Valsblaðið - 11.05.1973, Síða 10
8
VALSBLAÐIÐ
kostnaður hafi hækkað. Mest munar
um getraunirnar, en þær hvíla því
miður á herðum of fárra félagsmanna.
Ég vil hvetja alla Valsmenn til að
leggja þar hönd á plóginn, ,,því marg-
ar hendur vinna létt verk“. Getrauna-
umboðsstaðir félagsins eru nú 62 tals-
ins.
Ég hef hér að framan getið um
meginþætti félagsstarfsins á árinu og
þá einkum það, sem að aðalstjórn fé-
lagsins snýr, en meginstarfsemin fer
að sjálfsögðu fram í deildunum. Vel-
gengni félagsins er komin undir starfi
þeirra, svo og samheldni og áhuga
hvers einstaks félagsmanns. — Mikið
starf og áhugi var einkennandi fyrir
síðastliðið ár. En ávallt má betur
gera. — Valsmenn! Látum ekkert
tækifæri ónotað, sem vera kann til
heilla og framgangs okkar sameigin-
lega málefni, „Val“. Því hvað er Val-
ur? Það ert þú, ég og allir hinir.
Þ. Þ.
Vr skýrslu
knattspyrnudeildar
Stjórnin:
Stjórnin, sem nú lýkur störfum, var
kosin í janúar 1972. Hans Guðmunds-
son var kosinn formaður. Aðrir stjórn-
armeðlimir skiptu þannig með sér verk-
um: Elías Hergeirsson, varaformaður,
Gísli Þ. Sigurðsson, gjaldkeri, Magnús
Ólafsson, ritari og Svanur Gestsson
meðstjórnandi.
í varastjórn voru: Halldór Einarsson,
Steindór Hjörleifsson og Sigurður Hall-
dórsson. Varamenn voru boðaðir á
stjórnarfundi. Haldnir voru 19 bókaðir
fundir, auk margra skyndifunda.
Fulltrúar:
K.R.R. Elías Hergeirsson, aðalfulltrúi
og Róbert Jónsson til vara.
Æfingar og þjálfun:
Óli B. Jónsson var ráðinn þjálfari
fyrir meistara- og fyrsta flokk, honum
til aðstoðar var Þorsteinn Friðþjófsson.
2. flokkur. Lráus Loftsson og honum
til aðstoðar Guðlaugur
Björgvinsson.
3. flokkur. Helgi Loftsson með Svan
Gestsson til aðstoðar.
4. flokkur. Róbert Jónsson með Björn
Hafsteinsson sem aðstoðar-
mann.
5. flokk þjálfuðu Smári Stefánsson og
Stanojev Krsta.
Æfingarsókn var yfirleitt góð fram-
anaf, en minnkaði þegar fram í sótti.
Arangur í mótum:
í Reykjavíkurmótinu hafnaði meist-
araflokkur í 2. sæti með 8 stig. í íslands-
mótinu í 5. sæti með 13 stig. í bikar-
Það er ekki amalegt að hvílast í trjálundi að lokinni æfingu.
Veðurguðirnir léku ekki alltaf við knattspyrnumennina í sumar er leið. Hér er Ingvar
með boltann í leik Vals og IBV og gerir tilraun til að leika á Friðfinn Finnbogason.
Þórir Jónsson fylgist spenntur með.
keppninni unnu þeir Ármann 1—0,
Akranes 2—1 í Reykjavík, en töpuðu
síðan fyrir Vestmannaeyingum 4—0,
leikið var í Vestmannaeyjum. Reykja-
víkurmótið í innanhússknattspyrnu vann
Valur, en hafnaði í 3. sæti í sínum riðli
í íslandsmótinu, sem fór fram um pásk-
ana, en einmitt þá var árshátíð félags-
ins haldin.
Yngri flokkar félagsins sigruðu í eft-
irtöldum mótum:
2. flokkur B: Reykjavíkur-, miðsumars-
og haustmót.
3. flokkur B: Haustmót.
4. flokkur A: íslandsmót.
4. flokkur B: Reykjavíkui'-, miðsum-
ars- og haustmót.
Afbragðs árangur náðist í einstaka
flokki, svo sem 4. flokki, sem sigraði í
íslandsmótinu og öllum mótum B-liðs.
Einnig náðist mjög viðunandi árangur
í 2. flokki, þótt ekki ynnist þar mót í
A-liði. 3. flokkur fór vel af stað, en áhugi
minnkaði nokkuð, er á leið, þó vannst
haustmót í B-liði. Áhugi yngstu drengj-
anna brást okkur ekki, æfingarsóknin
þar var alltaf góð, og oft munaði litlu,
að þeii' ynnu mót.