Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 9
VALS BLAÐIÐ
7
StarfiS er margt
ÍJr shýrslu aðalstjórnar
„Kynslóðir koma, kynslóðir íara“.
Það sannaðist áþreifanlega hjá okk-
ur Valsmönnum, þegar fregnin um
andlát vinar okkar og félaga Frí-
manns Helgasonar barst okkur til
eyrna í nóv. s.l. Okkur setti hljóða.
Gat það verið, að hann Frímann væri
horfinn frá okkur. Hann Frímann,
sem var önnum kafinn við að skrifa
Valsblaðið. Getur það verið að við
fáum ekki lengur að hlusta á hann
Frímann á fundum eða við önnur
tækifæri, hvetja Valsmenn til dáða
eða leiðbeina þeim yngri við okkar
sameiginlega áhugamál. En vegir
Guðs eru órannsakanlegir og þegar
kallið kemur, þá verður engu breytt
þar um. Eitt er víst, að Frímann
Helgason hefur, sem íþróttamaður,
unglingaleiðtogi og forustumaður í
Val, skipað sér á bekk með þeim
Valsmönnum, sem ávallt mun verða
minnzt á meðan Valur er til.
Ég mun ekki frekar rekja feril Frí-
manns Helgasonar í Val hér, það er
gert á öðrum stað í blaðinu, en ég veit
að ég mæli þar um fyrir alla Vals-
menn, að með fráfalli Frímanns
Helgasonar er horfinn af sjónarsvið-
inu hjá okkur í Val svipmikill og
kappsfullur baráttumaður fyrir mál-
efnum Vals. Innilegustu samúðar-
kveðjur eru hér með fluttar af öllum
Valsmönnum til Margrétar Stefáns-
dóttur eftirlifandi eiginkonu Frí-
manns Helgasonar, svo og börnum,
tengdabörnum, barnabörnum og öðr-
um skyldmennum.
Á aðalfundi Vals 4. maí sl. voru
eftirtaldir menn kosnir í aðalstjórn
félagsins: Þórður Þorkelsson form.,
Einar Björnsson varaform., Guð-
mundur Ingimundarson ritari, Sig-
urður Guðmundsson gjaldkeri og Sig-
urdór Sigurdórsson bréfritari. í vara-
stjórn Lárus Loftsson og Stefán
Árnason.
Að vissu leyti markaði þessi aðal-
fundur tímamót í sögu félagsins, því
þetta var fyrsti aðalfundur eftir laga-
breytinguna frá 1971, en þá voru að-
alfundir gerðir að fulltrúafundum.
Það er hlutverk aðalstjórnar á
hverjum tíma að leysa úr og fram-
kvæma ýms sameiginleg málefni, sem
ávallt eru til staðar í félagi eins og
Val. Síðastliðið ár var engin undan-
tekning frá því.
Eitt meginverkefnið var Hlíðar-
endasvæðið og þá sérstaklega bygg-
ing knattspyrnuvallar. Framkvæmdir
hófust á miðju sumri við uppfyllingu
og hefur nú verið varið um kr.
350.000,00 til þessara framkvæmda,
auk þess hafa velviljaðir aðilar gefið
bæði vinnu, akstur og uppfyllingar-
efni, sem annars hefði kostað mikið
fé. Hér er um að ræða grasvöll, sem
verður að stærð 120x90 m2. íþrótta-
nefnd ríkisins ásamt íþróttafulltrúa
Þorsteini Einarssyni, svo og íþrótta-
ráð Reykjavíkurborgar og stjórn
Iþróttabandalags Reykjavíkur hafa
fyrir sitt leyti samþykkt þessar fram-
kvæmdir, samkvæmt fyrirliggjandi
teikningum. Einnig hefur fjárveiting-
arvald Alþingis samþykkt þessar
framkvæmdir. Öllum þessum aðilum
og öðrum, sem lagt hafa þessu máli
lið er hér með þökkuð þeirra aðstoð
og góður skilningur á málefnum fé-
lagsins.
