Valsblaðið - 11.05.1973, Side 3
VAJLUR
31. TÖLUBLAÐ — 1973
ÚTGEFANDI: Knattspyrnufélagið VALUR. Félagsheimili, íþróttahús og leikvellir að Hlíðarenda við Laufásveg. RITSTJÓRN: Frímann Helga-
son, Gunnar Vagnsson, Sigurdór Sigurdórsson og Jón Karlsson. Auglýsingaritstjóri: Friðjón Guðbjörnsson. Prentað í ísafoldarprentsmiðju hf.
Séra JóhaMin tilíiYar:
Aí máli má manninn þekkjau
5?
Svo segir Drottinn hersveitanna, ísraels Guð:
„Hlýðið minni raustu, þá skal ég vera yðar Guð
og þér skuluð vera mín þjóð, og gangið jafnan
á þeim vegi, sem ég býð yður, til þess að yður
vegni vel“. (Jer. 7. 23.)
Kæra íþróttafólk og þér sem unnið íþróttum,
eitt ár er liðið í aldanna skaut, ár mikilla við-
burða, þar sem Ólympíuleikarnir voru haldnir
og ótal ný met voru sett, svo hátindar íþrótta-
ársins sé getið. Það vekur ætíð furðu, hver geta
mannsins er, henni virðist lítil takmörk sett, þar
sem saman fer sjálfsögun, einbeittur vilji, þrot-
laus þjálfun og tækni. Og í leik og keppni er það
viðtekin regla, að einn hlýtur sigursveiginn. Það
má sárt reynast þeim, sem aðeins er hársbreidd
frá markinu, sigrinum. En gefurn því gaurn, að
íþróttir hafa annað mark og mið en aðeins að
skapa ofurmenni, þó að fordæmin séu hvatning
til eftirbreytni. Markmið íþrótta hlýtur ávallt,
hvað heildina snertir, að vera það að saman
mætti fara: heilbrigð sál í heilbrigðum líkaina.
Það er ósk mín og bæn, öllum yngri og eldri
íþróttaunnendum til handa á nýbyrjuðu ári
i973, að þetta fagra orðtak verði ekki innan-
tómt slagorð, heldur það takmark, sem að er
keppt.
Ég tel mig ekki þurfa að eyða orðum að því,
sem eftir heilbrigði líkamans, þegar ég hripa
þessi orð á blað til ykkar íþróttaunnenda, en
hitt væri ekki úr vegi, að ég dveldi litillega við
það, sem eftir heilbrigði sálarinnar, frá mínum
bæjardyrum séð.
Við tölum um, að sálarlífið sé okkar innra líf,
okkar duldi maður. Þessi,okkar innri maður ger -
ir vart við sig í töluðu orði og við segjum: Af
máli má manninn þekkja — og hins vegar tjáir
okkar innri maður sig í verkunum, en því má
ekki gleyma, að á bak við hvort tveggja: orj5 og
athöfn býr innsti kjarni sálarlífsins, þ. e. a. s.
hugsunin. Það gefur því augaleið að eins og lík-
aminn þarf sína næringu og þjálfun til þess að
verða heilbrigður, þannig þarf sálin sina nær-
ingu og þjálfun. Þar eru margar raddirnar, sem
kalla i dag og vilja benda á leiðir til fagnaðar og
hamingju og það þarf bæði dómgreind og stælt-
an vilja til þess að velja og hafna í tæka tíð. Og
enga lífsreglu kann ég betri, til þess að hverjum
og einum megi vegna vel en þá að hlýða raust
Drottins og ganga á þeim vegi, sem hann býður.
En ég vil taka það fram og leggja áherzlu á, að
það hvort tveggja er ekki auðvelt og krefst dag-
legrar þjálfunar og sjálfsögunar ekki síður en
líkamsþjálfunin.
Eina leiðin til þess að ná árangri í þeirri íþrótt
er að beina augum sínum til Jesú Krists, höf-
undar og fullkomnara trúar okkar. Hann sagði:
„Eg er góði hirðirinn og þekki mína og mínir
þekkja mig — og þeir munu lieyra mína raust.“
Sá, sem leggur eyrun við raust Jesú, mun rata
réttan veg og vel vegna. í samfélaginu við hann,
veitist það lífsviðhorf, sem skapar heilbrigða sál
og eykur þrótt og dug.
Hlýðum hans raust, þræðum hans veg og þá
mun okkur ekki aðeins vegna vel á þessu nýja
ári, heldur allt til enda.
Megi blessun fylgja öllum íþróttaiðkendum
til heilla fyrir þá sjálfa og þjóðarheildina.
,,y,alur, áfram að markinu!
j L u K f '1 j * i i 11
'7 1
ISIAKQS