Valsblaðið - 11.05.1973, Qupperneq 16
14
VALS B LAÐIÐ
um við engu að kvíða. Þá er því ekki
að leyna að við bindum miklar vonir
við sovézka þjálfarann, sem við erum
að fá og vonum, að hann geti kippt
í lag ýmsum hlutum, sem verið hafa
í ólagi innan liðsins. Árni Njálsson
hefur verið með liðið í vetur og hef-
ur þegar náð miklum árangri, að
okkur finnst, og honum hefur tekizt
að eyða vissum, ja, misskilningi skul-
um við segja, innan liðsins. Hinu er
ekki að leyna, að það ríkir engin
bjartsýni hjá okkur í stjórn knatt-
spyrnudeildarinnar fyrir næsta sum-
ar hvað því viðkemur að vinna titla.
En takist okkur að gera gott
lið úr þeim efnivið, sem við höfum,
þá er mikið fengið, vegna þess að við
teljum að í sumar verði mótað að
hluta okkar framtíðarlið, þar eð ung-
ir menn verða að koma inn í liðið.
Auðvitað fer árangurinn aðeins eftir
drengjunum sjálfum og við vonum að
síðasta sumar hafi verið þeim næg
lexía.
— Hefur félagslífið verið gott hjá
knattspyrnudeildinni ?
— Það hefur verið allsæmilegt. Við
höfum verið með kaffifundi, spila-
og taflkvöld og mér finnst þau hafa
tekizt allvel. Og nú höfum við skipað
unglinganefnd sem sjá á um félagslíf
yngri flokkanna. Hún á að skipuleggja
allt félagsstarf þeirra og þegar hafa
verið haldnir fundir hjá nefndinni og
ákveðið prógram lagt fram. Þar með
má segja að komið sé fast form á
félagslífið og það tel ég vera til bóta.
Þá verður þessi nefnd einnig starf-
andi í sambandi við leiki yngri flokk-
anna í sumar og er ætlunin m. a. að
hvetja foreldra drengjanna til að
koma á leiki og fylgjast meira með
hvað verið er að gera, en verið hefur.
Það er ætlunin að senda heim með
drengjunum fjölritaða miða, þar sem
höfðað verður til foreldranna að koma
og fylgjast með flokkunum í keppni.
— Hvernig hefur þér líkað að
starfa í stjórn deildarinnar sem for-
maður?
— Mér finnst þetta nú vera að lag-
ast. Ég var alls óvanur svona störf-
um, þegar ég byrjaði í fyrra, en mað-
ur kemst inn í þetta og það er mik-
ill áhugi innan stjórnarinnar að kippa
málunum í lag og taka þau fastari
tökum en verið hefur og takist það,
hygg ég að árangurinn láti ekki á
sér standa.
VAI.SME.VN!
Vel klæddir menn (og konur) eru
oft nefndir snyrtimenn. Ef þið
komið í Valsbúningi ykkar hrein-
um og stroknum til leiks hljótið
þið sama heitið, og Valur og þið
hafið heiður af.
IJr skýrslu
handknattleiksdeildar
Stjórn deildarinnar hélt mjög marga
fundi á starfsárinu, og voru þeir yfir-
leitt haldnir á fimmtudögum á skrif-
stofu félagsins. Mörg mál voru tekin
þar til yfirvegunar, enda starfsárið mjög
annasamt í alla staði. Skal nú reynt hér
í skýrslu þessari að gera grein fyrir því
helzta.
Eins og öllum er kunnugt, þá var þýð-
ingarmesta mál okkar, útvegun þjálfara
erlendis frá, og tók það mál drjúgan
tíma af starfsárinu. Málið gekk mjög vel
framan af og var um tvo erlenda þjálf-
ara að ræða, sem við gátum fengið, en
því miður varð það hálf endasleppt, því
að ljóst er að ekkert verður úr þessu að
sinni.
Akveðin var keppnisferð með ungl-
ingaflokka deildarinnar til Danmerkur
og Svíþjóðar, og tókst hún með miklum
ágætum. Þátttakendur voru 50.
Tekið var á móti færeysku meistur-
unum Neistinn og léku þeir hér á landi
fjóra leiki, o. fl. o. fl.
Æfingar, þjálfun og þjálfarar.
Þjálfarar deildarinnar veturinn 1971
—1972 voru:
1. og meistarafl. kvenna: Stefán Sand-
holt.
2. flokkur kvenna: Geirarður Geirarðs-
son.
Hér flýgur Ólafur H. Jónsson hátt í leik
við Ií. R. Og hefur tvo Valsmenn sitt
hvoru megin við sig, þá Gunnsteinn og
Ágúst. Vörn K. R. víðsfjarri góðu gamni.
3. flokkur kvenna: Sigurjóna Sigurðar-
dóttir og Bergljót Davíðsdóttir.
1. og meistarafl. karla: Reynir Ólafsson.
2. flokkur karla: Þórarinn Eyþórsson.
3. flokkur karla: Stefán Bergsson og
Þórður Sigurðsson.
4. flokkur karla: Örn Petersen og Jafet
Ólafsson.
5. flokkur karla: Jóhann Ingi Gunnars-
son og Kristján Þorvaldsson.
Flokkarnir höfðu æfingatíma innan-
húss svo sem hér segir: Meistaraflokkur
og 1. fl. kvenna æfðu einu sinni í viku
í Laugardalshöllinni í 50 mín. og einu
sinni í viku í okkar húsi 100 mín.
Meistaraflokkur og 1. fl. karla æfðu
einu sinni í viku í Laugardalshöllinni í
100 mín. og tvisvar í viku í okkar húsi
í 150 mín.
2. og 3. fl. kvenna og 2., 3. og 4. fl.
karla æfðu tvisvar í viku í okkar húsi.
En 5. fl. drengja aðeins einu sinni í viku
hverri.
Þannig æfðu handknattleiksflokkar
Vals um 24 tíma í viku hverri með um
230 þátttakendum, með leiðsögn 12 leið-
beinenda.
Æft var utanhúss í allt sumar hjá
meistara-, 1. og 2. flokki kvenna og hjá
2. og 3. flokki karla og voru að jafnaði
2—3 æfingar í viku. Þá æfði meistara-
flokkur karla einnig til undirbúnings
þátttöku í Islandsmótinu utanhúss.
Við viljum hér með þakka okkar stóra
leiðbeinanda og þjálfarahópi fyrir ein-
Stefán í færi, en Ágúst í 1. R. hefur stolið
boltanum af Stefáni.