Æskan - 01.05.1991, Blaðsíða 4
rúturinii,
krabbinn,
meyjan,
nautið,
vatnsberinn
og vogm - krakkarnir í Söngvaseið.
Að undanförnu hefur Þjóðleikhúsið sýnt söngleikinn
Söngvaseið við miklar vinsældir. Söngleikur þessi hef-
ur verið kvikmyndaður og nefndist Tónaflóð hérlend-
is, The Sound of Music á frummáli.
í söngleiknum koma fram sex krakkar. Þeir hafa feng-
ið mikið loffyrir skemmtilega sviðsframkomu og góðan
leik. Við kynnum þá nú fyrir ykkur - á líkan hátt og í
þættinum, Aðdáendum svarað. Við vitum að þeir eiga
sér marga aðdáendur meðal lesenda Æskunnar.
Spurningarnar, sem við beindum til krakkanna,
fara hér á eftir. Þær eru tölusettar. Tölurnar fylgja
svörunum. (Athugið að sumum spurninganna átti ein-
ungis einn að svara)
1. Hvert er fullt nafn þitt? Hve gömul/gamall ertu? í hvaða
stjörnumerki ertu fædd(ur)?
2. Hvert er hlutverk þitt í söngleiknum?
3. Hvernig lýsir þú þei: persónu?
4. Hvert finnst þér skemmtilegasta atriðið í leiknum?
5. Manstu eftir spaugilegu atviki á æfingu?
6. Hefur eitthvað verið gert öðru vísi á sýningu en æft hafði verið?
7. Hvað hefur þér þótt erfiðast á sýningu?
8. Hvað gerið þið þegar þið eruð ekki á sviði á sýningartíma?
9. Hvað kom þér mest á óvart við undirbúning sýninganna?
10. Hvað er erfiðast við að vera orðinn þekktur?
11. Hver er eftirlætisleikari þinn - á sviði - í sjónvarpi - í kvik-
myndum?
4 Æskan