Á árinu hefur markvisst verið unn-
ið að fullkominni spjaldskrá yfir fé-
lagsmenn. Skrifstofa félagsins og
vinna við spjaldskrá hefur verið í
umsjá ritara félagsins Guðmundar
Ingimundarsonar og hefur hvort
tveggja tekið miklum breytingum til
hins betra. Sú nýbreytni var tekin
upp að hafa skrifstofuna opna 2
stundir á viku hverri til reynslu eða
á fimmtudögum kl. 5—7 e. h. Þang-
að geta menn komið og fengið upp-
lýsingar um félagið, greitt sín ár-
gjöld o. þ. h.
Skíðaskáli félagsins hefur verið
töluvert á dagskrá og hefur sú breyt-
ing á orðið viðvíkjandi rekstri hans,
að fulltrúaráð félagsins hefur tekið
við honum. Fyrirhugaðar eru endur-
bætur á skálanum og þegar rafmagn
hefur verið leitt í skálann, stórbatn-
ar öll aðstaða þar til dvalar og félags-
legs starfs. Einnig hafa hjónin Anita
og Bjarni Jónsson tekið mikilli tryggð
við skálann, dvalið þar, haldið hon-
um hreinum og vistlegum.
Meðal fastra liða í starfsemi fé-
lagsins er rétt að geta 11. maí, sem
er stofndagur félagsins. Þá er ávallt
opið hús að Hiíðarenda og er ánægju-
legt hve margir Valsmenn og velunn-
arar félagsins leggja leið sína að Hlíð-
arenda þann dag. Valsdagurinn fór
fram í ágúst og tókst vel að venju.
Árshátíð félagsins var haldin í apríl,
var vel sótt og höfðu Valsmenn og
gestir góða skemmtan af. Formanna-
skipti urðu í fulltrúaráði félagsins,
Frímann Helgason, sem verið hafði
formaður í 10 ár, lét af því virðulega
embætti, en við tók Hermann Her-
Andreas Bergmann og formaður Vals
Þórður Þorkelsson.
mannsson og vil ég bjóða hann vel-
kominn til starfa. Valsblaðið kom út
upp úr áramótum, stórt og vandað
að venju. Var það að þessu sinni að
töluverðu leyti tileinkað Val 60 ára.
Aðalritstjóri var Frímann Helgason
og auglýsingastjóri Friðjón Guð-
björnsson. Samvinna aðalstjórnar og
deildastjórna var mjög góð. Haldnir
voru fundir með form. deilda og gjald-
kerum. Þar voru málefni félagsins
rædd, bæði íþróttamálefni og fjármál.
Deildir hafa haldið sína aðalfundi og
eru skýrslur deildanna birtar á öðr-
um stað í blaðinu, en þær bera vott
um mikið og gott starf.
Mikið var um ferðalög einstakra
flokka á árinu, bæði utanlands og inn-
an. Alls fóru rúmlega 100 stúlkur og
piltar í keppnisferðir til útlanda á
vegum félagsins, aðallega unglinga-
flokkar. Tóku flokkarnir þátt í keppn-
um og mótum með mjög góðum ár-
angri. Einnig komu í heimsókn flokk-
ar til keppni hér heima, bæði frá Dan-
mörku og Færeyjum. Valur átti 6
menn í landsliði Islands í handknatt-
leik, sem þátt tók í olympíuleikunum
í Miinchen, en þetta eru fyrstu Vals-
mennirnir, sem taka beinan þátt í
Olymíuleikum og vil ég nota tækifær-
ið að þakka þeim fyrir góða frammi-
stöðu og að þeir voru félagi sínu til
mikils sóma.
Margir góðir sigrar unnust á árinu
í öllum þeim greinum, sem Valur tek-
ur þátt í, eins og fram kemur í skýrsl-
um deildanna.
Allt bendir til að fjárhagsleg af-
koma félagsins verði góð á árinu,
þrátt fyrir að sumir tekjuliðir hafi
ekki orðið eins góðir og vonir stóðu
til og þrátt fyrir það, að allur til-