Valsblaðið - 11.05.1973, Page 33

Valsblaðið - 11.05.1973, Page 33
VALS BLAÐIÐ 31 þjálfarar, hvernig munduð þið reyna að byggja upp samstillt lið? Sigurður: Ég mundi koma með meira úr sjálfum leiknum inn á æf- ingarnar, menn leiki sínar stöður, æfi vissa hluti, þrír og þrír saman, og geri þetta nokkrum sinnum. Ég mundi líka leggja meiri áherzlu á markvörzlu en yfirleitt er gert. Jóhannes: Ef ég væri þjálfari mundi ég leggja fram ákveðið þrek- ,,prógram“ í byrjun og þar kæmu inn æfingar í lyftingum. Leikaðferðir verða að koma með í æfingunum í ríkum mæli. Ef ég þyrfti að taka mann út af í leik, yrði ég að skýra það fyrir hon- um hvers vegna ég gerði það. Ég mundi setja vörn á móti sókn og reyna að finna veilur varnarinnar eða sóknarinnar og benda á þær þegar. Fyrir leiki mundi ég skilyrðislaust kalla leikmenn saman til töflufunda og ræða leikinn sem framundan er og fara yfir síðasta leik og veilurnar þar. Þórir: Ég mundi gera það sem ég gæti til þess að fræða menn um leik- inn, fá þá til að hugsa sjálfa um það sem þeir eiga að gera. Af hverju þeir ættu að gera þetta og af hverju hitt. Þá mundi ég hafa töflufundi fyrir hvern leik. Ég hef ekki verið á töflu- fundum síðan ég var hjá Róbert Jóns- syni og síðar Árna Njálssyni. Það liggur í hlutarins eðli, að eftir hvern leik þarf að ræða um hann og það sem þar gerist. Varðandi sam- stöðuna mundi ég hafa tilteknar og ákveðnar reglur sem leikmenn yrðu að fara eftir. Vilhjálmur: Það sem mér væri efst í huga sem þjálfari, er að byggja upp nokkra þætti utan vallar áður en farið er út á völlinn til æfinga. Kæmu þá til fundir með leikmönnum og við- ræður um það sem gera skal. Úti á vellinum mundi ég leggja áherzlu á, að menn tækju einkatíma, ef svo mætti segja, og æfa þar tiltek- in atriði. Það mundi lyfta mikið undir, ef gerðar væru áætlanir um utanferðir, °g þá yrði auðveldara að fá menn til að mæta á æfingum. Sigurður: Það má segja að við í meistaraflokki séum alltaf að æfa undir utanferðir; við höfum alltaf þann möguleika að fara út á hverju ári og það er undir okkur sjálfum komið hvort það tekst eða ekki. Eðli- lega ættum við að setja okkur það mark á hverju vori. Sjöunda spurning: Hvaða kröfur teljið þið eðlilegt, að gerðar séu til leikmanna varðandi ástundun, átök við þjálfun og reglusemi? Sigurður: Ef menn vilja hafa veru- lega gaman af knattspyrnu verða all- ir að taka á, það er skylda gagnvart félögum sínum og félaginu. Svo er það þjálfarans að fá leikmennina til að gera eins vel og bezt verður kosið. Varðandi áfengisneyzlu hafa verið í gildi reglur, þar sem kveðið er á um, að ekki megi neyta áfengis þrem dög- um fyrir leik. Við vitum þó að áfengi er lengur að fara úr líkamanum en þrjá daga. Jóhannes: Ég mundi vilja hafa bannið lengra. Ég tel nauðsynlegt, að menn leggi hart að sér á æfing- um og það er mikið atriði, að þjálf- arinn hafi æfingarnar skemmtileg- ar, þannig að menn geti skemmt sér við þær, fái þá til að brosa og hlæja, svo að þetta verði dálítið í leikformi. Sigurdór: Væruð þið tilbúnir í öll- um tilvikum, að setja mann út úr liðinu fyrir svona brot, hver sem mað- urinn væri? Það er almenn skoðun, að ef reglur væru settar og þeim framfylgt gjör- samlega, að þær yrðu síður eða ekki brotnar. Þórir: Ef menn ætla sér að ná ár- angri, þá verða þeir að mæta alveg skilyrðislaust á allar æfingar. Gott dæmi um þetta er FH í sumar; þar er sagt að æfingasókn hafi verið 99% og það fylgdi með, að enginn þeirra hefði smakkað áfengi í fjóra