkjum. víni og
bjór. Það er sterkt, deyfandi eitur og
mjög skaðlegtfyrir líkamann.
Heilinn er mjög „tilfinninganæmt“ líf-
færi og viðkvæmt fyrir hvers konar
truflunum. Sá sem drekkur brennda
drykki, vín og bjór „veitir“ áfengi um
allan líkamann, einnig til heilans. Það
deyfir taugar og taugafrumur og þær
vinna verk sitt verr en áður. Sá sern er
undir áhrifum áfengis verður óstöðugur
og reikull í göngulagi og þvöglumæhur■
Ýmsir verða daufir og máttvana en
deyfing taugafrumna dregur líka ur
sjálfsstjórn og gerir suma háværa °9
ofsafengna.
Því yngra sem fólk byrjar að neyte
áfengis þeim mun meiri hætta er á a ;
varlegum afleiðingum neysiunnar. h
þroskaárum mótast venjur og lífshæt
ir. Ýmsir hafa þær hugmyndir að þeir
séu „svalir“ („töffj sem drekka áfenf'
Hitt er sönnu nær að sá sýnir hugrekk1
sem þorir að hafna þarflausu og óhou
efni þó að allurfjöldinn noti það.
Það er skynsamlegt að velja hei
brigða lífshætti. Það er líka hressUe9l
að ganga á móti ríkjandi venju ef hun
er óvani, - sjálfstæður og ódeigur!