Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 8

Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 8
6 VALSBLAÐIÐ um starfshæfni hans og skyldurækni, enda er það mála sannast og vitnis- burður alira kunnugra, að hann hafi rækt skyldur sínar í daglegum störf- um, af hinni mestu trúmennsku og alúð. Frímann Helgason var þó, eins og ég sagði áðan, þekktastur fyrir áhuga- mál sín á sviði íþrótta, og þá ekki sízt fyrir hið mikla starf sitt í knatt- spyrnufélaginu „Val“, þar sem hann var lengi meðal hinna áhugasömustu knattspyrnumanna og lífið og sálin í félagsstarfi þess félags í fjölda ára. Frímann var sem unglingur þrótt- mikill í lund og alltaf mjög fram- lega í hópi jafnaldra sinna í leik og starfi. En knattspyrnu byrjaði hann fyrst fyrir alvöru að æfa í Vest- mannaeyjum og síðar í knattspyrnu- félaginu „Val“ hér í Reykjavík. Það yrði allt of langt mál að rekja hér þá sögu, enda hefur það verið gert á öðrum vettvangi, en það er óhætt að þar hafi hann starfað af brennandi áhuga og átti áreiðanlega mikinn og góðan hlut að gengi þess félags á sviði knattspyrnunnar. Iþróttamál yfirleitt voru áliugamál hans. Um fjölda ára ritaði hann fréttagreinar um íþróttamál fyrir dagblaðið „Þjóðviljann“, var lengi í ritstjórn félagsblaðs „Vals“ og í stjórn íþróttasambands íslands var hann á annan áratug. Þá ritaði liann bækur um kunna íþróttamenn og alls staðar talaði hann máli íþróttanna, þar sem það átti við. Það var því ekki óeðlilegt, að fé- Iagar hans í Val hafi verið honum þakklátir fyrir störf lians í þágu fé- lagsins. Honum lét jafn vel, að starfa með hinum eldri félögum og þeim sem ungir voru, alls staðar kveikti hann eld áhuga í kringum sig. Það er því vissulega mikið skarð fyrir skildi í þessum félagsskap við frá- fall hans og á þessari kveðjustund þakka Valsmenn honum af lirærðu hjarta fyrir hið mikla starf hans í þágu félagsins. Hér er eðlilega margs að minnast, þegar Frímann Helgason er kvadd- ur hér. Milli systkinanna og foreldra þeirra var náið samband á æskuárum þeirra austur í Vík, og milli systkin- anna innbyrðis, eftir að foreldrar þeirra voru fallnir frá. Af sjö syst- kinum eru fimm á lífi, búsett hér syðra. Samheldni í þessari fjölskyldu hefur jafnan verið mjög náin. Frímann var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Guðríður Sveinsdóttir frá Fossi í Mýrdal og eignuðust þau eina dóttur, Hönnu. Síðari konu sinni, Margréti Stef- ánsdóttur kvæntist hann 12. júní 1941 og lifir hún mann sinn, ásamt 2 börn- um þeirra, Guðrúnu og Höskuldi. Geymast nú hinar fegurstu minning- ar um heimilislíf þeirra hjóna og sam- starf allt og barna þeirra. Hann var frábær heimilisfaðir og óvenjulega mikill starfsmaður. Höfðu þau hjón- in byggt sér fagran sumarbústað í Mosfellssveit og ræktað þar mikið og þar átti fjölskyldan margar indælar stundir. En einnig gáfu þau sér tíma til þess að ferðast nokkuð, bæði inn- an lands og utan. . .