mán- uði. Eftir þessa fjóra mánuði, eða eft- ir að þeir voru komnir í fulla þjálf- un, varð að líða vika til næsta leiks án áfengis. Takmarkið var alltaf það að vinna. Það er því það sem þarf, að hafa réttan aga og glaðværð í hópnum. Það er rétt, að það eru allt- af menn innan um, sem ekki leggja nægilega hart að sér, en ráðið við því er, að hafa æfingarnar dálítið í keppnisformi, og með lúmskri keppni er hægt að plata þá svolítið og fá þá til að taka meira á en þeir hafa gert. Vilhjálmur: Það er talað um kröf- ur til leikmanna, ef leikmaður ætlast til þess að liðið nái árangri, þá verð- ur hann að gefa alla sína orku til þess að svo megi verða. Ef allir eru samstilltir þá næst árangur. Varð- andi reglusemina vildi ég hafa viku frá ölvun manna til næsta leiks, og mér skilst, að ef til þess kæmi, þá yrði það yfirleitt meðan keppnis- tímabilið stendur yfir, og það mun þykja hroðalegt; en ég er viss um, að ef þeim reglum yrði beitt þá mundi árangurinn ekki láta á sér standa. Nú svo hafa þeir allan veturinn til að bæta sér þetta upp. Skemmtistað- ir hér eru fábreytilegir og eiga þeir ef til vill nokkra sök á þessu ástandi. Skálaferðir gætu dregið úr óreglu yfir sumartímann, ef notaðar væru frístundirnar til þess að sameinast þar, og gætu forustumenn þannig komið til móts við leikmenn á þann hátt. Sigurdór: Er áhugi manna það mik- ill að þeir mundu halda áfram, ef aga- reglum yrði beitt, er nógu mikið af góðum mönnum til að fylla í hugs- anleg skörð, eða eru þeir að gera þetta fyrir félagið eða sjálfa sig? Sú almenna skoðun var, að ef þessu væri framfylgt öruggt, fyndum við að hér væri alvara á ferðum og ef þeim reglum, sem settar væru, yrði fylgt vel eftir, mundi liðið eflast og sameinast, og kom það fram, að menn mundu leggja þetta á sig yfir ákveðin tímabil. Áttunda spurning: Teljið þið að góður erlendur þjálfari mundi breyta miklu í meistaraflokki ? Sigurður: Góður þjálfari hlýtur að breyta miklu og þá sér í lagi, þegar menn eru sammála um, að síðasta sumar hafi ekki verið nógu gott. Jóhannes: Ég mundi hiklaust segja það, að góður þjálfari mundi breyta miklu og ég held að allir hljóti að vera sammála um það. Þórir: Grundvöllurinn fyrir því að ná saman góðu liði hjá Val núna er sá, að fá góða þjálfara, þá fara menn að mæta og hafa gaman af æfingun- um. Vilhjálmur: Ég er alveg sannfærð- ur um það, að ef til Vals kæmi góð- ur þjálfari, sem kann mikið fyrir sér, þá hljóti árangurinn af starfi hans að koma. Þegar ég var að byrja 1 meistaraflokki var alltaf verið að tala um það, hvað Valur ætti góðan efni- við, og nú hlyti þetta að koma, en þetta hefur aldrei komið. Ég held að menn geti verið sammála um það, að það eru góðir einstaklingar og efni- legir menn að koma upp og ég held, að árangurinn láti ekki á sér standa ef að góður þjálfari kæmi. Hins vegar að ef liðinu gengur illa í framtíðinni er hætta á að piltarnir hætti að koma til félagsins, þá er komið hættulegt ástand. Níuntla spurning: Eruð þið bjart- sýnir með næsta keppnistímabil ? Allir létu í ljós bjartsýni með kom- andi ár, og Þórir bætti við: Ef það gerist ekki þá er ég farinn. Ef sending til þín frá samherja misheppnast, og þú brettir í brýrnar, og hreytir úr þér linjótsyrði, ert þú lélegur sam- herji. Ef þú lætur ekkert á þig fá, og segir: „Allt í lagi, betra næst“, þá ert þú góður samlierji, sem lijálpar félaga þínum að jafna sig á þessum mistökum, því enginn hefur fundið eins til og hann.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.