Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 14

Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 14
12 VALS BLAÐIÐ 2. flokks skemmtilegt, en þar stóð utan- ferð fyrir dyrum. í lok keppnistímabilsins voru haldn- ar „uppskeruhátíðir“, þar sem sigur- vegarai' úr hinum ýmsu mótum hlutu viðurkenningu. /þróttamiðstöðin á Laugarvatni. Dagana 7.—9. júlí dvaldist meistara- flokkur að Laugarvatni við æfingar, einnig var 4. flokkur þar 9.—14. júlí. Stillt upp fyrir æfingu á Laugarvatni. Vilhjálmur Kjartansson fremstur. Jó- hannes Eðvalds. til hægri heldur ábúðar- mikill. Fordkeppnin. í maí í vor efndi Fordumboðið til knattþrautarkeppni fyrir yngstu knatt- spyrnumenn félaganna. 7—12 ára dreng- ir gátu tekið þátt í þessari keppni. Um 80 Valsdrengir kepptu um að komast í úrslit, sem háð voru á Laug- ardalsvellinum, þar sem hinn frægi enski knattspyrnukappi, Bobby Charlton, af- henti verðlaun. Tveir Valsdrengir kom- ust í úrslit, báðir í sama aldursflokki, 8 ára, en þar sigraði annar þeirra, Magnús Þór Ásmundsson. Þjálfaranámskeið: í sumar fóru tveir af þjálfurum yngri flokkanna á þjálfaranámskeið til Eng- lands á vegum Vals. Það voru þeir Helgi og Lárus Loftssynir. Rómuðu þeir bræður mjög kennslu og allan aðbúnað þar. Kvennaknattspyrna innanhúss. Valur sendi kvennalið til keppni á Knattspyrnumóti Islands innanhúss. Ár- angur var þokkalegur miðað við að stúlk- urnar fengu aðeins nokkra tíma til und- irbúnings mótinu. Kvennaknattspyrna ryður sér nú mjög til rúms, bæði úti og inni, og þarf stjórn knattspyrnudeildarinnar að fara að at- huga þetta mál nánar. Valsdagurinn 1972. Valsdagurinn var nú haldinn 10. sept- ember, sem var einn af fáum sólskins- dögum á þessu sumri. Að venju komu margir gestir á félagssvæðið þennan dag til að fylgjast með dagskránni, sem var hin ánægjulegasta. Heimsóknir. Síðla sumars fengum við óvænta send- ingu frá Vestmannaeyjum. Var þar 2. flokkur Gladsaxe frá Danmörku. Valur og Í.B.V. hafa haft góða samvinnu i sambandi við heimsóknir erlendra liða. Fyrirvarinn var mjög stuttur en samt tókst þetta með ágætum. Gistu þeir í félagsheimilinu og borðuðu á Múlakaffi. Gladsaxe-piltarnir léku við jafnaldra sína í Val og sigruðu Valspiltarnir. Stjórnin bauð flokknum í ferðalag aust- ur fyrir fjall, með þeim fóru Hermann Hermannsson og Gísli Þ. Sigurðsson, sem sá að mestu leyti um heimsókn þessa. Voru Danirnir mjög hrifnir af dvölinni hér. Og hafa boðið Val að koma með 3. flokk til Danmerkur næsta sumar. Utanferðir. Seinni hluta júlí og byrjun ágúst voru um 50 manns úr knattspyrnudeildinni erlendis. Voru það meistaraflokkur, sem fór til Færeyja og 2. flokkur, sem fór til Brummunddalen í Noregi. Aftar í þessari skýrslu er nánar getið um ferðir þessar. Getraunir. Sala og dreifing getraunaseðla var nú sem og undanfarin ár undir góðri stjórn gjaldkera okkar, Gísla Þ. Sig- urðssonar. Salan hefur verið heldur minni hjá deildinni í ár en í fyrra. Þyrfti enn að gera stórt átak i þeim efnum og reyna að dreifa þessari miklu og mikilvægu vinnu á fleiri menn. Erlendur þjálfari. Það hefur lengi verið óskadraumur margra Valsmanna að fá hingað góðan erlendan þjálfara. Snemma í sumar kom- umst við í samband við sovézka sendi- ráðið, fyrir tilstuðlan og uppástungu Magnúsar Helgasonar, forstjóra í Hörpu, um að fá hingað sovézkan þjálf- ara næsta sumar. Það hefur nú tekizt, og mun hann byrja þjálfun hjá félag- inu 1. febrúar 1973. Þjálfari þessi, sem heitir dr. Itytchev er doktor í íþrótta- fræðum og hefur þjálfað í heimalandi sínu og erlendis með ágætum árangri. Væntum við mikils af honum og hlökk- um til að sjá hvernig hann starfar. Stjórnin vill sérstaklega þakka Magnúsi Helgasyni fyrir hans mikla þátt í þessu. Færeyjaferð. Meistaraflokkur félagsins fór til Fær- eyja 25. júlí til 1. ágúst 1972. Ferðin var farin til að leika á Olafsvöku og var farið í boði H.B. og B 36. Leiknir voru þrír leikir í ferðinni: 26. júlí Valur—B—36 3—2 29. júli Valur—H.B. 0—3 31. júlí Valur—Þórshafnarúrval 2—1 Búið var á farfuglaheimilinu og að- búnaður ágætur. I heild tókst ferðin mjög vel. Neskaupstaðarferð 3. flokks. I ágúst í sumar fór 3. flokkur félags- ins til Neskaupstaðar í boði Þróttar á Neskaupstað. Lagt var af stað á föstu- degi um klukkan 3 með flugvél F.l. og Tveir góðir saman. Hörður og Þórir í æfingabúðum að Laugarvatni. lent á Egilsstöðum eftir klukkustundar flug. Þaðan var svo farið með áætiun- arbii til Neskaupstaðar, en sú ferð tök um 3 tíma, en margt var að sjá á leið- inni, því þarna er fallegt og veðrið alveg sérstaklega gott þennan dag. Móttökurn- ar á Neskaupstað voru með ágætum. Sofið var í skólanum en borðað á heim- ilum drengjanna á staðnum. Leiknir voru tveir leikir og töpuðust báðir 2—3 og 0—1. Valsdrengirnir létu það ekki á sig fá, var alltaf góður andi á töp- unum, og framkoma þeirra til fyrir- myndar. I þessari ferð tóku þátt 12 drengir. Heim var svo komið á sunnu- dagskvöldið eftir ánægjulega ferð. Með drengjunum fór Hans Guðmundsson. Ferð J. flokks að Laugarvatni, 9.—H. júlí. I æfinga- og keppnisferð að íþrótta- miðstöðinni á Laugarvatni komu á s.l. sumri 30 drengir úr 4. flokk. Farið var af stað úr Reykjavík á sunnudegi kl. 16.00, og þegar til Laugarvatns kom tekið upp „pláss“, sem meistaraflokkui'- inn hafði notað 2 sólarhringana áður. Á Laugarvatni var dvalizt við æfingar, fai'ið í sund og gufuböð, verið við leiki og kvöldvökur, svo sem þeir þekkja, er verið hafa á staðnum áður. Veður var sæmilcgt, en ekki fór hópurinn varhluta af íigningunni, sem svo oft kemur við á Laugarvatni. Vegna þess varð minna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.