Skírnir - 01.01.1931, Blaðsíða 97
Skirnir]
Kaupstaðarferðir 1880—90.
91
vildu fá ofurlítið af brauði, urðu þeir að sætta sig við
„púlsbrauð“, sem svo var nefnt. Var það ódýr brauðteg-
und, af líkri gerð og skonrok, en svartleit að lit, og því
oft nefnt svarta- eða /irœ/abrauð. Sumir tóku ofurlítið af
hagldabrauði (kringlum), til að nota sem kaffibrauð, eða
hart kex eða tvíbökur. Um aðrar útlendar brauðtegundir
var þá naumast að ræða. — Næst voru búsáhöldin, sem
■ómögulegt var að vera án, svo sem pottar, ketill, bökunar-
hella — járnplata til þess að baka á kökur. Ennfremur
skóflublöð, ljáblöð og vasahnífar; leirvörur: bollapör, disk-
ar og matarskálar (spilkomur), einnig þvottaskálar og —
hlandkoppar, — áhald, sem orð lék á, að sumstaðar hefði
verið notað til annars en upphaflega var til ætlazt. Enn-
fremur smíðajárn, naglar og kol; eitthvað af borðvið, svo
að ávallt væri til a. m. k. efni í líkkistu, ef á þyrfti að
halda, helzt fírskorin borð, og valborð, heil og gegnum
skorin, í amboð og þiljur. Annars var flestur viðurinn þá
heima unninn úr rekatrjám. Af litartegundum mátti fá hellu-
lit, blástein og indigó, einnig ýrrisar apóteksvörur, algeng-
ustu dropa og plástra, þar á meðal »grassíu« (gratia), sem
var þykkur dökkleitur vökvi í mjóum og löngum glösum,
og var ágætis meðal, og kryddvörur, pipar, laukur, negull
og engifer. Seyði af þeirri jurt var á stundum notað til
lækninga við kverkabólgu og hæsi. Var það mjög rammt
og var því engifer einnig kallað »djöflarót«. Svo kom mun-
aðarvaran, kaffi, kandís, sykur og rót, sem þá hét »cikoria«
og var í litlum grænum bréfhylkjum, og hvítur sykur í
toppum, — högginn sykur þekktist þá ekki. Loks tóbak,
rulla, rjól og kardus (allskonar reyktóbak), og vínföng,
helzt brennivín, á fjögra potta kút og allt upp í hálfa
tunnu eða vel það, eftir efnum og ástæðum.
Norðurgafl búðarinnar var timbur-skilveggur á milli
hennar og herbergis, er þar var fyrir utan. Á þessu þili
voru margir kringlóttir skildir af ýmsri stærð, en þó var
einn þeirra miklu mestur, gulur að lit. Leit þetta út líkt
og mynd af sól, umkringdri plánetum, og þessi sól sendi
— á sinn hátt — líf og yl út um allt Suðurlandsundir-