Æskan - 01.05.1991, Blaðsíða 20
heila bók um það! Mikilvægast er að
flýta sér ekki um of, að vera þolin-
móöur, ákveðinn en hlýlegur við
hestinn. Heppilegt er að fara í
bændaskóla eða á námskeið til þess
að læra um hesta.
Hvers á helst að gæta í umgengni við
hesta?
Að reyna að skilja hestinn. Muna á-
vallt: „Þegar kunnáttuna þrýtur tekur
ofbeldið við." (Á norsku: „Nár kunn-
skapen er slutt tar volden vid.") Of
margir gleyma þessu þegar þeir fást
við hesta.
Hverjir þykja þér helstu kostir íslenska
hestsins?
Mikill persónuleiki hans og marg-
þættur gangur.
Hefur þú verið í bændaskóla?
Nei, en í reiðkennaraskólum í Nor-
egi og Svíþjóð.
Við hvað vinnur þú?
Við tamningar/þjálfun og kennslu á
reiðnámskeiðum.
Ertu gift? Áttu börn?
Ég bý með hestamanninum Aðal-
steini Aðalsteinssyni. Við eigum von
á barni í október.
Hefur þú lært að þjálfa hunda? Hefur
þú átt marga hunda?
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
hundum og hef farið á námskeið til að
læra að þjálfa þá. Ég hef átt fimm
hunda. Að þjálfa hunda er svipað og
temja hesta. Ef til vill er auðveldara að
eiga við hundana. Hundur getur verið
með manni allan daginn og þá næst
enn þetra samband við hann en hest.
Hvaða tegundir hunda hefur þú þjálfað?
Hvaða tegund hunda heldur þú að eigi
auðveldast með að læra að leika listir?
Ég hef einu sinni þjálfað „Cocker-
Spaniel"-hund. Hinir eru allir af „-
Border-Collie"-kyni. Ég held að að-
veldast sé að þjálfa það kyn. Ýmsar
aðrar tegundir, sem ekki eru til hér,
eru líka mjög skemmtilegar.
Hver finnst þér helsti munur á skap-
lyndi hunda og hesta?
Hestar eru sjálfstæðari en hundar.
Þeir þurfa ekki eins mikið á mannin-
um að halda og hundar.
Hefur þú átt önnur dýr?
Ég hef átt hamstra, kanínur, mýs,
fugla og kött. Nú á ég hunda, hesta,
ketti og nokkrar kindur.
Hver er fallegasti staður sem þú hefur
séð á íslandi? En í Noregi?
Ég hef lítið séð af íslandi en mér
finnst mjög fallegt í Borgarfirði. bað
eru margir staðir fallegir í Noregi en
ég hef ekki farið mikið um landið.
Hvert langar þig mest til að ferðast?
Til Bandaríkjanna og Ástralíu.
Hefur þú stundað íþróttir aðrar en
þær sem tengjast hestum og hundum?
Hvaða íþróttamenn dáir þú helst?
Nei, lítið, annað en skautaíþróttina.
Mér finnst mjög gaman að fylgjast
með vetraríþróttum. Ég dái mjög
hindrunarhlaups-knapa sem heitir
Hugo Simon og hlýðnikeppni-
knapann Kyra Kyrklun sem varð ann-
ar á heimsmeistaramótinu í haust.
Hver finnst þér mesti kostur við að
eiga heima á íslandi? En í Noregi?
Helsti kosturinn við að eiga heima
á Islandi er sá að maður getur haft
það að starfi að vinna við hesta-
mennsku og tamningar. Mesti gallinn
er sá að ég get ekki keppt á Evrópu-
meistaramótinu og ekki á íslandsmóti
nema sem gestur af því að ég hef ekki
enn íslenskan ríkisborgararétt þó að
ég hafi sótt um hann. Vonandi finnst
lausn á því. En mér finnst gott að eiga
heima hér.
Ég get til að mynda nefnt þann kost
við að eiga heima í Noregi að ódýr-
ara er að ferðast til annarra landa en
héðan. Sumrin í Noregi eru líka hlýrri
en þau íslensku. Ég sakna stundum
sólar og sumars.
Hver er eftirlætis réttur þinn?
Humar.
Á hvaða leikurum hefur þú mest dá-
læti?
Eddie Murphy og Ladda.
En tónlistarmönnum?
Whitney Houston.
Hvaða kosti metur þú mest í fari fólks?
Að það sé hreinskilið og alúðlegt.
20 Æskan