Valsblaðið - 11.05.1973, Blaðsíða 17
VAL.S B L.AÐIÐ
15
a «0 Aá
tfáW'ilSL: y J&m
m Km
Islandsmeistarar Vals í útihandknattleik 1972. Fremri röð f. v.: Hilmar Sigurðsson, Bergur Guðnason, Ólafur Benediktsson,
Jón Breiðfjörð, Gunnsteinn Skúlason fyrirliði, og Ágúst Ögmundsson. — Aftari röð f. v.: Þorbjörn Guðmundsson, Ólafur
H. Jónsson, Jón Jónsson, Stefán Gunnarsson, Gísli Blöndal, Jón Itarlsson, Jón Ágústsson og Þórarinn Eyþórsson þjálfari.
staklega fórnfúst starf í þágu hand-
knattleiksins í félaginu.
Þjálfarar starfstímabilið 1972—1973.
Eins og yfirleitt er reynt að stefna að,
þá lagði stjórn sú er nú skilar af sér
verkum mikla áherzlu á, að hafa þjálfara
tiltæka er þetta tímabil hæfist. Eins og
áður hefur verið drepið á, þá stóð til að
ráðast í það stórvirki að fá til deildar-
innar erlendan þjálfara, þrátt fyrir
óheyrilega há laun þeirra. Og voru marg-
ar ætlanir á lofti með útvegun fjár.
Þjálfari þessi átti að hafa yfirumsjón
með þjálfun yngri floklta, fyrir utan
þjálfun meistaraflokkanna, og þjálfara-
námskeiðs fyrir leiðbeinendur deildar-
innar. En því miður varð ekkert úr
þessu. Þá var ekkert annað að gera en
að við Valsmenn og konur reyndum að
axla byrðina sjálf eins og áður. Og má
segja að nokkuð sæmilega hafi til tekizt,
þrátt fyrir að flest af þeim, sem eru að
þjálfa nú í vetur, hafa öðrum störfum
að gegna í félaginu, og þá sérstaklega
stjórnarstörfum. Þetta er ekki alveg
nógu góð þróun og æskilegt að breyting
verði á.
Þjálfarar verða svo sem hér segir:
Meistaraflokkur og 1. fl. kvenna: Stef-
án Sandholt mun halda áfram þjálfun
þeirra og fer það vel, því að sýnt er að
flokkurinn hefur tekið miklum framför-
um undir hans stjórn.
2. flokkur kvenna verður áfram með
Geirarð Geirarðsson, og honum til að-
stoðar verður ungur efnilegur maður,
Jóhann Ingi Gunnarsson.
3. flokkur kvenna: Sigurjóna Sigurð-
ardóttir mun haida áfram með þær og
hefur hún fengið sér til aðstoðar systur
sína, Hildi Sigurðardóttur.
5. flokkur drengja: Verða þeir með
Davíð Lúðvíksson, Jón Leví Hilmarsson
og Ivar Eysteinsson. Allt ungir og bráð-
efnilegir leiðbeinendur.
4. flokkur karla: Hjá honum verður
Jafet Ólafsson áfram og er það vel, en
hann vantar mann með sér, og vonandi
rætist úr því.
3. flokkur karla: Hjá honum verður
Þórður Sigurðsson núv. varaform., en
hann var einnig þjálfari drengjanna í
fyrra ásamt Stefáni Bergssyni, sem hef-
ur óskað eftir að hvíla sig í vetur. Þórði
til aðstoðar verður Jón Pétur Jónsson
úr mfl.
2. flokkur karla: Þar hefur orðið sú
breyting, að Þórarinn hættir með flokk-
inn, og er vonazt til er þetta er skrifað
að Geirarður Geirarðsson taki 2. flokk
að sér.
Meistara- og 1. flokkur karla: Þar
hætti Reynir þjálfun í sumar, og stóð
til að erlendur þjálfari yrði með flokk-
inn í vetur en það breyttist, og hefur
Þórarinn Eyþórsson hlaupið undir bagga
með þjálfun flokksins í vetur, þar sem
ekki hefur fengizt annar þjálfari. Guð-
mundur Harðarson mun stjórna þrek-
þjálfun flokksins sem fyrr og er hann
í þeim efnum enginn viðvaningur. Reyn-
ir Ólafsson mun verða Þórarni til að-
stoðar í keppnum o. fl.
Þá er upptalið þjálfaraliðið. Um leið
og við bjóðum hina nýju þjálfara vel-
komna til leiðbeinendastarfsins í hand-
knattleiksdeildinni, þá viljum við hér
með þakka þeim Bergljótu Davíðsdóttur
og Stefáni Bergssyni, Erni Petersen og
Kristjáni Þorvaids þeirra ómetanlega
starf í þágu handknattleiksins í Val. En
þau taka sér nú hvíld sem þjálfarar í
vetur. Vonum við að þau eigi eftir að
starfa sem leiðbeinendur síðar. Ekki
veitir af, það er eitt sem víst er. Alltaf
vantar góða leiðbeinendur fyrir okkar
góða efnivið, unglingana.
Mót og leikir.
Svo sem undanfarin ár tók Valur þátt
í öllum opinberum mótum sem haldin
voru á s.l. leikári. Það er að segja: Hand-
knattleiksmeistaramóti Reykjavíkur,
handknattleiksmeistaramóti Islands inn-
anhúss og handknattleiksmeistaramóti
Islands utanhúss. Þá tókum við þátt í
haustmóti Gróttu, hraðkeppni H.K.R.R.
og loks í Copenhagen Cup og Partille
Cup 72. Verður hér á eftir ieitazt við
að rekja árangur Vals í hinum ýmsu
aldursflokkum.
Meistaraflokkur karla.
I Handknattleiksmeistaramóti Reykja-
víkur urðu þeir nr. 1, skoruðu 94 mörk
gegn 51, hlutu 12 stig.
I Handknattleiksmeistaramóti íslands
(innanhúss) urðu þeir nr. 3, skoruðu
184 mörk gegn 175 og hlutu 14 stig.
í Handknattleiksmeistaramóti íslands
(utanhúss) léku þeir í B-riðli og sigruðu
þann riðil, skoruðu 74 mörk gegn 37 og
hlutu 6 stig. Léku síðan til úrslita við
sigurvegara A-riðils, F. H. Sigraði Val-
ur í þeim leik með 9 gegn 8, og þar með
titilinn.