Æskan - 01.12.1994, Blaðsíða 8
AÐ TELJA DAGANA
Hver kannast ekki við jólasönginn
enska: „Á jóladaginn fyrsta...“? í
honum eru taldar gjafir „sem hann
Jónas færði mér...“ hvern jóladaginn
af öðrum.
Við eigum kvæði eftir Jóhannes úr
Kötlum sem lýsir því hvernig jóla-
sveinarnir tínast til byggða í desem-
ber. Þeir telja því með okkur dagana
til jóla.
Frændur okkar Færeyingar eiga
löng söngkvæði til að telja þessa
daga sem okkur finnst oft lengi að
líða. Þau segja frá því hvað heilagur
Marteinn gefur mönnum. Sá hinn
heilagi Marteinn af Tours var meðal
annars verndardýrlingur kirkna á ís-
landi. Gjafir hans eru taldar upp í
mörgum vísum - og auk þess allar
sýndar á frímerkjum sem komu út
30. október. Þau voru prentuð bæði
sem stök merki og gefin út í frí-
merkjahefti. Óli Petersen hefur teikn-
að þessi tvö fjögurra króna frímerki
sem eru offsetprentuð hjá Enschedé
í Hollandi.
Þá hafa Færeyingar einnig gefið
út fjögur frímerki með myndum úr
“Brúsjökuls kvæði“. Það er kvæði
með 86 vísum og hver vísa ferskeytt.
Viðlag er einnig og fjallar um Ólaf
konung sem berst við tröll. Hann
siglir á Orminum langa með rauð
silkisegl. Frímerkin eru að verðgildi
ein, fjórar, sex og sjö krónur. Þau
eru teiknuð af Bárði Jákupssyni.
Jersey á Ermarsundi hefur einnig
sent okkur myndir af jólafrímerkjun-
um sínum. Þau eru með trúarlegum
jólamyndum (mótívum), teiknuð af
Alan Dopp, og er hvert þeirra um
stef í alþekktum jólasálmum - vitan-
lega á ensku. Fyrsta merkið sýnir
fæðinguna í gripahúsinu. Það er 18
penný að verðgildi. Það næsta, 23
penný, sýnir englana sem blása í
lúðra til að kunngjöra fæðinguna. Á
þriðja frímerkinu, sem er 41 penný,
8 Æ S K A N