Það var næsta ótrúlegt, livað Frí- inann Helgason hafði tíma til þess að sinna mörgu, bæði skyldustörfum sínum og liugðarmálum, enda eyddi hann ekki tíma sínum í óreglu og aðra fánýta liluti. Hann var elztur systkina sinna og var þeim hjartfólginn bróðir og mjög var liann kær tengdafólki sínu og frændbörnum. Við æskustöðvar sínar austur í Mýrdal var liann bundinn sterkum böndum, ekki sízt heimilið í Görðum í Reynishverfi og sína góðu vini þar, hjónin frú Gunnheiði og Klemens Árnason. Svo að segja á hverju sumri eða hausti, hin síðari ár hafði Frí- mann farið austur að Görðum og var þar jafnan mikill aufúsu gestur, og því flyt ég hér þakkir og kveðjur þeirrar fjölskyldu fyrir tryggð hans og vináttu frá Iiönum árum, og ég veit, að það er lilýlega hugsað til hans austan úr Mýrdal. Við, sem ólumst upp með honum þar eystra, minnumst bjartra æsku- daga og æskufélaga og finnum til trega og saknaðar, þegar góðir vinir liverfa úr liópnum. Það eru rúm- lega 51 ár, síðan við vorum fermdir í gömlu kirkjunni að Reyni, það var um hvítasunnuleytið á björtum vor- degi. Og árin hafa liðið og straumur tím- ans hefur borið okkur, fermingarsyst- kinin, í ýmsar áttir og Iífsreynslan hefur að sjálfsögðu orðið ólík, en Guði séu þakkir fyrir það, sem vel hefur tekizt, og hann mun líta í sinni mildi á hitt, sem ófullkomið og áfátt hefur verið. Innst inni var Frímann Helgason alvörumaður, þó að hann væri glaður og bjartsýnn og hið mesta lipurmenni. Hann gerði sér það stundum til gam- ans, að senda foreldrum sínum og systkinum kveðju í ljóðum, þegar hann var að heiman, ekki sízt þegar jólin nálguðust, og var oft beðið eftir þessari kveðju með mikilli eftirvænt- ingu og tilhlökkun. Mig langar til að hafa hér yfir eitt erindi úr slíkri kveðju, ekki vegna þess að Frímann hafi haft svo liáar hugmyndir um kveðskap sinn eða hæfileika sína í þá átt, enda hélt hann því lítt á lofti, heldur vegna hins, að það lýsir all- vel lífsviðhorfum hans sjálfs og þeim hug, sem liann bar til ástvina sinna, og einmitt nú er líka að líða að jól- um og ósýnilegar bylgjur trúar og kærleika fara þá um hugi flestra manna. Erindi það, sem ég ætla að fara hér með er þannig: Gefi ykkur öllum Guð á hæðum gleðileg og kærleiksþrungin jól, eining lijartna, ást í unaðsklæðum yfir ykkur Ijómi dýrðarsól. Hann er þar og liann er liér og víðar, hann, sem göfgar, gefur veikum þrótt. Hann mun senda bylgjur kærleiks blíðar, að brjósti ykkar þessa helgu nótt. Mér finnst, að þessi orð geti einnig verið jólakveðja hans til ástvina hans nú, þó að hann sé ekki lengur hjá þeim að sýnilegum samvistum. Við hefðum öll óskað þess, að Frí- manni Helgasyni hefði orðið lengra lífs auðið og liann hefði fengið að njóta lieilsu og krafta og fengið að starfa lengur fyrir ástvini sína. En það er ekki á neins manns valdi að segja, livað bezt er á liverri tíð. En eftir hann liggur mikið starf, og ástvinir hans geyma í liuga sín- um kærleiksríkar minningar og þeg- ar hugsað er um fyrirheit framtíð- arinnar, kærleika Guðs og liandleiðslu, getum við sannarlega verið bjarsýn. Fagur var hans lífsdagur, fegri er upp runninn dýrðardagur hans hjá Drottni lifanda. (J. H.) Með þeim hug er liann kvaddur af eiginkonu og börnum, barnabörnum og tengdabörnum, félaga hans í Val, samstarfsfólki í „Isaga“ og fjölmörg- um vinum, nær og fjær. Við blessum öll minningu hans og felum liann og ástvini hans Guðs kærleiksríku liand- leiðslu. Flýt þér, vinur, í fegra heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa Guðs um geim. (J. H.) Óskar J. Þorláksson. VALSFÉLAGAR! I I ]>iA niinnizi iálimia lellingj.'i. vina «ða félagn, þá mnnið pflir Míinninfiarn jóíH KrÍNljáns liclijanonar. Mimiiiigars|>jöl«l sjádsiiis fásl í Ilákabúd llraga.

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.