Æskan - 01.05.1991, Blaðsíða 54
Umsjón: Nanna Kolbrún Sigurbardóttir félagsróógjafi
Erfið mamma
og skot
Elsku Nanna Kolbrún!
Ég astla fyrst aö þakka
gott blaö og góöan þátt.
Mér finnst aö mamma
kunni ekki aö ala upp
börn. Hún lætur allt eftir
systrum mínum. Þegar
yngri systir mín er aö
boröa þá skilur bún alltaf
eftir af matnum. Þá segi
ég henni (systur minni) aö
ljúka viö matinn en
mamma segir bara:
„Æi, góöa besta þegiöu
nú einu sinni.“
Þá verö ég ferlega reiö
og segi mömmu aö hún eigi
ekki aö gera þetta. En hún
gerir þetta samt.
Þetta er kannski svolítiö
ruglaö en vonandi geturöu
sagt mér eitthvaö því aö
ég vil aö mamma skiþii aö
þráöum fara jmgri systur
mínar aö ráöa yfir henni.
Svo er þaö líka fleira. Ég
er dálítiö hrifin af strák.
Hann er einu ári eldri en
ég. Stundum talar hann al-
mennilega viö mig en
stundum er hann eins og
ég sé Öskubuska. Hann er
ekkert rosalega vinsæll í
skólanum. Svo eru allar
stelpurnar aö spyrja mig
hvort mér finnist hann
ekki alveg hryllingur? Ég
þori aldrei aö segja annað
en jú.
Þaö er ekki allt búiö enn.
Ég sé alltaf svo illa allt
sem er langt frá mér! Ég á
aö vera löngu búin aö fara
til augnlæknis en mamma
vill ekki fara meö mig þótt
ég tali oft um þaö við
hana.
Hvaö á ég aö gera? Fara
í veskiö hennar mömmu og
taka peninga til aö geta
fariö til augnlæknis eöa
hvaö?
Þetta er kannski svolítiö
skrýtiö bréf en ég varö aö
spyija þig til aö fá ráö.
Hvaö lestu úr skriftinni?
Gabríela
Svar:
Af bréfi þínu aó dæma virðist
sem þú og mamma þín fari tölu-
vert í taugarnar hvor á annarri.
Þér finnst hún ekki standa sig í
mömmuhlutverkinu og ekki
hlusta á þig. Henni finnst þú
tala mikið og ef til vill gera ó-
þarflega mikió úr hlutunum.
Stundum staðna samskipti í
slíku mynstri innan fjölskyldu.
Þá þarf að reyna að rjúfa
mynstrið svo að þið báðar náið
að heyra hvað hin hefur að
segja. Það eru margar leiðir til.
Þú getur byrjað á því að tala
við mömmu þína í einrúmi,
reynt að hætta að leiðrétta
hana í uppeldinu þegar þið all-
ar systurnar eru viðstaddar.
Segðu henni frá því rólega sem
þú hefur tekið eftir.
Þú minnist ekki á pabba
þinn. Ef hann er á heimilinu þá
getur þú fengið hann í lið með
þér til þess að ræða við
mömmu þína um uppeldið og
hvað þú sérð illa. Aðrir ættingj-
ar eða vinir fjölskyldunnar geta
Ifka komið hér til sögunnar.
Varðandi sjónina þá tel ég
það ekki góðan kost að fara á
bak við mömmu þína. Yfirleitt
kemst slíkt upp og þá veröa for-
eldrar oft enn þá sárari en ella
við börnin sín. Betri leið er að
snúa sér til hjúkrunarfræðings-
ins í skóla þínum. Það kostar
ekkert og hjúkrunarfræðingur-
inn getur haft samband við for-
eldra þína ef eitthvað þarf að
gera. Það getur verið sterkara í
augum mömmu þinnar að fá
beiðni frá skólanum um að at-
huga sjónina hjá þér en þú
nefnir það sjálf.
Eg held að þú ættir að athuga
þinn gang vel með þennan
dreng. Þaó er ástæðulaust fyrir
þig að láta bjóða þér þvílíka
framkomu. I öllum mannlegum
samskiptum gilda vissar kurteis-
isreglur. Hvorki þú né aðrar
stelpur eiga að láta bjóða sér
lítilsvirðandi framkomu frá
hendi strákanna. Reyndu að
beina huganum í aðrar áttir og
verða skotin í strák sem kemur
vel fram við þig og ber virðingu
fyrir þér.
Skriftin virðist vera töluvert
ómótuð og tætingsleg á köflum,
ef til vili bera vott um öryggis-
leysi.
Áhyggjur af
brjóstum
Elsku Nanna Kolbrún!
Mér finnst ég eiga við
rosalega mikið vandamál
aö stríöa. (Þaö er þó
kannski ekki neitt rosa-
legt)
Þaö er þannig að ég er á-
gætlega vel vaxin aö ööru
leyti en því aö ég er meö
svo rosalega lítil brjóst aö
ég skammast mín. Ég er
með strák og ég þori ekki
aö lofa honum aö káfa á
mér út af þessu.
Heldur þú að honum sé
sama þótt þau séu svona
„lítil“?
Getur maður eitthvaö
gert til aö þau stækki?
Viltu vera svo góð að
hjálpa mér?
Hvað lestu úr skriftinni?
Ungfrú brjóstalítil
Svar:
Brjóstin eru mörgum stúlkum
áhyggjuefni. Sumum finnst þær
hafa of stór brjóst en öðrum of
lítil.
Það kemur ekki fram í bréf-
inu hvað þú ert gömul en brjóst
geta breyst töluvert fram á ung-
lingsárin. Það gæti verið mjög
„eðlileg" skýring á brjósta-
stærðinni að þú værir einfald-
lega ekki fullþroskuð enn þá. Eg
held að það sé sennilegast.
Þetta verður allt að hafa sinn
gang og lítið hægt að gera til
þess að flýta fyrir. Það er hægt
að þjálfa vöðvana í kringum
brjóstin til þess að styrkja sig og
bera barminn vel.
58 Æskon