Æskan

Árgangur

Æskan - 01.03.1989, Síða 42

Æskan - 01.03.1989, Síða 42
„Svo óheppinn að vera nauðalíkur pabba sínum...!" Alfreð Gíslason landsliðsmaður i handknattleiK svarar aðdáendum. Hvar og hvenær ertu fæddur? Á Akureyri 7. september 1959 og ólst þar upp. Hve hár ertu og þungur? Hver er háralitur þinn? Hvernig ertu eygður? Ég er 190 sm á hæð og 98 kg þungur. Ég er með skollitað hár og blá augu. Hvað heita systkini þín? Stunda þau íþrótt- ir? Hvaða? Hjörtur - stundar frjálsar íþróttir og hefur keppt með landsliðinu. Gunnar - leikur knattspyrnu með Moss í Noregi og er landsliðsmaður. Garðar og Gylfi - æfa ólympískar lyftingar í Svíþjóð. Lilja - iðkar ekki íþróttir. Kepptu foreldrar þínir í íþróttum? Hvað heita þau? Faðir minn heitir Gísli Bragi Hjartarson. Hann keppti/keppir á skíðum, í frjálsum íþróttum og golfi. Móðir mín heitir Aðalheið- ur Alfreðsdóttir og keppti í handknattleik. Hvað heitir kona þín? Hvaðan er hún? Hef- ur hún æft íþróttir? Kona mín heitir Klara Guðrún Melsteð frá Akureyri. Hún æfði sund á árum áður. Eigið þið böm? Við eigum einn son, Elfar, fimm ára. Hvoru ykkar líkist hann meir? Hann er víst svo óheppinn að vera nauðalíkur pabba sínum! Með hvaða liði æfðir þú fyrst og kepptir í handknattleik? Með hverjum síðan? Hafa þau hlotið meistaratitla? Fyrst með KA á Akureyri, síðan þrjú ár með KR í Reykjavík. Þá varð ég íslandsmeistari utanhúss og bikarmeistari innanhúss. Þar á eftir var ég fimm ár með TUSEM Essen í Vestur-Þýskalandi og á þeim tíma varð liðið tvisvar vestur-þýskur meistari og einu sinni bikarmeistari. Nú er ég aftur kominn í raðir KR-inga. Æfðir þú fleiri íþróttagreinar? Ég æfði á skíðum, íshokkí, knattspyrnu og blak auk handboltans. Fannst þér erfitt að gera upp á milli greina? í rauninni ekki því að mér fannst handbolt- inn alltaf eiga best við mig. Hvenær lékst þú fyrst með landsliði? 1979 með unglingalandsliðinu og 1980 með karlalandsliðinu. Hve marga landsleiki hefur þú leikið? Hve mörg mörk hefur þú skorað með landsliði? 42 ÆSKAH 170 landsleiki - 500 mörk. Hvaða sigur hefur þér þótt ánægjulegastur? j Þegar við unnum Pólverja í París í febrúar j síðastliðnum. = Hvenær þótti þér sárast að tapa? Þegar við í Essen-liðinu töpuðum fyrir j ZSKA-Moskvu í úrslitaleikjum um Evrópu- | meistaratitilinn. Við fengum jafnmörg stig og j skoruðum jafnmörg mörk en skoruðum færri i mörk á útivelli en þeir. j Hvað er eftirminnilegast á íþróttaferlinum j til þessa? 1 Að vinna B-heimsmeistarakeppnina. j Hvaða landslið telur þú best? En félagslið? \ Landslið Sovétmanna. Besta félagsliðið er j SKA-Minsk frá Sovétríkjunum. Hver er eftirlætisleikmaður þinn? Friðjón Jónsson fyrirhði KA-manna. Gegn hvaða manni hefur þér þótt erfiðast j að leika? En markmanni? Thomas Hasse varnarmanni Essen og V- j Þýskalands og Stefan Hecker markmanni Es- 1 sen og V-Þýskalands - af því að báðir þekkja j mig mjög vel auk þess að vera leikmenn á 1 heimsmælikvarða. j Féll þér vel að vera í Þýskalandi? j Já, mér féll mjög vel í Þýskalandi. Hvað þykir þér líkt/ólíkt með Þjóðverjum og j íslendingum? j Dugnaðurinn einkennir báðar þjóðirnar. ís- \ lendingar eru hressari, óstundvísari og j streittari en Þjóðverjar . . . svo að eitthvað sé nefnt. Hvaða áhugamál áttu önnur? Að slaka á, hlusta á tónlist, njóta lífsins með fjölskyldu og vinum, veiða, leika tennis, fara í fiallgöngur . . . o.s.frv. Hefur þú haft tíma til að sinna þeim? Alltof lítinn. í hvaða skólum varstu? Barnaskóla Akureyrar, Gagnfræðaskóla Ak- ureyrar, Menntaskólanum á Akureyri og Ha- skóla íslands. Hvað starfar þú? Sem kerfisfræðingur. Hverjir eru eftirlætis tónlistarmenn þínir? David Sanborn, Dire Straits, Eric Clapton, Herbert Grönemeyer, Sting, Brian Ferry, Donald Fagen, Steely Dan, David Bowie, Talking Heads. Á hvaða leikurum hefur þú mest dálæti? Jack Nicholson, Flosa Ólafssyni, John Clee- „Já, mér finnst mjög gaman að matbúa - svo framarlega sem ég þarf ekki að iaga til í eldhúsinu eftir mig!“

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.