Valsblaðið - 11.05.1973, Side 20

Valsblaðið - 11.05.1973, Side 20
18 VALSBLAÐIÐ Yfirlit um árangur liandknattleiksflokka Vals veturinn 1971—1972. Flokkur: Mót Meistaraflokkur karla 4 1. flokkur karla 2 2. flokkur karla 2 3. flokkur karla 2 4. flokkur kavla 2 Meistaraflokkur kvenna 4 1. flokkur kvenna 2 2. flokkur kvenna 3 3. flokkur kvenna 2 9 flokkar 23 Mót unnin Leikir Unnir Jafnir 3 28 22 2 0 12 8 1 0 14 8 1 0 14 8 4 0 10 3 2 4 23 22 1 2 7 5 1 1 20 13 3 1 11 8 1 11 139 97 16 Tapaðir Mörk % hlutf. 4 415:308 82,1 3 121:104 70,8 5 130:110 60,7 2 122:101 71,4 5 53:64 40,0 0 313:149 97,8 1 27:17 78,5 4 151:72 72,5 2 73:25 77,3 26 1405:950 72,3 Mfl. Vals. Hraðkeppnismeistarar í móti HKRR 1972. Keppnin fór fram meðan undirbúningur landsliðsins vegna þátttöku i Olympiuleikunum stóð sem hæst. Lékum því þar án G fastra Ieikmanna okkar. - Aftari röð, f. h.: Þorbjörn Guðmundsson, Björg- vin Guðmundsson, Ólafur Guðjónsson, Jón B. Ólafsson, Jón Ágústsson, Hörður Hilmarsson, Jón Karlsson, Reynir Ólafsson þjálfari. — Fremri röð: Hilmar Sigurðs- son, Gunnar Ólafsson, Hermann Gunnarsson, og Bergur Guðnason fyrirliði. Islandsmeistarar utanhúss 1972. Frá vinstri. Björg Guðmundsdóttir fyrirliði með sigurlaunin, Oddgerður Oddgeirs- dóttir, Sigurbjörg Pétursdóttir, Svala Sigtryggsdóttir, Sigurjóna Sigurðardóttir, Hildur Sigurðardóttir, Elín Kristinsdóttir, Hrefna Bjarnadóttir, Kristjana Magnús- dóttir, Björg Jónsdóttir. Sigrún Guðmundsdóttir, Ragnheiður Lárusdóttir og þjálfari þeirra Stefán Sandholt. samningar hafa þegar verið undirrit- aðir, og megum við vel við una. Vill stjórn deildarinnar þakka forráðamönn- um Olg. Egils sérstaklega ánægjulega viðkynningu. Viðurkenningar. Það hefur oft verið um það rætt að þeir flokkar yngri flokkanna, sem sigra mót og þá sérstaklega Islandsmót, fái eitthvað að launum til minningar um afrekið. Mun þessari hugmynd ekki hafa verið veitt nein athygli fyrr en á árun- um 1969 og 1970. Stjórn sú, er sat þá við stjórnvölinn, samþykkti þá að veita öllum þeim yngri flokkum, sem sigruðu í landsmótum, verðlaunapeninga. Það hefur hingað til aðeins verið samþykkt- in ein, ekki vegna framkvæmdaleysis viðkomandi stjórna, heldur vegna þess að enginn af yngri flokkunum hefur sigrað í landsmótum síðan þessi sam- þykkt var gerð, þar til á s.l. vetri að 3. flokkur kvenna sigraði í Islandsmeist- aramótinu 1972, og fær nú sá flokkur afhenta fallega gullpeninga frá Hand- knattleiksdeild Vals. Viðurkenningar frá Ölgerðinni Egill Skallagrímsson. Á s.l. starfsári sýndi Ölgerðin Egill Skallagrímsson okkur þá miklu vinsemd að gefa deildinni nokkra verðlaunagripi, sem þeir óskuðu eftir að yrðu afhentir, við hátíðlegt tækifæri, til þeirra er þá ættu að fá. Verðlaunagripir þessir voru síðan af- hentir á s.l. vori. Reglur um þessa gripi eru þannig: 1. Þeim flokki, er nær beztri hlutfalls- legri útkomu á keppnistímabilinu. 2. Þeim þjálfara, er nær beztum árangri. 3. Þeim unglingum, er skara fram úr með ástundun og reglusemi í hverj- um aldursflokki. Þessum gripum var síðan úthlutað á s.l. vori svo sem áður segir, og þá í fyrsta sinni. Hlutu gripina þessir flokkar og einstaklingar: 1. Meistaraflokkur kvenna, fyrir beztan árangur. 2. Sigurjóna Sigurðardóttir og Bergljót Davíðsdóttir, fyrir beztan árangur þjálfara. 3. Fyrir ástundun og reglusemi: a) 2. flokkur kvenna: Jóna Dóra Karlsdóttir. b) 3. flokkur kvenna: Oddný Sigurð- ardóttir. c) 2. flokkur karla: Jóhann Ingi Gunnarsson. d) 3. flokkur karla: Guðni Jónsson. e) 4. flokkur karla: Jóhann Ingólfs- son. f) 5. flokkur karla: Haraldur Jóns- son.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.