Æskan - 01.05.1991, Blaðsíða 15
Fyrst var rusl - síðan var sagah af krafti,
smíbað, mótað og málað
pappír bleyttur (með arma fram úr ermum)
uns rísið var þorp á eyju og fleyin komin á fíotl
Umhverfið
og
verndun þess
Hefðbundið skólastarf í
Laugarnesskóla var rofið í
vetur með fjögurra daga
vinnu við verkefnið Um-
hverfið fyrr og nú. Allir
nemendur skólans unnu við
að kynna sér þá breytingu
sem orðið hefur í umhverfi
okkar íslendinga frá land-
námi til nútímans. Um það
var fjallað bæði með tilliti
til náttúruverndar og hvern-
ig fólk umgengst hvert ann-
að. Kennarar vönduðu mjög
allan undirbúning og nem-
endur lögðu fram sinn skerf,
unnu af áhuga og dugnaði.
Svo vel tókst til að ákveðið
hefur verið að efna árlega til
slíkra vinnudaga.
Afrakstur vinnunnar voru
fjölmörg líkön, veggmyndir,
vinnubækur og greinar í
skólablaði. Nemendur
skráðu líka sögur og lásu
hver fyrir annan. Árangur
sjáið þið á nokkrum mynd-
um sem við birtum sem
dæmi um vinnuna.
Mikla athygli vakti líkan
af þorpi sem ungir nemend-
ur bjuggu til undir forystu
kennara síns, Sesselju Árna-
dóttur. Það var gert úr rusli.
Þið sjáið hvernig lagt var til
atlögu við ruslið, spýtur sag-
aðar, pappír „endurunn-
inn", bátar og hús smíðuð
og mótuð!
Myndirnai tók fón Fieyr
Þórarinsson skólastjóri.
Vilborg Runólfsdóttir yf-
irkennari veitti Æskunni
upplýsingar.
Texti: KH.
Unnið við líkan af bæ Ingólfs Arnarsonar og
umhverfi hans.
Séð inn í baðstofu Ingólfs Arnarsonar og Hall-
veigar. Hjá þeim er Þorsteinn sonur þeirra.
Þvottakonur við gömlu laugarnar.
I gamalli skólastofu.
Æskan 1 5